Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Síða 64
64 15. júní 2018FRÉTTIR - EYJAN
GIMLI
FASTEIGNASALA
Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík
s. 570 4800 / gimli@gimli.is
Næsti kafli
hefst hjá
OKKUR
hafðu samband
F
rá örófi alda hafa Kínverjar
verið þeirrar skoðunar að
óvinir þeirra myndu sækja að
þeim á landi og er Kínamúr-
inn einmitt dæmi um varnir gegn
óvinum. Strandlengja landsins er
mjög löng en meirihluti landsins
er langt frá hafinu og gamlar við-
skiptamiðstöðvar á borð við Shang-
haí og Hong Kong eru langt frá haf-
inu. Það var því ekki frá hafinu sem
Kínverjar töldu að ógn steðjaði
að, hún kom af landi. Það er held-
ur ekki margt að finna í kínverskri
sögu um sjóorrustur nema hvað
einn mesti hernaðarósigur Kínverja
var þegar breski flotinn bar sigurorð
af Kínverjum í Ópíumstríðunum á
fyrri helmingi nítjándu aldar.
En fortíðin er fortíð og nú horfa
Kínverjar fram á veginn og ætla sér
að verða hernaðarveldi á sjó. Þetta
sagði Xi Jinping, forseti landsins,
á flokksþingi kommúnistaflokks-
ins í október í fyrra. Xi hefur lengi
haft á stefnuskrá sinni að styrkja
flotann og fjölmiðlar gera flotan-
um reglulega góð skil. Til dæmis
skýrði Xinhua fréttastofan nýlega
frá því að flotinn hefði verið með
umfangsmikla æfingu í Kínahafi
og þar hafi fyrsta flugmóðurskip
Kínverja, Liaoning, tekið þátt. Að-
eins 14 dögum áður hafði Jinping
sjálfur skoðað flotann í tengslum
við mikla flotasýningu. Þar voru
48 herskip og 76 orrustuþotur, kaf-
bátar með kjarnorkuvopn og rúm-
lega 10.000 hermenn auk flug-
móðurskipsins góða.
Á æfingunni í Kínahafi æfðu
herskipin loftvarnir
og varnir gegn kafbát-
um. Orrustuþotur tóku
á loft frá Liaoning og
eldflaugum var skot-
ið. Það er því ljóst að
Kínverjar ætla að efla
herskipaflota sinn
mikið og ætla honum
greinilega stórt hlutverk í framtíð-
inni. Það styrkir þetta enn frekar
að Kínverjar hafa hreiðrað um sig
í Suður-Kínahafi. Þar hafa þeir
byggt og eru enn að byggja her-
stöðvar og ýmis hernaðarmann-
virki sem er hægt að nota til að
tryggja stöðu þeirra á mikilvægum
siglingaleiðum.
En Liaoning verður ekki lengi
eina flugmóðurskip Kínverja því
þeir eru sjálfir að smíða þrjú til
viðbótar en Liaoning er úkra-
ínskt skip sem Kínverjar keyptu og
breyttu og komu í gagnið. Reikn-
að er með að Kínverjar muni ráða
yfir fjórum flugmóðurskipum hið
minnsta árið 2030.
Koma sér fyrir fjarri heimahögum
Það er ekki síður mikilvægt í
þessari uppbyggingu að Kínverj-
ar hafa verið að koma sér fyrir er-
lendis með hermenn. Í ágúst í
fyrra opnuðu þeir flotastöð í Dji-
búti í Afríku. Þetta er fyrsta flota-
stöð Kínverja utan Kína og sú eina,
í bili.
Hernaðarsérfræðingar eiga þó
almennt von á að þessum erlendu
flotastöðvum Kínverja muni fjölga
á næstu árum því Kínverjar fara
ekki leynt með að þeir vilja vera
sterkt afl á alþjóðavettvangi og til
að vernda viðskiptahagsmuni sína
vilja þeir vera með herlið utan
Kína.
Það eru því ekki aðeins flota-
stöðvar sem Kínverjar vilja tryggja
sér utan Kína, þeim finnst ekki
síður mikilvægt að hafa aðgang að
venjulegum kaupskipahöfnum.
Þessar hafnir er síðan hægt að
nota til að taka við kínverskum
herskipum ef þörf krefur.
Nú þegar hafa kínversk fyrirtæki
keypt höfnina í Zeebrugge í Belgíu
og samið um að sjá um rekstur á
Piraeus-höfninni í Grikklandi til
2051. Þeir hafa einnig leigt höfnina
í Gwadar í Pakistan til 2058 en hún
veitir þeim mikilvægan aðgang að
Ómanflóa. Þá hafa kínversk fyrir-
tæki einnig samið um leigu á höfn-
unum í Hambantita á Srí Lanka og
Darwin í Ástralíu til 99 ára.
Þeir hafa einnig reynt að tryggja
sér yfirráð yfir höfnum í Banda-
ríkjunum en bandarísk stjórnvöld
hafa komið í veg fyrir það enda
ekki snjallt að leyfa Kínverjum að
ráða yfir höfnum þar í landi, að
minnsta kosti ekki út frá hernað-
arlegum og landstjórnmálalegum
ástæðum.
Útgjöld Kínverja til hernaðar-
mála aukast stöðugt en eru samt
sem áður aðeins 30 prósent af því
sem Bandaríkin eyða í her sinn.
En sífellt stærri hluti kínversku
fjárframlaganna fer í sjó- og flug-
herinn auk þess sem verið að
tæknivæða landherinn á margan
hátt og auka tæknina hjá honum.
Með þessari tæknivæðingu hefur
verið hægt að fækka hermönnum
um eina milljón og það hefur los-
að um fjármagn sem er hægt að
nota í herskipaflotann. n
HIÐ NÝJA STÓRVELDI
Á ÚTHÖFUNUM
n Kínverjar hafa tryggt sér yfirráð yfir mikil-
vægum höfnum og stækka herskipaflotann
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Herstöð Kínverja í Djíbútí.