Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2018, Page 68
68 FÓLK 15. júní 2018
Fræga fólkið og ástamálin
Sumarið er tíminn segir í texta Bubba og á meðan
sumrið tendrar ástina í hjörtun sumra para, þá ákveða
önnur að láta gott heita og halda hvort sína leið.
„Við teljum áfram
árin á aðeins
öðrum forsendum
en áður“
Gunnar Bragi Sveinsson, for-
maður þingflokks Miðflokks-
ins og fyrrverandi ráðherra,
átti stórafmæli nýlega, en hann
varð fimmtugur 9. júní síð-
astliðinn. Getgátur hafa ver-
ið um að hann og fyrrverandi
aðstoðarkona hans, Sunna
Gunnars Marteinsdóttir, væru
par, en hvorugt hefur viljað
gefa það upp opinberlega.
Ljóst er af afmæliskveðju
Sunnu til Gunnars að þau eru í
sambandi:
„Þessi allra besti félagi á
afmæli í dag og er kominn á
sextugsaldurinn! […] Kærast-
inn mun byrja afmælisdaginn
í brönsh á vel völdum stað […]
Ég er svo frábærlega þakklát
fyrir að hafa átt svona traust-
an vin í mínu lífi í næstum ára-
tug og við teljum áfram árin á
aðeins öðrum forsendum en
áður sem eru alls ekki síðri,“
skrifar Sunna meðal annars og
skellir hjarta á kveðjuna. Ljóst
er að óska má turtildúfunum
opinberlega til hamingju með
hvort annað og ástina.
Sportleg og
sæt saman
Kristjana Arnars-
dóttir, íþróttafrétta-
kona á RÚV, og
Haraldur Frank-
lín Magnús, einn af
okkar bestu kylfingu,
eru eitt af nýjustu
pörum landsins. Ný-
lega voru þau saman
í Kaupmannahöfn
ásamt fjölskyldu
Kristjönu, þar sem
haldið var upp á
stórafmæli föður
hennar, Arnars
Björnssonar íþrótta-
fréttamanns, en
hann varð sextugur
22. maí síðastliðinn.
Kristjana og Harald-
ur eru sumarleg og
sæt saman og deila
saman áhuganum á
íþróttum.
Sigurvegari fann ástina að nýju
Hanna Kristín Skaftadóttir, frumkvöðull og
athafnakona, vakti athygli þjóðarinnar fyrir
ári þegar hún sagði opinberlega frá heimilis-
ofbeldi sem fyrrverandi maki hennar, Magnús
Jónsson, hafði beitt hana, bæði hér heima og í
Texas. Sagði Hanna Kristín að með því að stíga
fram væri hún að hugsa um hag þeirra sem hafa
verið eða kynu að verða beittir ofbeldi og að
koma í veg fyrir ofbeldi. Hún vildi jafnframt vera
fyrirmynd fyrir drengi sína og móðirin og kon-
an sem léti svona ekki viðgangast. Málinu lauk
með dómsátt þar sem ekki var hægt að kæra hér
á landi fyrir ofbeldið erlendis.
Hanna valdi að láta gjörðir Magnúsar ekki
aftra henni frá að leyfa ástinni að banka upp á
að nýju. Hún og Sindri Aron Viktorsson giftu sig
í lok apríl síðastliðinn. Sindri, sem er sjö árum
yngri en Hanna, er að ljúka doktorsverkefni í
læknisfræði og er kominn með stöðu á skurð-
læknasviði Dartmouth-Hitchcock-háskóla-
sjúkrahúss í New Hampshire í Bandaríkjunum.
Fjármálaráðherra stýrir brúðkaupi
Það eru ekki allir sem fá sjálfan fjármálaráðherra landsins, Bjarna Bendiktsson,
til að troða upp sem veislustjóri í brúðkaupi, en þegar maður er bróðir hans þá
er bónin líklega sjálfsögð. Eldri bróðir Bjarna, Sveinn Benediktsson tölvunar-
fræðingur, og doktor Helga Kristjánsdóttir hagfræðingur voru gefin saman í heilagt
hjónaband þann 2. júní síðastliðinn af séra Sveini Valgeirssyni í Dómkirkjunni.
Brúðkaupsveislan var haldin á Grand Hótel þar sem Ólafur Teitur Guðnason, að-
stoðarmaður ferðamálaráðherra, sló í gegn sem plötusnúður með tónlist úr eigin safni.
Að eigin sögn reyndi hann að finna „dágóðan skammt af rómantík í upplífgandi kantinum,
alla vega ekki niðurdrepandi og svæfandi ballöður sem drægju allan þrótt úr partýinu.“