Fréttablaðið - 09.01.2019, Síða 4
SELTJARNARNESBÆR Íbúaþróun á Sel-
tjarnarnesi á þessari öld er frábrugð-
in þróun nágrannasveitarfélaganna.
Á meðan fjölgar í öllum sveitarfélög-
unum á svæðinu stendur Seltjarnar-
nes í stað hvað varðar íbúaþróun á
tímabilinu.
Frá aldamótum fækkaði íbúum á
Seltjarnarnesi til ársins 2013 þegar
fjöldi íbúa náði lágmarki en hefur nú
risið aftur og náð fyrra horfi.
Hins vegar, þegar skoðaðar eru
breytingar á samsetningu íbúanna
á Seltjarnarnesi kemur í ljós á þessu
tímabili að börnum fækkar nokkuð
sem og íbúum á svokölluðum barn-
eignaraldri eða á aldrinum 25 til 45
ára. Að sama skapi fjölgar ellilífeyris-
þegum nokkuð á tímabilinu.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar-
stjóri á Seltjarnarnesi, segir skýringu
þess að ekki hafi fjölgað í sveitar-
félaginu á tímabilinu einfaldlega vera
að land til nýbygginga í sveitarfélag-
inu sé að mestu upp urið á meðan
önnur sveitarfélög eigi enn land til
uppbyggingar. Af þeim sökum hafi
hin sveitarfélögin stækkað en Sel-
tjarnarnes ekki.
„Það hefur ekki verið mikið byggt á
Seltjarnarnesi því við erum að miklu
leyti búin með það land sem við
getum byggt upp á,“ segir Ásgerður.
„Hins vegar erum við nú að sjá
fram á að geta byggt upp á nýjum reit
sem hefur verið skilgreint iðnaðar-
svæði. Þar mun byggjast upp á næstu
árum. Við munum því sjá Seltjarnar-
nes stækka upp í um 5.000 manns.“
Ásgerður segir að íbúar sveitar-
félagsins séu ólíklegir til að flytjast
burtu úr sveitarfélaginu sem sýni að
þeir séu sáttir við þá þjónustu sem er
veitt og að almenn sátt með búsetu
skipti miklu máli. – sa
Nýtt
Strefen 16,2 mg/ml munnholsúði, lausn inniheldur flurbiprofen. Strefen er notað sem skammtímameðferð til að draga úr einkennum bráðra hálssærinda hjá fullorðnum.
Einn skammtur (3 úðaskammtar) aftast í hálsinn á 3-6 klst. fresti eftir þörfum, upp að hámarki 5 skammtar á 24 klst. tímabili. Ráðlagt er að nota lyfið að hámarki í þrjá daga.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir.
Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
ERT ÞÚ MEÐ
HÁLSBÓLGU?
Bólgueyðandi og
verkjastillandi munnúði
við særindum í hálsi
Strefen-sprey-Lyfja-5x10.indd 1 03/10/2018 14:54
Börn 25 - 45
ára
✿ Aldurshópar á Nesinu
Eldri en
67 ára
1400
1200
1000
800
600
400
200
12
65
10
08
13
45
11
79
39
8
67
6
n 2000 n 2018
Færri börn en fleiri eldri borgarar á Seltjarnarnesi frá aldamótum
Við munum því sjá
Seltjarnarnes
stækka upp í um 5.000
manns.
Ásgerður Halldórs-
dóttir, bæjarstjóri á
Seltjarnarnesi
VESTURBYGGÐ Íbúum í Vesturbyggð
fækkaði um 26 á síðasta ári og eru í
fyrsta skipti frá 2014 komnir undir
eitt þúsund íbúa. Íbúar voru í upp-
hafi þessa árs 998 talsins samkvæmt
þjóðskrá.
Í byrjun 2017 voru íbúar í Vestur-
byggð, þar sem Bíldudalur og Pat-
reksfjörður eru stærstu byggða-
kjarnarnir, 1.030 og höfðu aldrei
verið fleiri.
Mikil uppgangur hefur verið í
Vesturbyggð síðasta áratuginn. að
mestu vegna uppgangs fiskeldis. Á
meðan minni sveitarfélög á Vest-
fjörðum hafa mátt búa við fólks-
fækkun á tímabilinu hefur staða
Vesturbyggðar verið önnur. – sa
Íbúum fækkar í
Vesturbyggð
ÁRBORG Fjölgun íbúa í Árborg á
síðustu árum hefur verið afar mikil
en á síðustu fimm árum hefur íbúum
fjölgað um 21 prósent. Á síðasta ári
einu fjölgaði íbúum um nærri fimm
hundruð og eru nú 9.486 talsins.
Sveitarfélög í nágrenni höfuð-
borgarsvæðisins hafa stækkað
mun hraðar á síðustu árum en
sveitarfélögin innan þess og er
Árborg greinilega innan þess áhrifa-
svæðis miðað við fjölgun íbúa á
svæðinu. Margir hafa leitað í ódýrara
húsnæði og flutt úr borginni í nær-
liggjandi sveitarfélög.
Haldi fram sem horfir mun Árborg
rjúfa tíu þúsund íbúa múrinn í lok
árs eða á fyrri helmingi 2020. – sa
Árborg að ná
10.000 íbúum
21%
fólksfjölgun hefur orðið í
Árborg á síðustu fimm árum.
BYGGÐAÞRÓUN Fjölgun íbúa í
Hafnar firði í fyrra var helmingi
minni en meðalfjölgun í sveitar-
félögum á höfuðborgarsvæðinu. Á
meðan íbúum fjölgaði um 2,6% á
höfuðborgarsvæðinu fjölgaði Hafn-
firðingum um 1,3 prósent.
Formaður bæjarráðs Hafnarfjarð-
ar segir lítið hafa verið byggt á árinu
en kraftur verði í framkvæmdum á
næstu árum.
Íbúum á höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði alls um nær sex þúsund á
síðasta ári samkvæmt Þjóðskrá.
Fjölgunin í Mosfellsbæ er rúmlega
þrefalt meiri en meðaltalið, þar
fjölgaði um 8,6 prósent. Íbúum
í Mosfellsbæ hefur undanfarið
ár fjölgað mikið og er nú svo
komið að um 11.500 manns
búa í Mosfellsbæ.
Næststærsta sveitarfélag
landsins, Kópavogur, held-
ur áfram að stækka.
Þar fjölgar íbúum
um 2,83 prósent og
nágrannar þeirra
í Garðabæ eru nú
Mosfellsbær stækkar mun örar
en hin sveitarfélögin á svæðinu
Íbúum sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði um 2,6 prósent á
síðasta ári. Mosfellsbær
stækkar þrisvar sinnum
hraðar en önnur sveitar-
félög. Hafnfirðingum
fjölgaði einungis um 1,3
prósent á sama tíma.
Á höfuðborgarsvæðinu hefur leið margra legið í Mosfellsbæ þar sem íbúum fjölgar ört. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ágúst Bjarni
Garðarsson stjórn-
málafræðingur .
rúmlega 16 þúsund talsins og fjölgar
um 3,7 prósent á árinu.
Reykvíkingum fjölgar hins
vegar ekki jafn ört. Fjölgar
þar um 2.700 manns eða um
2,2 prósent.
Ágúst Bjarni Garðarsson,
formaður bæjarráðs Hafnar-
fjarðar, segir lítið hafa verið
byggt upp á síðkastið. Nokkr-
ar ástæður séu fyrir því.
Hins vegar muni færast líf
í nýbyggingar í bænum á
komandi misserum sem
munu aftur setja kipp í
íbúafjölgun í bænum.
Einnig bendir hann á
að svo gæti verið sem
skipulagsvald sveitar-
félaganna sé of miklum takmörk-
unum háð. Skipulagsvaldið sé meira
í orði en á borði sveitarfélaganna.
„Sveitarfélögunum eru takmörk
sett samkvæmt svæðisskipulagi höf-
uðborgarsvæðisins til ársins 2040.
Einnig erum við að bíða eftir að stór-
ar raflínur fari af mögulegum bygg-
ingarsvæðum okkar Hafnfirðinga,
en færsla þeirra hefur verið á aðal-
skipulagi í mörg ár. Því er hægt að
velta fyrir sér hvort skipulagsvaldið
sé í raun hjá sveitarfélögunum hvað
þetta varðar,“ segir Ágúst Bjarni.
Gangi hins vegar að óskum muni
fjölga verulega í Hafnarfirði á kjör-
tímabilinu en jafnframt skynsam-
lega og á ákjósanlegum svæðum fyrir
framtíðarþróun sveitarfélagsins.“
Íbúaþróun höfuðborgarsvæðisins
frá aldamótum er afar mismunandi
milli sveitarfélaga. Til að mynda
hefur á þessum 19 árum íbúum Mos-
fellsbæjar fjölgað um 80 prósent og
ber hann höfuð og herðar yfir önnur
sveitarfélög á svæðinu. Garðabær
hefur stækkað hlutfallslega næstmest
eða um 67 prósent og Hafnarfjörður
og Kópavogur um svipað hlutfall eða
58 prósent og 53,5 prósent á þessum
tæpu tveimur áratugum.
Á þessum tíma hefur íbúum
Reykjavíkurborgar fjölgað um 14,7
prósent og virðist borgin eiga í sams
konar vandræðum og Akureyri með
að vaxa á meðan nærsveitarfélögin
í kringum borgina stækka mun
hraðar. sveinn@frettabladid.is
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-5
A
2
8
2
1
F
7
-5
8
E
C
2
1
F
7
-5
7
B
0
2
1
F
7
-5
6
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K