Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 6
SVÍÞJÓÐ Frá og með 16. janúar
næstkomandi geta enskumælandi
einstaklingar gefið blóð í blóðbank
anum í Stokkhólmi.
Til að koma í veg fyrir misskilning
hafa eingöngu þeir sem mæltir eru
á sænska tungu fengið að gefa blóð,
að því er segir á vef sænska ríkis
útvarpsins.
Nú hafa starfsmenn blóðbankans
fengið kennslu í læknisfræðilegum
heitum á ensku auk þess sem eyðu
blöð hafa verið þýdd á ensku. Blóð
gjafar verða eftir sem áður að fram
vísa sænskum persónuskilríkjum og
vera með sænska kennitölu. – ibs
Enskumælandi mega nú gefa blóð
SAMGÖNGUMÁL Vaðlaheiðargöng
verða formlega opnuð með viðhöfn
næstkomandi laugardag. Boðið
verður upp á viðamikla dagskrá allan
daginn af því tilefni.
Formleg vígsla ganganna verður
klukkan hálf fjögur á laugardag,
Fnjóskadalsmegin. Þar mun stór
söngvarinn Friðrik Ómar syngja
Vor í Vaglaskógi og Vandræðaskáld
frumflytja lag um göngin og félagar í
fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar
aka fyrstir í gegnum göngin.
Vegna takmarkaðs fjölda bíla
stæða við Vaðlaheiðargöng verður
boðið upp á rútuferðir fram og til
baka á hálftíma fresti yfir daginn.
Athygli manna hefur þó vakið sú
staðreynd að á sjálfri opnunarhátíð
Vaðlaheiðarganga, sem beðið hefur
verið með óþreyju og framkvæmdin
verið vægast sagt umdeild, verði
göngin lokuð fyrir umferð frá klukk
an 8 um morguninn til klukkan 18
um kvöldið.
Kostnaður við göngin nemur ríf
lega 17 milljörðum króna. – smj
Göngunum
lokað vegna
opnunarhátíðar
sp
ör
e
hf
.
Fararstjóri: Guðrún Bergmann
Í þessari ævintýraferð upplifum við undur Indlands,
skoðum tignarlegar hallir og förum á fílsbak í þessu
fjölmennasta lýðræðisríki heims. Í Delí skoðum við m.a.
forsetahöllina og upplifum ævintýralegan markað í Gömlu
Delí. Við skoðum Taj Mahal, eitt þekktasta grafhýsi í heimi
og Varanasi eða Borgina eilífu sem er helgasti staður
hindúa og ein elsta borg heims.
21. mars - 1. apríl
Kynntu þér úrval ferða á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Allir velkomnir á kynningarfund 10. janúar kl. 20:00
hjá Bændaferðum í Síðumúla 2, 2. hæð.
Dulúð Indlands
NÁTTÚRUHAMFARIR Það væsir ekki
um þá Íslendinga sem dvelja á
skíðahóteli Þorgríms og Þuríðar í
austurrísku Ölpunum en þar kyngir
niður snjó sem aldrei fyrr.
Snjóflóðahætta er víða á skíða
svæðum í Ölpunum eftir mikla
snjókomu um helgina og minnst
fjórir skíðamenn hafa látist, þrír í
snjóflóðum og einn sem varð undir
tré sem féll vegna snjóþyngsla.
Fréttavefur BBC greindi frá því að
björgunarfólk væri víða að leita að
fólki á skíðasvæðum bæði í austur
rísku og ítölsku Ölpunum, fjölda
fjallvega hefði verið lokað og skíða
fólk varað við.
„Það er nú meira í nágrenni við
Tíról og eins á skíðasvæðinu í Ober
tauern sem er í um 25 kílómetra
fjarlægð frá okkur, það er snjó
flóðahætta þar,“ segir Þorgrímur
Kristinsson, staðarhaldari á skíða
hóteli Íslendinga í Speirereckfjalli
í Austurríki, sem er um það bil 100
kílómetra suður af Salzburg.
Þorgrímur segist fylgjast mjög vel
með öllum aðstæðum á skíðasvæð
unum og mögulegri snjóflóðahættu.
„Það er engin snjóflóðahætta hér
hjá okkur en ég hef eitthvað heyrt
í fréttum um slys á fólki.
„Þau verða helst þegar fólk er að
fara utanbrautar í svona aðstæðum
sem er algjörlega bannað,“ segir
hann og kveðst ekki muna eftir
jafnmiklum snjó á svæðinu og ekk
ert lát virðist ætla að verða á ofan
komunni.
„Það er spáð snjókomu hér alla
vega næstu fjóra dagana. En fjöllin
hjá okkur eru hins vegar meira
aflíðandi og ekki eins mikil kletta
fjöll eins og til dæmis í Tíról þannig
að snjóflóðahætta er ekki eins mikil
hjá okkur og þar.“
Aðspurður segist Þorgrímur
ekki vita til þess að veðrið og snjó
þyngslin á svæðinu hafi valdið
Íslendingum vandræðum.
„Nei, ég veit ekki til þess og allir
á hótelinu hjá mér eru fínir,“ segir
hann. Langflestir hótelgesta hans
eru Íslendingar.
„Það er góð stemning meðal
Íslendinganna hjá okkur og frá
næstu viku og alveg út febrúar verð
ur alveg vitlaust að gera hjá okkur.“
Snjókoman truflar ekki skíða
iðkunina að sögn Þorgríms. Þó hafi
skíðalyftum verið lokað um stund
arsakir vegna fannkyngi.
„En í dag var þetta mjög fínt hjá
okkur og frábært skíðafæri. En
þetta er samt komið gott,“ segir Þor
grímur sem á því frekar að venjast
að biðja um meiri snjó en óska þess
að lát verði á ofankomu.
adalheidur@frettabladid.is
Íslendingar á kafi í snjó
í austurrísku Ölpunum
Íslendingur sem rekur skíðahótel í austurrísku Ölpunum man ekki meiri snjó-
þyngsli þar. Veit ekki til að Íslendingar hafi lent í vanda vegna snjóflóða, vel fari
um sína íslensku gesti. Nokkrir hafa farist í Ölpunum í vikunni vegna snjóflóða.
Þorgrímur man ekki önnur eins snjóþyngsli við hótel sitt. MYND/ÞORGRÍMUR
Snjór við Akrópólis
Ferðamenn við Akrópólis í Aþenu þurftu að klæða sig vel í gær en sjaldséður snjór féll í grísku höfuðborginni og féll skólahald víða niður. Mikið
frost var í norðurhluta landsins sem truflaði samgöngur. Kuldamet var slegið þegar frostið náði 23 gráðum í borginni Florina. NORDICPHOTOS/GETTY
Til þessa hafa aðeins þeir
sem eru mæltir á sænska
tungu fengið að gefa blóð í
Svíþjóð.
Fjöllin hjá okkur
eru hins vegar meira
aflíðandi og ekki eins mikil
klettafjöll eins og til dæmis í
Tíról þannig að snjóflóða-
hætta er ekki eins mikil.
Þorgrímur Kristinsson staðarhaldari
Úr göngunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
9 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-6
D
E
8
2
1
F
7
-6
C
A
C
2
1
F
7
-6
B
7
0
2
1
F
7
-6
A
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K