Fréttablaðið - 09.01.2019, Page 29
Það er brýnt að
hafa samtök sem
beita sér fyrir náttúru-
vernd án þess að hafa
fjárhagslega hvata, þau
eru óháð öðru en lýð-
ræðislegum ákvörðunum
félagsmanna sinna.
AFMÆLISÁRS LANDVERNDAR 2019
10. APRÍL
The True Cost
Sýning í Bíó Paradís
Kl. 20:00
6. APRÍL
Norræni fataskiptadagurinn
Samstarf við ungmennahús landsins
Kl. 14:00
4. MAÍ
Norræni strandhreinsunar-
dagurinn ásamt Bláa hernum
Kl. 11:00
Dýradagurinn
Skrúðganga til stuðnings
lífbreytileika
Dagsetning tilkynnt síðar
12. JÚNÍ
Fræðsluferð í Friðland
í Flóa með Fuglavernd
og Votlendissjóði
29. JÚNÍ
Náttúruþing á Þingvöllum
Kl. 10-22:00
Ljósmyndasýning í Norræna húsinu
14. okt.–10. nóv
10. OKT.
Draumalandið
Sýning í Bíó Paradís og umræður eftir mynd
Kl. 20:00
25. OKT.
Afmælisráðstefna Landverndar
6. NÓV.
Hvellur
Sýning í Bíó Paradís
Kl. 20:00
20. NÓV.
Umhverfismál og siðfræði
Viðburður í samstarfi við
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands
4. DES.
UseLess
Sýning í Bíó Paradís
Kl. 20:00
7. DES.
Jólagjafavinnustofa
GÞS (DIY)
24. DES.
Gleðileg jól!
30. APRÍL
Aðalfundur Landverndar
APRÍL
OKTÓBER NÓVEMBER DESEMBER
MAÍ JÚNÍ
Guðmundur Ingi Guðbrandsson í Nuuk á Grænlandi en ráðherra kann alltaf
best við sig í lopapeysunni úti í náttúrunni, hérlendis sem erlendis.
Hver eru stærstu skrefin sem hafa verið stigin í náttúru-vernd síðustu 50 árin?
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
í umhverfis- og náttúruverndar-
málum á síðustu fimmtíu árum
bæði alþjóðlega og hér heima á
Íslandi. Umhverfismál eiga sér
oftast engin landamæri, mengun
berst á milli ríkja og andrúmsloftið
er okkur öllum til dæmis sameigin-
legt. Þetta hefur kallað á sameigin-
legar aðgerðir þvert á landamæri og
fjölmargir alþjóðlegir samningar
hafa tekið gildi seinustu áratugi.
Þar trónir kannski hæst samningur
Sameinuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar og Kyoto-bókunin og
Parísarsamningurinn sem eru hluti
hans.
Aðrir merkir samningar hafa
einnig verið gerðir sem miklu máli
hafa skipt fyrir umhverfis- og nátt-
úruvernd. Þar má nefna samning
SÞ um eyðimerkurmyndun og
vernd líffræðilegrar fjölbreytni,
Montreal-bókunina um verndun
ósonlagsins og Árósasamninginn
um rétt almennings til þátttöku
þegar kemur að ákvarðanatöku
um umhverfismál. Þá hafa einnig
komið fram mikilvægar megin-
reglur í alþjóðlegum umhverfisrétti:
Varúðarreglan og mengunar-
bótareglan. Allir þessir samningar
hafa haft mikil áhrif á umhverfis- og
náttúruverndarlöggjöf hérlendis,
á viðhorf fólks og umgengni við
náttúruna.
Þróunin hérlendis síðustu
fimmtíu árin hefur litast af þessum
alþjóðlegu straumum og einnig af
nauðsyn þess að vernda og stuðla
að sjálfbærri nýtingu á auðlindum
lands og sjávar. Á þessu tímabili
var til dæmis komið á kvótakerfi
í sjávarútvegi, sérstakur ferill
mótaður utan um hvar megi virkja
vatnsafl og jarðvarma og hvar ekki
og komið á lögum um hvernig megi
vernda vinsæla ferðamannastaði
gegn álagi ferðamanna. Þá hefur
margvísleg löggjöf verið tekin upp
í gegnum EES-samninginn og má
þar nefna mat á umhverfisáhrifum,
efnalöggjöf og vatnatilskipun.
Hvaða þýðingu hefur Árósa-
samningurinn?
Tilkoma Árósasamningsins
hefur styrkt umhverfisverndarsam-
tök og réttindi þeirra. Hérlendis
geta slík samtök með 30 félags-
menn eða fleiri farið fram á að fá
afhentar upplýsingar sem snúa að
umhverfismálum. Þau eiga rétt á
að taka þátt í ákvarðanatöku, t.d.
með því að gera athugasemdir við
áætlanir stjórnvalda og fyrirtækja
og þau geta látið reyna á ákvarðanir
stjórnvalda er varða umhverfismál
fyrir úrskurðarnefndum. Þýðing
þessa er ótvíræð og alveg ljóst að
Árósasamningurinn hefur verið
mjög mikilvægur bæði hérlendis og
erlendis.
Hversu mikilvægt telur þú starf
Landverndar og annarra félagasam-
taka hafa verið í náttúruvernd?
Félagasamtök eins og Landvernd
hafa mikilvægu hlutverki að gegna
í umhverfis- og náttúruvernd. Það
er brýnt að hafa samtök sem beita
sér fyrir náttúruvernd án þess að
hafa fjárhagslega hvata að baki, þau
eru óháð öðru en lýðræðislegum
ákvörðunum félagsmanna sinna.
Mjög víða eru slík samtök leiðandi í
umhverfismálum og þátttaka þeirra
því algerlega nauðsynleg. Ég tel að
barátta félagasamtaka hérlendis
hafi skipt miklu í umhverfismálum
og muni gera það áfram. Þau hafa
veitt gríðarlega mikilvægt aðhald
og komið málum á dagskrá. Gott
dæmi um það er hugmynd um
þjóðgarð á miðhálendi Íslands.
Þessi framsækna og metnaðarfulla
hugmynd er nú hluti af sáttmála
ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur
og þverpólitísk nefnd undirbýr
stofnun þjóðgarðsins.
Á köflum hefur þó reynst erfitt
að fjármagna umhverfisverndar-
samtök og stuðningur hins opin-
bera hefur verið frekar lítill. Sem
umhverfisráðherra legg ég áherslu
á að rekstrarstyrkir til umhverfis-
verndarsamtaka verði stórauknir:
Um 50% á þessu ári og önnur 50%
árið 2020.
Á seinustu misserum hefur
vitund og áhugi fólks á umhverfis-
málum aukist ótrúlega. Það er
frábært að verða vitni að þeirri
kærkomnu umhverfisbylgju sem nú
á sér stað. Umhverfismál eru ekki
lengur álitin jaðarmál, enda eru þau
stóru málin sem snerta okkur öll í
nútíð og framtíð.
Ég óska Landvernd innilega til
hamingju með 50 ára afmælið
og óska samtökunum gæfu og
góðs gengis í sínum mikilvægum
störfum.
Umhverfismál eru án landamæra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, fer stuttlega yfir það
sem áunnist hefur í umhverfis- og náttúruverndarmálum síðustu fimmtíu ár.
LANDVERND 50 ÁRA 5 M I ÐV I KU DAG U R 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
F
7
-5
F
1
8
2
1
F
7
-5
D
D
C
2
1
F
7
-5
C
A
0
2
1
F
7
-5
B
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K