Fréttablaðið - 09.01.2019, Side 42
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 9. janúar 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Stjórnar-
maðurinn
02.01.2019
Hlutabréfasjóður í stýringu GAMMA Capital Management seldi allan 2,9 prósenta hlut sinn í Arctic
Adventures, stærsta fyrirtæki landsins í
afþreyingarþjónustu fyrir ferðamenn, í
lok nóvember, að því er fram kemur í bréfi
sjóðsstjóra fyrirtækisins til sjóðsfélaga. Er
salan sögð í samræmi við þá stefnu sjóðs-
ins, GAMMA:Equity, að draga úr vægi
óskráðra eigna í eignasafninu.
Á móti fjárfesti sjóðurinn að hluta til
aftur í ferðaþjónustufyrirtækinu í gegnum
fagfjárfestasjóðinn GAMMA:Numinous.
Sjóðir í stýringu GAMMA keyptu sem
kunnugt er samanlagt 15 prósenta hlut
í Arctic Adventures í desember 2017 en
þar af eignaðist sjóðurinn GAMMA:Num-
inous tæplega 9,5 prósenta hlut.
Í bréfi sjóðsstjóra GAMMA segja þeir
að mjög vel gangi í rekstri ferðaþjónustu-
fyrirtækisins og vænta þeir þess að sú
verði áfram raunin. Í kjölfar sölunnar er
eina óskráða eign GAMMA:Equity hlutur
í lækningavörufyrirtækinu Kerecis. – kij
Sjóður GAMMA selur í Arctic Adventures
Valdimar
Ármann, forstjóri
GAMMA Capital
Management.
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur
Bókhald
Jafnlaunavottun
Áhættustýring
Endurskoðun
Verðmæti
Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði.
Ráðgjöf
Hámarkaðu árangurinn þinn
og verðmæti með því að nýta þér
fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu
PwC á öllum sviðum rekstrar
Skattamál
Raunar gengur engin
peningastefna upp á Íslandi
svo lengi sem ofangreind
stéttaólga leiðir til nafn-
launahækkana á sama
hraða og verið hefur
undanfarin ár og áratugi.
Ásgeir Jónsson, dósent í
hagfræði við Háskóla
Íslands
Gamli og nýi
Gærdagurinn var birtingarmynd
um gamla og nýja tíma í verslun.
Á sama tíma og Amazon varð
verðmætasta fyrirtæki veraldar,
eða um 800 milljarðar dala að
markaðsvirði, var formlega
tilkynnt að hinn gamalgróni
verslunarrisi, Sears, yrði tekinn
til gjaldþrotaskipta. Sears var
upprunalega pöntunarlisti sem
sendur var á heimili fólks, og
opnaði síðar verslanir um öll
Bandaríkin. Allt til 1989 var Sears
stærsta verslunarfyrirtæki Banda
ríkjanna hvað tekjur varðar.
Fall Sears er auðvitað birtingar
mynd nýrra tíma í verslun.
Fyrirtækið er löngu hætt að senda
bæklinga sína inn á öll heimili, og
verslanirnar urðu tímaskekkja
eftir því sem árin liðu. Ris Ama
zon er svo hin hliðin á sama pen
ingi. Netverslun án landamæra og
allt sem henni fylgir. Raunar eru
fá svið mannlífsins sem Amazon
snertir ekki á. Amazon seldi
upprunalega tónlist og bækur, en
er í dag allt í senn markaðstorg
fyrir allt milli himins og jarðar,
alhliða afþreyingarveita, gagna
geymsla á netinu. Fyrirtækið selur
raftæki undir eigin nafni, allt frá
lestölvum og spjaldtölvum yfir í
raddstýrða hátalara, matvöru og
svo mætti áfram telja. Allt er þetta
svo sent heim í stofu.
Það er í þessum heimi sem fyrir
tæki á borð við Sears eiga erfitt
með að fóta sig. Skyldi engan
undra, þau sitja á langtímaleigu
samningum á stöðum sem fólk
vill ekki lengur versla á. Af hverju
að rífa sig af stað þegar þú getur
fengið sent heim í stofu? Kostn
aður í breyttum heimi sligaði
fyrirtækið að endingu.
Þetta er þróun sem á sér stað
alls staðar í heiminum og þvert
á landamæri. Fornfrægir breskir
verslunarrisar eiga í miklum
vandræðum. Hér á Íslandi sjáum
við að stóru verslunarfyrirtækin
láta suma vöruflokka hreinlega
ósnerta. Hagar hafa undið nánast
alveg ofan af rekstri tískuverslana
sinna. Þar skiptir erlend sam
keppni vafalaust langmestu.
Dæmin sýna hins vegar að ekki er
öll nótt úti enn fyrir hefðbundnar
verslanir. Þannig hafa Harrods
og Selfridges skilað metárangri
síðustu misseri. Þeim hefur tekist
að feta þetta vandrataða einstigi
milli nýja tímans og þess gamla.
Verslun á gamla mátann mun
ekki leggjast af. Þeir sem sofa á
verðinum verða þó ekki langlífir.
0
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:1
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
F
7
-4
B
5
8
2
1
F
7
-4
A
1
C
2
1
F
7
-4
8
E
0
2
1
F
7
-4
7
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K