Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 4

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 4
4 Ljósmæðrablaðið - júní 2012 Það er innbyggt í eðli mannsins að vilja auka kyn sitt. Ekki er það öllum kleift og geta ýmsar ástæður legið þar að baki. Margir glíma við ófrjósemi sem er skilgreind sem sjúkdómur og fá þeir sem eiga við það vandamál að stríða oft mikla samúð og skilning. Samkynhneigð pör geta eðli málsins samkvæmt ekki eignast börn á hefðbundinn hátt og hefur það aukist að samkynhneigðar konur leiti til Art Medica til að fá aðstoð við barnleysið eftir að lög um tæknifrjóvganir voru rýmkaðar. Breytt viðhorf innan samfélagsins hefur haft áhrif til fjölgunar lesbískra para í barneignarferli og ætla má að fjöldinn komi til með að aukast enn frekar. Í blaðinu er fræðslugrein sem Ingunn Vattnes ljósmóðir skrifar upp úr lokaverkefni sínu um þetta efni. Þar kemur fram að heilbrigðisstarfs- fólk virðist ekki vera að fullu tilbúið til að taka á móti þessum hópi kvenna með opnu hugar- fari og veita þeim bestu mögulegu þjónustu sem tekur mið af þörfum og óskum lesbía um viðeigandi meðferð. Í blaðinu segja tvö samkynhneigð pör frá sinni sögu þegar þau gengu í gengnum barneignarferlið. Mikið hefur verið rætt og ritað um vaxandi þyngd Íslendinga undanfarin ár. Sjáum við sem vinnum í heilbrigðisgeiranum þetta vandamál aukast með hverju árinu sem líður. Í blaðinu birtist fræðslugrein um þetta efni. Þar vilja höfundar efla heilbrigði, einblína á það sem er jákvætt og auka aðgengi kvenna að næringarráðgjöf. Tíðrætt hefur verið um niðurskurð og breytingar á þjónustu við barnshafandi konur, sérstaklega úti á landi. Steina Þórey, ljósmóðir í Keflavík, skrifar um sjálfstæði ljósmæðra. Það er alltaf gott að minna okkur á að ekki þýðir að berja höfðinu við stein og tala um hvernig hlutirnir voru, heldur að horfa til framtíðar og sjá hvernig við getum spilað úr þeim spilum sem við höfum. Vorblaðið er nú komið í ykkar hendur, alltaf gengur vel að afla efnis í blaðið. Í raun er það alveg ótrúlegt miðað við hversu fámennt félag Ljósmæðrafélagið er. Erum við í ritstjórninni endalaust þakklátar fyrir þetta. Við viljum nota tækifærið og minna þær ljósmæður sem hafa hlotið styrk hjá Ljósmæðrafélaginu að skrifa í blaðið, það er í raun skylda styrkþega að kynna fyrir félagsmönnum þau verkefni sem félagið styrkir og er Ljósmæðrablaðið besti vett- vangurinn til þess. Gleðilegt sumar og hafið það gott í sumarfríinu. Hrafnhildur Ólafsdóttir Hrafnhildur Ólafsdóttir ritstjóri Ljósmæðrablaðsins Ritstjórapistill

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.