Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 23
23Ljósmæðrablaðið - júní 2012
Pistill ljósmæðranema
Síðastliðið haust hóf nýr hópur af
metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum
að nema ljósmóðurfræði við Háskóla
Íslands. Hópurinn samanstendur af níu
konum sem spanna tæplega tuttugu ára
aldursbil og hafa mjög fjölbreytta og
ólíka starfs- og lífsreynslu í farteskinu.
Í hópnum er að finna ólíka einstaklinga
sem saman mynda frábæra heild,
samstöðu og sterkt systralag. Hópur
þessi, sem og aðrir hópar sem á undan
hafa farið í gegnum þetta nám, inniheldur
konur með háleitar hugsjónir fyrir
framtíð ljósmóðurfræðinnar. Hugsjónir
okkar og hugmyndir hafa reglulega tekið
stakkaskiptum og breytt um liti eftir því
sem náminu miðar áfram. Við höfum
fræðst um ýmsar stefnur og strauma sem
hafa fylgt fræðigreininni á mislöngum
tímabilum sem hefur haft mótandi áhrif á
afstöðu okkar og hugmyndir.
Það væri ekki sannleikanum samkvæmt
að segja að ljósmóðurfræðin á Íslandi hafi
staðið í stað á síðastliðnum áratugum.
Fræðin eru í stöðugri þróun og ljósmæður
taka þátt í örri framþróuninni á metnaðar-
fullan hátt, ávallt tilbúnar til að læra
eitthvað nýtt, bæta sig og aðlaga starfs-
hætti sína að nýjungum. Þetta höfum við
fengið að sjá og heyra hjá þeim kenn-
urum og leiðbeinendum sem við höfum
hitt í vetur og það er ekki síst þetta sem
hefur blásið okkur í brjóst vissuna um
að við séum réttar konur á réttum stað.
Við höfum áhuga á að vera með og taka
þátt í því að viðhalda faglegum metnaði
og uppbyggjandi framþróun innan ljós-
móðurfræðinnar.
Það er gaman að segja frá því að
hefðum og siðum deildarinnar hefur verið
viðhaldið nú í vetur sem fyrr. Þessar
hefðir hafa margar hverjar stuðlað að
nánari kynnum ljósmæðranema á fyrra og
seinna námsári sem og fært upplyftingu
og tilhlökkun inn í hversdagslegt annríki.
Við höfum haldið kökuboð, árshátíð með
einkar eftirminnilegum skemmtiatriðum,
farið í vísindaferð og nú stendur til að ein
úr okkar hópi fari á ljósmæðraráðstefnu í
Litháen innan fárra daga frá því að þetta
er ritað. Þessi vetur hefur verið lærdóms-
ríkur og gefandi og okkur hlakkar mikið
til að takast á við seinni hluta námstímans
og kynnast í leiðinni fleiri ljósmæðrum
á vettvangi. Systrum okkar sem nú eru
að útskrifast þökkum við samfylgdina,
veitta aðstoð, upplýsingar og þolinmæði
um leið og við óskum þeim velfarnaðar
í starfi.
Fylgjur skoðaðar í kennslu um 3ja stig
fæðingar
Fjör á árshátið ljósmæðranema
Hópurinn með Kristbjörgu ljósmóður sem
kennir um fylgjufæðingu.
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir
nemi í ljósmóðurfræði
O D D R Ú N