Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 24

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 24
24 Ljósmæðrablaðið - júní 2012 Deildin Ljósurnar hefur starfað í rúm sex ár. Stofnun hennar voru gerð nokkur skil í 1. tölublaði Ljósmæðrablaðsins 2006. Þetta er góður félagsskapur og hefur sennilega þjappað betur saman ljós- mæðrum sem eru hættar störfum. Hópurinn er mjög stór og engan veginn þannig að náið samband sé við allar. Á póstlista eru yfir 200 ljósmæður og mörgum þykir vænt um að fá fundartilkynningu þó þær, vegna búsetu eða lasleika, geti ekki mætt á fundi. Stærsti hluti félaga er kominn á eftirlaun, en margir eru enn við ljósmóðurstörf. Ljósurnar halda aðalfund og einn almennan fund á hverju ári. Á þeim fundum hefur gjarnan einhver fundarkvenna verið með upplestur eða áhugaverða frásögn. Fljótlega eftir stofnun deildarinnar kom fram áhugi á að fara saman í ferðalag. Í þessu var drifið, þetta er í raun áþreifan- legasta starfsemin og því við hæfi að segja frá ferðunum í stuttu máli. Ferðir Ljósanna Fyrsta ferðin var farin í byrjun júní árið 2007. Þá var ekið með rútu í Borgarnes, skoðað Landnámssetur og Skallagríms- garð. Þaðan ekið upp í Borgarfjörð, yfir gömlu brúna á Hvítá, yfir Geldingadraga og niður í Hvalfjörð og þar snæddur dýrindis kvöldverður. Fararstjóri var formaður deildarinnar og hafði hún safnað saman ýmsum fróðleik um svæðið sem var miðlað gegnum hljóðnema í rútunni. Sá háttur hefur verið á síðan, til að fá menningaryfir- bragð, að fararstjóri hverju sinni sé með fræðslu sem tengist svæðinu. Alls voru 27 Ljósur í þessari ferð sem þótti það vel heppnuð að vorferð er orðin að föstum lið. Árið 2008 var farið í Stykkishólm, þá fóru 23 Ljósur með. Þar tók Elín Sigurðardóttir ljósmóðir á móti hópnum, fylgdi honum allan daginn og miðlaði fróðleik og skemmtisögum til okkar. Farar- stjóra búsettan í Stykkishólmi fengum við einnig. Norska Húsið og Vatnasafn var skoðað. Einnig gafst frjáls tími til að Hvað gera Ljósurnar? Hópurinn á leið í Bása Ferðanefnd ásamt bílstjóra L J Ó S U R N A R

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.