Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 29

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 29
29Ljósmæðrablaðið - júní 2012 Þegar kom fram í fæðingastofuna var verið að ljúka við að þvo stelpunni og leggja hana í vöggu. Búið var að taka fram hitakassa til að hafa barnið í því það var fætt þremur vikum fyrir tímann og því talið vissara að halda vel á því hita. En kassinn hitnaði ekki. Ég var nú settur í að athuga kassann. Þegar ég hafði skrúfað plötu ofan af rafkerfinu kom í ljós að skrúfa hafði losnað og einn vírinn farið úr sambandi. Skrúfan fannst og vírinn var tengdur og nú hitnaði kassinn. Ég fékk nú hlutverk. Var settur í að passa kassann og barnið. Þarna sat ég og horfðist í augu við nýfædda dóttur mína gegnum gler- vegg kassans og fylgdist með hitamæli. Þegar ljóst þótti að hitastilli kassans ynni eins og til var ætlast var mér tilkynnt að nú væri ég óþarfur og lagði ég þá af stað heim í Mjólká. Stjörnubjart var og fagurt þegar ég ók yfir Hrafnseyrarheiði. Tvær þotur frá varnarliðinu flugu lágt yfir fjöllin með blikkandi ljós í stélinu og nágranninn í vestri; grænlenska útvarpið, spilaði dönsk dægurlög. Heim kominn hringdi ég í ömmurnar fyrir austan og tilkynnti fjölgun í fjölskyldunni og fór svo að sofa. Jóhann Zoëga Barnið farið að þroskast og komnir páskar Nýr vefstjóri Ljósmóðurfélag Íslands hefur ráðið nýjan vefstjóra fyrir félagið og ljosmodir.is, Signýju Dóru Harðardóttur ljósmóður. Ritnefndin vildi forvitnast aðeins um hana og kynna hana fyrir félagsmönnum. Hvað getur þú sagt okkur um þig? Ég er fædd í Reykjavík, 17. júlí 1978. Fyrstu tvö árin bjó ég með fjölskyldunni í Mývatnssveit en eftir það fluttumst við til Hafnarfjarðar þar sem ég ólst upp og hef búið þar síðan. Átján ára ákvað ég að skoða heiminn aðeins og fór sem au-pair til Michigan í Bandaríkjunum, þar var ég í eitt ár að gæta þriggja barna. Núna bý ég í húsinu þar sem mamma og pabbi leigðu kjallaraíbúð í þegar ég var fimm ára. Ég er gift Ingva Þór Markússyni og eigum við saman þrjár dætur, Önnu Maríu 12 ára, Birnu Margréti 8 ára og Emelíu Guðbjörgu 4ra ára. Hvenær útskrifaðist þú sem hjúkrunar- fræðingur og ljósmóðir? Ég útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur í febrúar 2006 og mun útskrifast sem ljós- móðir nú í júní. Hvar hefur þú starfað? Með hjúkrunarnáminu vann ég á Sólvangi í Hafnarfirði þar sem ég flakkaði á milli deilda. Eftir útskrift hef ég lengst af starfað á lyflækningadeild St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Árið 2007 bauðst mér starf í einkageiranum þar sem ég starfaði í tæpt ár við heilsufarsskoðanir og ráðgjöf í fyrirtækjum og stofnunum. Á þeim tíma var ég barnshafandi og að fæðingarorlofi loknu ákvað ég að fara aftur í vakta- vinnu á St. Jósefsspítala. Þar starfaði ég með ljósmæðranáminu þar til sjúkra- húsinu var lokað 30. nóvember 2011. Þá lá leið mín á hjarta- og lungnaskurðdeild þar sem ég er að ljúka störfum og mun svo starfa á fæðingargangi og í áhættumæðraverndinni á LSH í sumar. Megum við eiga von á einhverjum breytingum á vef Ljósmæðrafélagsins og ljosmodir.is? Vefsíða Ljósmæðrafélagsins er frekar óvirk í dag svo stefnan er að yfirfara efni og upplýsingar sem getur gagnast ljósmæðrum og setja inn á síðuna. Ég hef einnig verið að hugsa um leiðir fyrir ljósmæður til að hafa áhrif, til dæmis með lokuðu spjalli eða fyrir- spurnakerfi. Varðandi ljosmodir.is er stefnan að halda áfram því góða starfi sem þar hefur verið unnið og ef til vill að bæta inn smá fréttum eða greinum, til dæmis um nýjungar, og hafa síðuna lifandi. Hver er framtíðarsýn þín í þessu nýja starfi sem vefstjóri fyrir Ljósmóðurfélagið og ljosmodir.is? Framtíðarsýn mín varðandi síðurnar er svolítið í takt við breytingarnar sem ég talaði um hér að ofan. Halda áfram að efla gott starf á ljosmodir.is og varðandi félagssíðuna finnst mér aðalatriðið vera að hún komi ljós- mæðrum að góðum notum í starfi og tengi þær við félagið. Signý Dóra Harðardóttir, nýr vefstjóri fyrir ljosmodir.is

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.