Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 25

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 25
25Ljósmæðrablaðið - júní 2012 kíkja í búðir, gaman gaman! Kvöldverður snæddur á Narfeyrarstofu og var lengi í minnum haft hversu gott lambakjötið var þar. Það er nú svo að góður matur gleður mannsins hjarta. Árið 2009 var Suðurland fyrir valinu. Allmargir merkisstaðir heimsóttir. Ekið um Vatnsleysuströnd, farið inn í Kálfatjarnarkirkju og Saltfisk- setrið í Grindavík. Á þessum slóðum ólst Guðbergur Bergsson rithöfundur upp, sumar ljósmæður voru kunnugar þessum stað og gátu bætt ýmsu við sem fararstjórinn vissi ekki. Á Eyrarbakka var Húsið skoðað og Lýður Pálsson safnvörður fræddi hópinn. Það sem var sérstakt við Húsið á þessum tíma voru merki um snarpan jarðskjálfta árið áður og minjar um miklar skemmdir frá þeim tíma. Í Flóanum var farið í Tré og list = listasmiðja í Forsæti sem Ólafur Sigur- jónsson og kona hans veita forstöðu. Fram kom hjá Ólafi að honum þætti afar ánægjulegt að taka á móti stórum hópi ljósmæðra og var með frásögn tengda þeirri stétt. Hjörtun í 40 ljósmæðrum tóku gleðihopp og ýmsar réttu betur úr sér. Næsti viðkomustaður var í listasmiðju Svanborgar Egilsdóttur ljósmóður á Selfossi. Höfðinglegar móttökur þar og gullfallegir munir skoðaðir – og keyptir, ekki hægt að standast freistingar. Kvöldverður var snæddur í Rauða Húsinu. Allt afar gómsætt og þjónustan frábær. Ef til vill nutum við þess að þáverandi formaður LMFÍ þekkti vel til þarna og vakti athygli á hópnum sem var væntan- legur. Þó þarf það ekki að vera, staðurinn hefur verið þekktur fyrir góðan mat. Ferðanefnd Ljósanna Árið 2010 var ferðanefnd komin til skjalanna, áður hafði stjórn Ljósanna haft allan veg og vanda af ferðalögunum. Ferðanefndin hóf störf af kappi og ætlunin var að fara í Þórsmörk. Af því varð ekki, gos í Eyjafjallajökli sá til þess. En nefndin dó ekki ráðalaus, hún átti önnur plön í sínum handraða. Farið var um Hvalfjörð, Saurbæjarkirkja skoðuð undir leiðsögn prestsins og var þetta mjög áhugavert. Margar höfðu aldrei í þessa kirkju komið. Í Skorradal bauð ein nefndarkona upp á súpu og brauð í sumarbústað sínum. Svo var ekið um Borgarfjörð, komið að Deildartunguhver og í Reykholt. Kvöldverður snæddur í Fossatúni. Ferða- félagar voru 37. Árið 2011 var farið í Bása við Þórs- mörk. Aldrei fór það svo að við kæmumst ekki þangað. Nú var ferðanefndin svo snjöll að fá rútubílstjóra sem var lærður leiðsögumaður og kunni skil á öllu sem fyrir augu bar á þessari leið. Í upphafi var Nesjavallaleið ekin og jarðfræðifræðsla fylgdi með. Mjög sérstakt var að komast inn að Básum því afleiðingar gossins árið áður sáust víða, snjórinn grár og trjá- gróður víða rykugur því aska fýkur áfram þó gos sé hætt. Í Básum var farið í stuttar gönguferðir að vali hverrar og einnar. Þarna grillaði ferðanefnd ljúffengt lambakjöt og bar fram margskonar meðlæti. Metaðsókn var í þessari ferð, alls 44 Ljósur. Á mörgum af þeim stöðum sem þessi ferðahópur hefur heimsótt hefur fólkinu á staðnum þótt mikið til þess koma að fá ljósmæður í heimsókn. Greinilega á sú stétt mikil ítök í hugum fólks. Þessar ferðir hafa verið mjög til gleði, en líka fróðlegar. Að sjálfsögðu er mikið spjallað, hefðbundinn rútubílasöngur hefur líka verið viðhafður, einkum á heimleið. Miðdegiskaffi í Perlunni Sú venja hefur skapast að hittast í Perlunni í miðdegiskaffi 1. miðvikudag hvers mánaðar. Sá misskilningur ríkir að þessi stund sé eingöngu fyrir Ljósurnar, en svo er ekki. Oft hafði verið imprað á því að eftir starfslok væri gaman fyrir ljós- mæður að hitta fyrri starfsfélaga á kaffi- húsi og halda þannig sambandi. Þetta kom til framkvæmda haustið 2005 og gafst vel. Mæting þarna er breytileg og þó lang- flestar tilheyri „Ljósunum“ koma stundum aðrar sem er mjög ánægjulegt. Hvað gera Ljósurnar? Það er nokkuð ljóst að þær gleðjast saman og viðhalda félagsanda sem er mikilvægur í hverju félagi. Við sem sendum þennan pistil frá okkur eigum þá von og trú að samheldni í Ljósudeildinni eigi þátt í að styrkja ímynd ljósmæðra. Nám ljósmæðra er gjörbreytt frá því sem var fyrir áratugum síðan eins og eðlilegt er í þróun. Það sem áður var má samt ekki gleymast, það er hluti af grunninum. Það er aðdáunarvert hvað mikil þekking og kraftur býr í ljósmóðurstéttinni og ef „Ljósurnar“ lifa áratugi í viðbót þá mun þessi kraftur væntanlega koma deildinni til góða. Stjórn Ljósanna, Anna, Ása, Inga, María og Þorgerður. Í Básum Súpa á Selfossi

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.