Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 14

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 14
14 Ljósmæðrablaðið - júní 2012 Hótandi fyrirburafæðing Fæðingarsaga Sigrún Ingvarsdóttir Nýútskrifuð ljósmóðir Á sumar og haustmisseri vinna nemendur á öðru ári í ljósmóðurfræði svokölluð dagbókarverkefni. Markmiðið er að ígrunda eigin störf og þá umönnun sem þær veita í samráði við umsjónarljósmæður. Sögð er saga úr klínísku starfi og síðan er umönnun skoðuð út frá gagnreyndri þekkingu og reynsluþekkingu. Verkefnin eru lærdómsrík á margan hátt því þarna gefst kostur á að ígrunda áhugaverð tilfelli úr starfsnáminu en einnig að kafa dýpra ofan í áhugaverða þætti sem skipta ljósmæður máli. Í þessu dagbókarverkefni er fjallað um konu sem leggst inn vegna hótandi fyrirburafæðingar. Konan hafði ekki eingöngu áhyggjur af ófæddu barni sínu og hvort það myndi koma of snemma í heiminn, hún hafði líka áhyggjur af því hvort hún hefði gert eitthvað sem hefði komið fæðingunni af stað fyrir tímann. Var eitthvað í sögu konunnar sem gaf til kynna aukna áhættu á fæðingu fyrir tímann? Getur líkamsrækt á meðgöngu aukið líkur á fyrir- burafæðingu? Er rúmlega góður kostur við þessar aðstæður? Þessum spurningum og mörgum fleirum er svarað í þessu verkefni. Anna Sigríður Vernharðsdóttir, ljósmóðir og klínískur lektor. INNGANGUR Í verknámi mínu á meðgöngu- og sængur- kvennadeild (22A) sinnti ég konu í hótandi fyrirburafæðingu. Konan verður kölluð Gunna í þessari umfjöllun en hún var 29 ára frumbyrja og var inniliggjandi á 22A vegna hótandi fyrirburafæðingar. Þegar Gunna var gengin 15 vikur hitti hún fæðingarlækni vegna keiluskurðar sem hún fór í árið 2006 en þá var leghálsinn 20 mm og lokaður. Tekið var vaginal strok hjá Gunnu þegar hún lagðist inn og ræktaðist GBS úr strokinu. Gunna fékk stera og tractocildreypi ásamt sýklalyfjameð- ferð þegar hún lagðist inn á fæðingargang en þá var hún gengin 24 vikur og 4 daga. Legháls var mældur við 25 vikur og var 11 mm þegar þrýst var á hann en annars 20 mm. Þegar ég hitti Gunnu fyrst var hún gengin 25 vikur og 3 daga, hún var á rúmlegu með wc-leyfi og hafði verið með staka samdrætti í nokkra daga. Gunna hafði miklar áhyggjur af heilsu ófædds barns síns auk þess sem hún og maður hennar höfðu fjárhagslegar áhyggjur þar sem innlögn Gunnu olli tals- verðu vinnutapi. Gunna var mikið að velta fyrir sér hvort hún hefði gert eitthvað til að koma fæðingunni af stað. Hún talaði um að hún hefði verið undir miklu álagi undan- farið, auk þess sem hún hafði áhyggjur af því að hafa farið of mikið í ræktina. Ég ræddi lengi við hana á vaktinni og bauð henni upp á viðtal við sálfræðing og félagsráðgjafa sem hún þáði. Tveim dögum síðar var ég aftur á vakt. Gunna hafði miklar áhyggjur af því að koma fæðingunni af stað ef hún hreyfði sig of mikið, hún gekk á salernið en þorði varla að fara í sturtu. Þennan dag var planið að Gunna myndi hreyfa sig meira og útskrifast heim næsta dag ef allt gengi vel. Gunna var fyrst og fremst mjög stressuð og hrædd, sérstaklega við að fara heim og vildi ekki taka neina áhættu með barnið. Fæðingarlæknir ræddi vel og lengi við Gunnu um fyrirhugaða útskrift og leið henni mun betur á eftir. Rætt var við Gunnu um áframhaldandi eftirlit eftir að hún færi heim, að hún yrði í mæðraeftirliti einu sinni í viku til að byrja með á Landspítalanum og myndi hitta fæðingarlækni og ljósmóður þar. Þegar ég kvaddi Gunnu í lok vaktar var hún sáttari og hafði minni áhyggjur af fyrir- hugaðri útskrift. FRÆÐILEG UMFJÖLLUN Hótandi fyrirburafæðing Fyrirburafæðing er skilgreind sem reglu- legir samdrættir sem valda breytingu á leghálsi eftir 20 vikna og fyrir 37 vikna meðgöngu en tíðni fyrirburafæðinga er um 6 til 10% í iðnvæddum löndum. Fyrir- burafæðing er helsta ástæða burðarmáls- dauða og fötlunar barna en mesta áhættan er ef fæðing verður fyrir 34 vikna meðgöngu. Þetta ýtir undir mikilvægi þess að veita meðferð sem miðar að því að lengja tímann fyrir fóstrið í móðurkviði svo framarlega sem ávinningurinn er meiri en áhættan. Ef ástand á meðgöngu skapast sem getur leitt til fyrirburafæðingar fer meðferð eftir meðgöngulengd og alvarleika (Gilbert, 2011; Lindsay, 2004). Greining og meðferð Ef kona kemur inn á fæðingardeild með reglulega samdrætti þarf að staðfesta hvort hún er komin í byrjandi fæðingu. Fæðing telst vera komin af stað ef samdrættir eru fleiri en fjórir á hverjum 20 mínútum, ef útvíkkun er orðin meiri en 2 cm og ef leghálsinn hefur þynnst um 80% eða meira. Til af fá greininguna hótandi fyrirburafæðing þarf því bæði að vera breyting á leghálsi og reglu- legir samdrættir. Ef meðgangan er komin lengra en 34 vikur er ekkert gert til að stoppa fæðinguna þar sem flestum börnum sem fæðast eftir 34 vikna meðgöngu farnast vel. Ef móðirin er aftur á móti gengin styttra en 34 vikur eru gefin lyf til að minnka samdrætti svo framarlega sem meiri ávinningur er af lengri meðgöngu fremur en fæðingu fyrir móður og barn (Gilbert, 2011; Medforth, Battersby, Evans, Marsh og Walker, 2009; Lindsay, 2004). Markmið meðferðar við hótandi fyrir- burafæðingu er að fresta yfirvofandi fæðingu til skemmri tíma með því að nota hríðahamlandi lyf. Tilgangur meðferðar er að fresta fæðingu í 48 klukkustundir til að sem bestur árangur náist af sterameðferð. Barksterar eru gefnir í tvo daga til örvunar lungnaþroska barnsins en notkun stera lækkar burðarmálsdauða, dregur úr líkum á glærhimnusjúkdómi og heilablæðingu fyrirbura. Að auki eru veitt GBS fyrir- byggjandi meðferð með sýklalyfjum (Hildur Harðardóttir, Ágústa Þ. Kristjánsdóttir, Bergrún S. Jónsdóttir og Ragnheiður I. Bjarnadóttir, 2003). Áður fyrr var rúmlega helsta meðferðin til að koma í veg fyrir fæðingu fyrir tímann en síðustu ár hefur verið aukin umræða um neikvæðar aukaverkanir rúmlegu á andlega og líkamlega heilsu móður. Þær neikvæðu aukaverkanir sem nefndar hafa verið eru til dæmis rýrnun á þverrákóttum vöðvum, úrkölkun beina, vökvatap, þyngdartap, aukin hætta á blóðtappa, auk þess sem rúmlega hefur neikvæð áhrif á andlega líðan og bati eftir fæðingu verður lengri (Maloni, 2010; Lindsay, 2004; Tomasi og Johnson, 2001). Í fræðilegri samantekt Maloni N E M A V E R K E F N I

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.