Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 36
36 Ljósmæðrablaðið - júní 2012
Horft til framtíðar:
Tækifæri og áskoranir í menntun og starfi ljósmæðra
Fundur og vinnusmiðja á vegum Norður-
landasamtaka ljósmæðra (NJF) var haldin
í Reykjavík dagana 26. og 27. mars 2012
um menntun og starf ljósmæðra á Norður-
löndum.
Vinnusmiðjan var skipulögð af Hildi
Kristjánsdóttur, forseta NJF, og Helgu Gott-
freðsdóttur, námsbrautarstjóra í ljósmóður-
fræðum við Háskóla Íslands. Ljósmæðra-
félag Íslands og Háskóli Íslands styrktu
vinnusmiðjuna.
Þátttakendur voru:
Danmörk:
Lillian Bondo
Formaður Ljósmæðrafélags Danmerkur.
lib@jordemoderforeningen.dk
Finnland:
Eva Matintupa
Námsstjóri framhaldsnáms og lektor við
Novia University of applied sciences,
Vaasa. Eva var jafnframt fulltrúi stjórnar
finnska ljósmæðrafélagsins á fundinum.
eva.matintupa@novia.fi
Anna-Kaisa Pienimaa
lektor og forstöðumaður náms í ljós-
móðurfræði. Metropolia University of
applied sciences, Helsinki.
anna-kaisa.pienimaa@metropolia.fi
Ísland:
Esther Ármannsdóttir,
Formaður Ljósmæðrafélags Íslands.
formadur@ljosmaedrafelag.is
Berglind Hálfdánsdóttir,
aðjúnkt, námsbraut í ljósmóðurfræði,
Háskóli Íslands. beh6@hi.is
Helga Gottfreðsdóttir,
dósent, námsbrautarstjóri, námsbraut í
ljósmóðurfræði. Háskóli Íslands.
helgagot@hi.is
Hildur Kristjánsdóttir,
forseti Norðurlandasamtaka ljósmæðra og
aðjúnkt við námsbraut í ljósmóðurfræði.
Háskóli Íslands. hildurkr@simnet.is
Noregur:
Marit Heiberg,
formaður Ljósmæðrafélags Noregs.
marit@jordmorforeningen.no
Kari Bjerck,
lektor við University of Tromsö, kari.
bjerck@uit.no
Mirjam Lukasse,
lektor, Oslo and Akershus University
College, mirjam.lukasse@hioa.no
Svíþjóð:
Ingela Wiklund,
formaður sænska ljósmæðrafélagsins.
ingela.wiklund@barnmorskeforbundet.se
Kerstin Belfrage,
vårdförbundet, Svíþjóð.
kerstin.belfrage@vardforbundet.se
Marianne Johansson,
lektor við Borås Högskola University.
marianne.johansson@hb.se
Tilgangur fundarins var að ræða
menntunarmál ljósmæðra á Norður-
löndunum og starfsvettvang stéttarinnar.
Ástæða þess að fundurinn var haldinn var
að á stjórnarfundi Norðurlandasamtaka
ljósmæðra (NJF) sem haldinn var í Stokk-
hólmi á síðasta ári varð mikil umræða um
menntun ljósmæðra og hvort verið væri að
mennta ljósmæður til þeirra starfa sem þær
munu svo sinna. Ljóst var að þar var hvorki
tími til þess að ræða þessi mál til hlítar, né
heldur voru sérfræðingar á sviði mennt-
unar í hópnum. Að tillögu Ingelu Wiklund,
formanns sænska ljósmæðrafélagsins, var
ákveðið að Hildur Kristjánsdóttir, forseti
NJF, hlutaðist til um að koma fundinum á og
stýra honum. Undirtektir voru mjög góðar
þegar fundarboð var sent út í janúar síðast-
liðnum og ánægja með að halda fundinn
á Íslandi þar sem ljósmæðramenntun er
sennilega einna best meðal þessara landa og
landið að auki ódýrt fyrir ferðamenn.
Á fundinn mættu formenn ljósmæðra-
félaganna (nema frá Finnlandi) og áhrifafólk
innan menntakerfisins í löndunum sem
þekkir jafnframt vel til menntunarmála og
starfsvettvangs ljósmæðra, hvað er líkt og
hvað er ólíkt og hefur ákveðna framtíðarsýn.
Því miður sáu ljósmæður frá Færeyjum sér
ekki fært að koma, en þess ber að geta að
færeyskar ljósmæður sækja menntun sína
aðallega til Danmerkur og Noregs.
Menntun er mikilvægt umræðuefni meðal
félaga allra landanna og að mörgu leyti
eru menntamál ljósmæðra á krossgötum í
dag. Verið er að endurskipuleggja námið
í flestum landanna og einnig er verið að
huga að endurskipulagningu hjúkrunar-
náms í Svíþjóð og Noregi. Upplýst var á
Frá vinstri: Marit Heiberg formaður norska ljósmæðrafélagsins, Kerstin Belfrage frá
Vårdförbundet i Svíþjóð, Helga Gottfreðsdóttir dósent, Lillian Bondo formaður danska ljós-
mæðrafélagsins og Berglind Hálfdánsdóttir