Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 33

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 33
33Ljósmæðrablaðið - júní 2012 Norðurlandsamtök ljósmæðra (NJF) Stjórnarfundur Norðurlandsamtaka ljós- mæðra (NJF) var haldinn í Stokkhólmi 28. maí 2011. Fundinn sátu að þessu sinni fulltrúar allra Norðurlandanna og var hann haldinn í höfuðstöðvum sænska ljósmæðra- félagsins. Hildur Kristjánsdóttir, forseti NJF, sótti fundinn fyrir Íslands hönd. Sænska ljósmæðrafélagið hafði dagana á undan haldið veglega 2ja daga ráðstefnu í tilefni af 300 ára afmæli ljósmæðramennt- unar í Svíþjóð og 125 ára afmæli félagsins. Í ráðstefnulok var stjórnarmeðlimum boðið til veglegrar veislu. Allnokkrar íslenskar ljós- mæður tóku þátt í þessari ráðstefnu og voru með erindi þar. Ingela Wiklund, formaður sænska ljósmæðrafélagsins, bauð fundargesti velkomna og síðan tók forseti samtakanna og fundarstjóri við fundinum. Fundarmenn kynntu sig stuttlega. Að því loknu var gengið til hefðbundinnar dagskrár sem fólst meðal annars í; samþykkt fundarboðunar, vali á fundarritara og samþykkt og undirskrift fundargerðar síðasta fundar sem var haldinn í Kaup- mannahöfn 2-3. júní 2011. Forseti samtakanna flutti skýrslu sína og póstlisti stjórnarmeðlima var uppfærður. Í ljósi samþykktar stjórnar frá 2010 og þess að aðeins var einn dagur til fundarsetu var ákveðið að tími hvers lands til þess að fjalla um helstu mál síns félags yrði verulega styttur og höfðu stjórnarmeðlimir verið hvattir til þess að kynna sér skýrslur landanna fyrirfram. Lögð var áhersla á að kynna í örstuttu máli það helsta sem fulltrúi hvers lands vildi ræða, en fyrst og fremst að svara fyrirspurnum um innihald skýrslnanna. Hér á eftir verður stiklað á stóru úr skýrslum landanna og umræðum um þær og bent á að skýrslur landanna eru til á skrif- stofu félagsins og félagsmenn geta nálgast þær þar. Danmörk Fjöldi félaga jókst aðeins á starfsárinu þar sem nýútskrifaðar ljósmæður eru fleiri en þær sem hætta. Áhyggjuefni er að margar nýútskrifaðar ljósmæður fá ekki vinnu og upplifa að nám þeirra hafi verið til einskis. Félagið er áhyggjufullt yfir þessari þróun og lítur á þetta sem eitt stærsta verkefni sitt núna. Margar þessara ljósmæðra hafa fengið vinnu í nágrannalöndunum en aðrar hafa einnig farið til Englands og Ástralíu og Nýja-Sjálands. Það jákvæða er að svo virðist sem starfssvið ljósmæðra sé nú víðara og sem dæmi starfa æ fleiri ljósmæður nú á sængurkvennadeildum en áður. Danskar ljósmæður hafa ekki farið varhluta af heimskreppunni og sökum þess hvernig atvinnuástandið er í stéttinni hafa allmargar ljósmæður misst vinnuna, margar hafa samþykkt allskyns vinnuskilyrði sem ekki endilega samræmast kjarasamningum, eins og til dæmis að fá ekki fastráðningu og sumar fá bara vinnu frá degi til dags. Þetta skapar mikið óöryggi innan stéttarinnar, líka hjá þeim sem eru með fastráðningu, og hefur áhrif á nýliðun og atvinnuþátttöku nýútskrifaðra ljósmæðra, eins og áður hefur verið vikið að. Ljósmæður hafa áhyggjur af því að ekki hefur tekist að innleiða klínískar leiðbeiningar um umönnun kvenna í barneignarferli nema að takmörkuðu leyti. Rannsóknir hafa sýnt að ákveðin atriði eins og blóðprufur og skimanir eru framkvæmdar á ákveðnum tíma á meðgöngunni og virðist sá þáttur hafa verið innleiddur að mestu leyti. Atriði eins og framboð á foreldra- fræðslu er lélegt, ekki hefur tekist að tryggja samfellu í þjónustu ljósmæðra til kvenna í virkri fæðingu og engin eða léleg eftirfylgd er til sængurkvenna sem útskrifast snemma og hefur hlutfall endurinnlagna þeirra aukist verulega. Önnur áhrif kreppunnar eru að erfitt er fyrir ljósmæður að fara í framhaldsnám þar sem nánast engir styrkir eru í boði til þess. Þrýstingur er á að ljósmæður útskrifist með faglega meistaragráðu í sparnaðar- skyni og það gæti veitt þeim inngöngu í framhaldsnám í Svíþjóð til dæmis, en Ljósmæðrafélagið vill frekar að þær fái kandidatsgráðu (120 ECTS) í ljósmóður- fræðum. Finnland Félagar í Ljósmæðrafélagi Finnlands eru nú rúmlega 4100 og atvinnuleysi er nú lítið. Félagið hefur hvatt ötullega til þess að leiðbeiningar um meðgönguvernd verði gerðar í Finnlandi og er sú vinna loksins hafin. Á árinu voru gefnar út gagnreyndar leiðbeiningar um aðferðir ljósmæðra til þess að koma í veg fyrir og/eða draga verulega úr 3ju og 4ju gráðu rifum. Nú eru starfandi 31 fæðingardeild í landinu og gert er ráð fyrir að fimm svokall- aðar sérfræðieiningar verði starfræktar. Þetta mun auka enn á ójöfnuð í þjónustu að mati félagsins. Árið 2009 fæddust 60794 börn í Finn- landi sem er nær 2ja% aukning frá árinu áður. Meðalaldur fæðandi kvenna var þetta ár 30.1 ár og hlutfall kvenna 35 ára og eldri 18,7%. Þriðja hver kona var með líkams- þyngdarstuðul 25 eða hærri (ofþyngd) í upphafi meðgöngu og 12% voru með 30 eða hærri (offita). Hlutfall kvenna sem reykir á meðgöngu er mjög hátt eða 15%. Meira um tölfræðilegar upplýsingar frá Finnlandi 2009 má finna á slóðinni: http:// www.stakes.fi/tilastot/tilastotiedotteet/2010/ Tr26_10.pdf Færeyjar Meðlimir félagsins eru nú 25 ljósmæður. Á árinu náðu þær agnarlitlum árangri hvað varðar launahækkun eða 1% hækkun launa. Skýr skilaboð voru um að ekki næðist hærri upphæð og hefur félagið lagt þungann í að fá stytta vinnuviku úr 40 stundum í 35 stundir. wCOSMIC rafræn sjúkraskrá var tekin í notkun í Færeyjum 2009 og átti að gera úttekt á henni 2011. Ljósmæður hafa enn ekki fengið meðgöngu- og fæðingarhluta kerfisins sem er til og vegna efnahags- ástandsins eru þær ekki bjartsýnar á að það verði í bráð. Atvinnuleysi er nokkuð meðal ljósmæðra og sem dæmi sóttu 20 um afleysingastörf í sumar, sem yfirleitt örfáir sækja um. Ísland Vísað er til skýrslu formanns LMFÍ frá aðalfundi félagsins. Sérstaklega var rætt um fækkun fæðingarstaða og fyrirhugaðar Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir, forseti NJF og verkefnisstjóri hjá embætti Landlæknis

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.