Ljósmæðrablaðið - 01.06.2012, Blaðsíða 30
30 Ljósmæðrablaðið - júní 2012
Skýrsla stjórnar
Ljósmæðrafélags Íslands
Stjórnarfundir
Haldnir hafa verið 18 stjórnarfundir frá
síðasta aðalfundi og eru þeir að meðaltali
haldnir á tveggja vikna fresti. Þessir 11
mánuðir sem ég hef setið sem formaður
hefur að mestu verið tími aðlögunar og
mikill tími farið í að feta nýja slóðir í nýju
starfi. Vil ég þakka stjórninni sérstaklega
sem og Guðlaugu Einarsdóttur, fyrrverandi
formanni, fyrir ómetanlegan stuðning í
nýja starfinu. Komið hafa erfiðir tímar
sem reynt hefur á, sérstaklega vil ég nefna
kjarasamningagerðina sl. vor. Umhverfi
kjaraviðræðna er flókið og tekur langan
tíma að setja sig inn í það. Þegar semja á
fyrir heilan hóp getur ábyrgðartilfinningin
verið yfirþyrmandi og var það í raun fyrir
mig. Ég var hrædd um að bregðast trausti
ykkar og valda vonbrigðum. Í raun hrædd
við að mistakast.
Vorið einkenndist af kjarafundum þar
sem fundað var stíft með samninganefnd
ríkisins. Samstarfið við BHM gekk mjög
vel og var það mikill styrkur og stuðningur
að geta leitað til reyndari manna í kjara-
viðræðunum. Allt fór þó vel að lokum með
góðra manna hjálp.
Markmiðið var að ná til baka tæplega
10% kaupmáttarskerðingu sem varð
á árunum 2009–2010, en ljóst þykir
að því markmiði hefur ekki verið náð.
Lítil þátttaka varð í netkosningu um
kjarasamninginn og hefur það kannski
einkennt árið 2011 hve dauft er yfir
fólki. Það á ekki bara við um ljósmæður
heldur almennt í samfélaginu. Fólk á ekki
mikla orku inni nema til að sinna sínum
venjubundnu störfum. Félagið hefur ekki
farið varhluta af því þar sem frekar fámennt
hefur verið á félagsfundum hjá félaginu.
Breytingar í stjórn
Sú breyting varð á stjórn félagsins á
vormánuðum 2011 að Helga Sigurðardóttir
varaformaður fór úr stjórn eftir að hafa
setið þar farsællega í þrjú ár. Hún fór til
annarra starfa. Í stað hennar kom Guðrún
Gunnlaugsdóttir sem kosin var inn sem
vararitari en fyllti í skarð Helgu sem
varaformaður. Einnig kom ný inn í stjórn,
Björg Sigurðardóttir, sem sat í kjaranefnd.
Hún kom inn í stað Jónínu Birgisdóttur,
meðstjórnanda og formann kjaranefndar,
sem einnig fór til nýrra starfa.
Starfandi sex manna stjórn fékk umboð
til starfa á félagsfundi sem haldinn var 9.
júní sl. þar sem samþykkt var að stjórnin
sæti með sex manns innanborðs í stað sjö
til næsta aðalfundar.
Kynning á nýrri stjórn og nýjum
formanni LMFÍ
Til að kynna nýja stjórn fór formaður
á alla stærstu vinnustaði ljósmæðra á
landsbyggðinni, venjulega í fylgd eins úr
stjórninni. Keyrt var á Selfoss, Akranes
og Reykjanesbæ en flogið til Akureyrar,
á Ísafjörð og í Neskaupsstað. Það var
ótrúlega gaman og gott var fyrir mig
sem nýjan formann að sjá aðstöðuna sem
nýjum fjölskyldum er boðið upp á úti á
landi og eins að sjá vinnuaðstöðu ljós-
mæðra á hverjum stað. Sammerkt með
nær öllum ljósmæðrunum voru áhyggjur
af þróun ljósmæðraþjónustu og uggur um
starfsöryggi sitt. Einnig ótti um hag fólks
á barneignaraldri á hverjum stað og þróun
byggðar í landinu.
Arfur til handa ljósmæðrum
Ljósmæðrafélagið heldur áfram að
styrkja rannsóknir og nýjungar í ljósmóður-
fræðinni í gegnum rannsóknar- og þróunar-
sjóð félagsins og voru styrkvilyrði veitt upp
á rúmlega tvær milljónir á síðasta ári. Nýr
sjóður mun líta dagsins ljós á árinu 2012 og
gera okkur kleift að styrkja ljósmæður enn
frekar til sí- og endurmenntunar.
Á haustmánuðum 2011 lést Jóhanna
Friðmey Hrafnfjörð ljósmóðir. Við andlát
sitt eftirlét hún Ljósmæðrafélaginu íbúð
sína að Ásvallagötu 25 í Reykjavík. Langar
mig að minnast hennar með nokkrum
orðum. Jóhanna fæddist að Hrafns-
fjarðareyri í Norður-Ísafjarðarsýslu árið
1925. Ljósmæðrapróf fékk hún frá Ljós-
mæðraskóla Íslands LMSÍ 1947. Eftir
útskrift starfaði hún sem ljósmóðir á
Patreksfirði í eitt ár. Eftir stutta dvöl
fyrir vestan kom hún í höfuðstaðinn
og var aðstoðarljósmóðir á Landspítala
fæðingardeild í fimm ár (1948-1953). Hún
stofnaði fæðingarheimili í Kópavogi á
heimili sínu árið 1958 og rak það til ársins
1969 eða í 11 ár. Þar fæddust rúmlega
1.600 börn. Jóhanna var tvígift en barnlaus
og arfleiðir Ljósmæðrafélagið eins og
fyrr segir, að andvirði íbúðar sinnar og
ósk hennar er sú að það gangi í að stofna
minningarsjóð í hennar nafni. Ákveðið
hefur verið að sjóðurinn beri nafnið Minn-
ingarsjóðurinn. Sjóðanefnd félagsins hefur
verið falið að útbúa nýja skipulagsskrá og
úthlutunarreglur fyrir þennan nýja sjóð.
Málsókn
Sú staða kom upp sl. haust eftir töluvert
langan aðdraganda að Ljósmæðrafélagið
tók þá afstöðu að ekki yrði annað hægt
en að styðja tvær ljósmæður í málaferlum
vegna niðurlagningar á störfum þeirra.
Ekki náðist sátt við vinnuveitenda þeirra
um hvernig staðið skyldi löglega sem og
Esther formaður og Margrét fundarstjóri undirbúa kynningu á lagabreytingum.