Ljósmæðrablaðið - 01.12.2011, Page 35
35Ljósmæðrablaðið - desember 2011
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Um áramótin 2009-2010 urðu miklar
breytingar á starfsemi fæðingadeildar
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSu).
Vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu
var lögð niður vaktþjónusta fæðinga-
skurð- og svæfingalækna við stofnunina.
Miklar umræður spunnust innan
stofnunarinnar sem utan, hvort verjandi
væri að halda úti fæðingaþjónustu við
breytt þjónustustig stofnunarinnar. Ljós-
mæður HSu voru einhuga um það að
halda skyldi úti fæðingarþjónustu þrátt
fyrir að vaktir lækna hafi verið aflagðar.
Farið var út í mikla vinnu við að undir-
búa þessa breytingu og haldnir voru
fundir innan ljósmæðrahópsins til að
halda öllum upplýstum og skipuleggja.
Farið var í saumana á plaggi Land-
læknisembættisins um Val á fæðingastað
og þjónustan skipulögð með það sem
viðmið.
Haldnir voru fundir með yfirmönnum
deilda fæðinga- og kvennasviðs Land-
spítala þar sem undirbúin var samvinna
milli sjúkrahúsana. Ljóst var að náin
samvinna yrði að vera milli ljósmæðra
á HSu og starfsfólks fæðinga- og
kvennadeildar Landspítala þar sem hún
er okkar bakhjarl. Rétt fyrir áramótin
2009-2010 var svo formlega undir-
ritaður samningur á milli stofnanana um
samstarf. Í stuttu máli sagt hefur það
samstarf gengið mjög vel.
Hópur þeirra kvenna sem áttu þess kost
að fæða á HSu eftir breytingar minnkaði,
þar sem allar áhættufæðingar fluttust yfir
á Landspítala. Skilyrði fyrir því að fæða
á fæðingastað sem flokkaður er sem D1
fæðingastaður, eins og HSu er í dag, eru
eftirfarandi:
• Fyrirfram ákveðið og upplýst val
konu.
• Hraust kona, eðlileg meðganga, 37-42
vikur og sjálfkrafa sótt.
• Ekki fyrirsjáanleg vandamál í
fæðingunni.
• Ljósmóðir og/eða læknir til staðar
sem vill taka að sér fæðingar og
hafa þjálfun og færni í fæðingahjálp
(Landlæknisembættið, 2007).
Þetta breytingarferli hefur að
sjálfsögðu ekki eingöngu verið dans
á rósum, langt frá því og hefur það
verið snúið og erfitt á köflum. Það sem
hefur verið erfiðast í ferlinu er óvissan
um það hvað verður. Ekki hefur verið
gefin út nein stefnumörkun er varðar
fæðingaþjónustu í landinu og engin veit
hvað morgundagurinn ber í skauti sér.
Einnig er óvissa um það hvort konur og
fjölskyldur þeirra séu sáttar við þjónstuna
á HSu og muni nota hana í framtíðinni.
Einn mesti kosturinn í þessu
breytingarferli var sá að ljós-
mæðrahópurinn á HSu var einhuga um að
láta þessar breytingar ganga upp og það
held ég að hafi skipt sköpum í þessu ferli.
Ýmsar fleiri breytingar hafa átt sér
stað á fæðingadeildinni þar sem þurft
hefur að hagræða og samnýta starfskrafta
innan stofnunarinnar. Í febrúar eftir
að breytingin varð á fæðingadeildinni
tóku ljósmæðurnar að sér að vera með
hjúkrunarvakt á öldrunardeildum HSu
sem eru tvær með samtals 40 skjól-
stæðingum. Um áramótin síðustu varð
svo róttæk breyting á mæðravernd
innan HSu þar sem öll mæðravernd á
heilsugæslustöðinni á Selfossi var flutt á
fæðingadeildina þar sem ljósmæður á vakt
sinna mæðravernd. Einnig tók undirrituð
við yfirumsjón allrar mæðraverndar innan
HSu, sem sinnt er á fjórum heilsugæslu-
stöðvum utan fæðingadeildarinnar, og
sér um skipulagningu á henni. Eins og
áður sinnum við einnig yfirgripsmikilli
göngudeildarþjónustu og símaþjónustu. Á
göngudeildinni sinnum við bæði konum í
eðlilegri meðgöngu og áhættumeðgöngu
og þá í samvinnu við fæðingalækna á
Landspítala.
Nú eru liðin tæplega tvö ár síðan
breytingin var gerð og fyrsta árið fæddu
hjá okkur 97 konur en höfðu fætt hjá
okkur 165 konur árið áður. Svipaður
fjöldi kvenna hefur svo fætt á HSu það
sem af er árinu 2011 eins og á sama tíma
árið 2010. Árið 2010 þurfti að flytja 16
konur sem byrjaðar voru í fæðingu og 6
konur voru fluttar eftir fæðingu vegna
fastrar fylgju eða vegna þess að þær hlutu
3°rifu. Tvö börn voru flutt á vökudeild,
eitt sem var 26 vikna fyrirburi og fæddist
óvænt á HSu og hitt var barn sem fæddist
á heilsugæslustöðinni í Þorlákshöfn.
Við teljum að það hafi gengið mjög
vel og sú flokkun sem við förum eftir
virki, flutningstíðni er svipuð og gerist á
sambærilegum stofnunum annars staðar í
heiminum.
Að sjálfsögðu myndum við ljós-
mæðurnar á HSu kjósa að geta þjónustað
stærri hóp kvenna í fæðingu og haft
áfram sólahringsvaktir sérfræðilækna en
þar sem því er ekki að heilsa þá erum
við mjög ánægðar að geta haldið úti
fæðingaþjónustu fyrir konur í eðlilegri
meðgöngu og sængurlegu.
Þegar þetta er skrifað þá hafa fjárlögin
fyrir árið 2012 verið lögð fram og ljóst
að enn þarf að skera niður en það er von
okkar ljósmæðra á HSu að sú þjónusta
sem við bjóðum uppá hafi sannað sig og
fái náð fyrir augum yfirboðaranna og fái
að lifa og dafna um ókomna framtíð.
Sigrún Kristjánsdóttir,
yfirljósmóðir HSu
Heimild:
Landlæknisembættið (2007). Leiðbeiningar um val
á fæðingarstað. Sótt 5. apríl 2008 af http://www.
landlaeknir.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=3304.
Sigrún með nýbura í fanginu