Ljósmæðrablaðið - 01.12.2011, Blaðsíða 37
37Ljósmæðrablaðið - desember 2011
Höfn í Hornafirði
Þeir sem hafa skerta starfsorku, eru fatlaðir eða hreyfihamlaðir geta fengið
aukalán til að gera breytingar á íbúðarhúsnæði eða til að kaupa eða byggja
húsnæði vegna sérþarfa sinna. Lánið kemur til viðbótar 20 milljóna króna
hámarksláni Íbúðalánasjóðs eða öðrum fasteignaveðlánum að hámarki 20
milljónum. Einnig er heimilt að veita aukalán til forsvarsmanna þeirra sem
búa við sérþarfir.
Að vera ljósmóðir á Höfn er mjög fjöl-
breytt og að flestu leyti gefandi starf. Öll
mæðravernd heyrir að sjálfssögðu undir
mig og þær fæðingar sem hér eru. Á
þessu ári hafa um það bil 40 konur verið í
mæðraverndinni og að auki koma alltaf
nokkrar aukalega á sumrin sem annaðhvort
eru hér að heimsækja ættingja eða eru á
ferðalagi.
Höfn flokkast sem fæðingastaður D
og förum við eftir þeim viðmiðum þegar
verið er að ráðgera fæðingar, konurnar fá
einnig upplýsingar um hvað við höfum
uppá að bjóða hér og taka þær því upplýsta
ákvörðun um hvar þær áætla fæðingu. Þetta
ár hefur verið nokkuð sérstakt að því leyti
til að í upphafi ætluðu nær allar konur sem
uppfylltu skilyrði að fæða hér á staðnum.
Annað kom þó á daginn því að þær greindust
mjög margar á síðustu vikunum með hina og
þessa sjúkdóma sem komu í veg fyrir að þær
gætu fætt hér. Fæðingar hafa því aðeins verið
3 (ein frumbyrja og 2 fjölbyrjur) á árinu af
þeim 19 sem áætlaðar voru í upphafi.
Aðstaðan sem við höfum til fæðinga hér
er býsna góð. Á heilsugæslustöðinni er
fæðingastofa þar sem er baðkar, sturta og
glaðloft ef vill. Ótrúlega fáar konur nýta sér
þó þessa verkjameðhöndlun, af hverju veit
ég ekki. Ég held helst að það sé innbyggt
í hornfirsku þjóðarsálina að þurfa ekki
neina verkjameðhöndlun í fæðingu. Margar
konur kjósa þó að fæða heima hjá sér og
gera það, stundum er það ekki ákveðið
fyrr en í fæðingunni sjálfri. Ef konan getur
ekki hugsað sér að fara neitt þá klárum við
fæðinguna heima.
Auk þessa sé ég um ungbarnaeftirlit fyrstu
18 mánuðina svo að hver kona og fjölskylda
sem kemur til mín eru hjá mér í 2 ár og
lengur í þeim tilfellum þar sem annað barn
kemur strax til sögunnar. Óhjákvæmilega
kynnist ég fjölskyldunni ágætlega á öllum
þessum tíma og það leiðir til þess að oft er
ég orðin nokkurskonar „alt mulig mand“ hjá
fólkinu og þau leita til mín með hitt og þetta
sem er kannski ekki nákvæmlega samkvæmt
starfslýsingu ljósmæðra. Þetta finnst mér
skemmtilegt og að glíma við allskonar
vandamál og spurningar sem koma upp hjá
fjölskyldum hefur aukið kunnáttu mína og
víkkað sjóndeildarhringinn.
Ég held að ég hljóti að vera sú ljósmóðir á
Íslandi sem nýtur mestra forréttinda, ég hef
sjálfstæði, fjölbreytni í starfi og möguleika á
að fylgja fjölskyldum frá upphafi og þar til
barnið er komið vel á legg. Hvað er hægt að
biðja um meira???
Áslaug Valsdóttir ljósmóðir
Áslaug Valsdóttir á Höfn