Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 10
SAMKEPPNI Félag atvinnurekenda
(FA) hefur sent Póst- og fjarskipta-
stofnun (PFS) bréf þar sem þess
er farið á leit að stofnunin vísi frá
umsókn Íslandspósts ohf. (ÍSP) um
2,6 milljarða afturvirkt framlag úr
jöfnunarsjóði alþjónustu. ÍSP hyggst
nota peninginn úr sjóðnum, en sem
stendur er ekki til króna með gati í
sjóðnum, til að endurgreiða neyðar-
lán frá ríkissjóði.
ÍSP sótti um framlag úr sjóðnum
í október vegna ófjármagnaðrar
alþjónustubyrði áranna 2013-17.
Beiðni félagsins byggðist á skýrslu
Copenhagen Economics frá síðasta
vori um alþjónustubyrði ÍSP. Verk-
kaupi skýrslunnar var ÍSP.
PFS svaraði ÍSP í nóvember en í
svarbréfinu kom fram að stofnunin
hygðist vísa frá hluta beiðninnar þar
sem félagið hefði nú þegar fengið
þá hluta bætta í gegnum gjaldskrá
einkaréttar. Hvað kostnað af erlend-
um sendingum varðar sagði PFS að
ÍSP hefði ekki haldið þeirri ástæðu
á lofti fyrr en nýlega. Þá kemur fram
í frumvarpi til nýrra póstlaga að sá
kostnaður hafi ekki verið talinn til
alþjónustubyrðar erlendis. ÍSP var
veittur frestur til andmæla til upp-
hafs árs en sá frestur var nýverið
framlengdur til mánaðarloka.
Í bréfi FA eru tilgreindar fjórar
röksemdir fyrir því að vísa beri
umsókninni frá. Í fyrsta lagi séu ekki
uppfyllt skilyrði fyrir efnismeðferð
beiðninnar þar sem hún sé aftur-
virk. Umsóknir í sjóðinn skuli berast
fyrir næstkomandi ár en umsókn
ÍSP sé aftur á móti afturvirk.
Í öðru lagi er af hálfu FA vikið að
því, sem áður hefur komið fram í
ákvörðunum PFS, að ÍSP hafi nú
þegar fengið alþjónustubyrði sína
bætta í gegnum gjaldskrá einkarétt-
ar. Þá er bent á að tap ÍSP af sam-
keppnisrekstri megi rekja til þeirrar
ákvörðunar félagsins að velta ekki
kostnaði af erlendum sendingum út
í verðið til neytandans. Að endingu
er bent á að verði sjóðurinn virkj-
aður þurfi samkeppnisaðilar ÍSP,
og ÍSP sjálfur, að greiða í sjóðinn og
væru því að „standa straum af tap-
rekstri á samkeppnishlið ÍSP“.
„Við áttum okkur ekki alveg á því
hví það tekur svona langan tíma að
afgreiða þetta. Á sama hátt skiljum
við ekki hví Samkeppniseftirlitið
hefur ekki gert athugasemdir við
mjög augljós brot ÍSP á sátt við
eftirlitið,“ segir Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri FA.
Að mati Ólafs sé aðeins nauðsyn-
legt að vera læs til að sjá að ekki sé
grundvöllur fyrir umsókn ÍSP í jöfn-
unarsjóðinn í því lagaumhverfi sem
er í gildi.
„Þetta er eitthvert pólitískt leikrit
sett upp til að telja fólki trú um að
félagið geti endurgreitt lánið. Það er
alveg horft fram hjá því að sjóður-
inn er tómur og ÍSP er lögum sam-
kvæmt of seint að sækja um fram-
lagið. Samt er þessum möguleika
teflt fram við almenning og fjárlaga-
nefnd Alþingis,“ segir Ólafur.
Verði fallist á umsókn ÍSP úr
sjóðnum gæti sú staða komið upp að
ríkið þyrfti að leggja fé í sjóðinn. Þá
fjármuni myndi félagið síðan nota til
að endurgreiða ríkinu. „Ef það gerist
verður þetta leikrit orðið að farsa,“
segir Ólafur. joli@frettabladid.is
Krefst þess að umsókn
Póstsins verði vísað frá
Félag atvinnurekenda telur engin lagaskilyrði fyrir hendi til að taka umsókn
Íslandspósts um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu til meðferðar. Um pólitískt
leikrit sé að ræða til að telja fólki trú um að félagið geti endurgreitt neyðarlán.
ORKUMÁL Í nýrri skýrslu raforku-
hóps Orkuspárnefndar eru dregnar
fram þrjár sviðsmyndir um raforku-
notkun 2018-2050. Er þetta í annað
sinn sem hópurinn tekur saman
slíkar sviðsmyndir sem viðbót við
árlega spá nefndarinnar.
Fyrsta sviðsmyndin er „Hægar
framfarir“ en þar er gert ráð fyrir
minni hagvexti en í raforkuspá. Þá
er lögð minni áhersla á umhverfis-
mál og orkuskipti. Sýnir myndin
árlegan vöxt almennrar raforku-
notkunar upp á 0,9 prósent en sam-
kvæmt Raforkuspá er árlegur vöxtur
1,7 prósent. Árið 2050 yrði almenn
notkun 5.450 gígavattsstundir sem
er 35 prósenta aukning.
Önnur sviðsmyndin er „Græn
framtíð“ þar sem gert er ráð fyrir
meiri hagvexti, aukinni áherslu á
umhverfismál og hraðari orkuskipt-
um heldur en í Raforkuspá. Þannig
yrði árlegur vöxtur almennrar raf-
orkunotkunar 2,2 prósent og myndi
notkunin tvöfaldast á spátímanum
og verða um 8.400 gígavattsstundir
árið 2050.
Þriðja sviðsmyndin er „Aukin
stórnotkun“ og byggir á forsendum
Raforkuspár en gerir að auki ráð
fyrir aukinni stórnotkun raforku. Er
þar byggt á þeirri forsendu að þróun
stórnotkunar verði áfram lík og hún
var á tímabilinu 2008-2020. Miðað
við það yrði sameiginleg orkuþörf
almenna markaðarins og stórnot-
enda 33.400 gígavattsstundir árið
2050. – sar
Þrjár sviðsmyndir um raforkunotkun
Orkuspárnefnd hefur birt sviðsmyndir sínar um raforkunotkun.
Ef það gerist verður
þetta leikrit orðið
að farsa.
Ólafur Stephensen,
framkvæmdastjóri
Félags atvinnu
rekenda
Innritun fatlaðra nemenda á starfs-
brautir í framhaldsskólum 2019
Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist
á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram dagana
1. – 28. febrúar 2019.
Allar leiðbeiningar varðandi innritunarferlið er að finna í
bréfi til nemenda og forráðamanna þeirra sem afhent verða
í grunnskólum landsins. Bréfin og leiðbeiningar má einnig
finna á menntagatt.is.
Listi yfir skóla sem bjóða upp á starfsbrautir er að finna á
menntagatt.is, en upplýsingar um brautirnar sjálfar er að
finna á vefsíðum viðkomandi framhaldsskóla og hjá fors-
varsfólki brautanna.
Nánari upplýsingar um rafræna innritun á starfsbrautir veitir
Guðný Ásta Snorradóttir hjá Menntamálastofnun í síma 514 7500
eða í gegnum tölvupóstinn innritun@mms.is.
PHILIPS HUE
COLOR E27 SNJALLPERUSETT
• Tengistöð, dimmir og 3x E27 RGB perur
• Stjórnað með dimmi, snjallsíma, spjaldtölvu eða snjallúri
HUEE27STARTP 24.995
snjallvæddu
heimilið
HEILBRIGÐISMÁL Byggðarráð Rangár-
þings ytra segir að breytt fyrirkomu-
lag sjúkraflutninga í Rangárþing hafi
skýrst að nokkru leyti á fundi með
forstjóra og hluta framkvæmda-
stjórnar Heilbrigðisstofnunar Suður-
lands um miðjan mánuðinn.
„Annars vegar þá kynnti forstjór-
inn þar fyrir sveitarstjórn að þessar
bakvaktir sem setja skal inn frá og
með 1. febrúar verða mannaðar með
sama fólki og sinnir staðbundnum
vöktum nú. Þannig segja þau að
sjúkraflutningamenn verði staðsettir
í aðstöðu HSU á Hellu hvort sem þeir
eru á staðbundnum vöktum eða bak-
vöktum,“ segir í minnisblaði sem
ráðið sendi forstjóra HSU til „að fá
það staðfest að það sem þar kemur
fram sé rétt eftir haft.“ – gar
Verða á bakvakt á vinnustöðinni
Frá Hellu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ólafur segir að um pólitískt leikrit sé að ræða. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-A
6
A
0
2
2
2
5
-A
5
6
4
2
2
2
5
-A
4
2
8
2
2
2
5
-A
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K