Fréttablaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 108
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2019
Reykjavíkurborg auglýsir hér með eftir óprentuðu handriti að ljóðabók,
frumsömdu á íslensku, til að keppa um Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar sem verða til úthlutunar á síðari hluta árs 2019.
Verðlaun að upphæð 800.000 krónur verða veitt fyrir eitt handrit.
Þriggja manna dómnefnd metur verkin. Útgáfuréttur verðlauna-
handrits er í höndum höfundar eða þess forlags sem hann ákveður
að starfa með. Sé dómnefnd á einu máli um að ekkert þeirra verka
sem borist hafa fullnægi þeim kröfum sem hún telur að gera verði
til verðlaunaverka má fella verðlaunin niður þetta árið. Handritum
sem keppa til verðlaunanna þarf að skila merktum dulnefni, en nafn,
heimilisfang og símanúmer höfundar fylgi með í lokuðu umslagi.
Handrit berist í síðasta lagi mánudaginn 3. júní 2019.
Utanáskrift: Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar, b.t.
Reykjavík bókmenntaborg UNESCO, Ráðhúsi Reykjavíkur,
Tjarnargata 11, 101 Reykjavíkurborg
Haukur Ingvarsson hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar 2018. Aðrir sem áttu handrit í keppninni eru
beðnir að vitja þeirra á skrifstofu Menningar- og ferðamálasviðs
Reykjavíkurborgar sem fyrst eða fyrir 15. febrúar 2019. Gefa þarf
upp dulnefni. Aðeins var opnað umslag með nafni verðlaunahafa.
Sýningin Hljóðön verður opnuð í Hafnarborg í dag. Þráinn Hjálmarsson tónskáld er sýningarstjóri.„Þessi sýning fagnar 5 ára starfsafmæli sam
nefndrar tónleikaraðar sem tileink
uð er samtímatónlist og Hafnar
borg hefur haldið frá árinu 2013,“
segir Þráinn. „Hugmyndin með
sýningunni er að draga fram rödd
hlutheimsins í upplifun okkar á
tónlist. Hvernig hlutir lita upplifun
okkar á hljóðunum og tónlistinni í
sterkum litum með nærveru sinni
þar sem tilvísanaheimur hlutarins
getur haft áhrif á samband okkar
við hljóðin sjálf og tónlistarlega
hlustun. Sem og hvernig hlutir
geta sett tónlistinni mörk með
efniskennd sinni. Þegar ég hugsa um
þessa sýningu finnst mér hún snúast
um það hvernig við getum upplifað
hljóð og tónlist ólíkt út frá hlutum
og samhengi þeirra, hér er verið að
hlera mörg ólík samtöl á milli efnis
heimsins og tónlistarinnar.“
Fiðluleikur og pappahólkur
Verk eftir fjölda listamanna eru
á sýningunni og eru þau margs
konar. Þar á meðal er myndbands
verk listakonunnar Steinu, Violin
Power. „Verkið samanstendur af
myndskeiðum frá ólíkum tímum
af Steinu að leika á fiðlu. Í verkinu
hefur fiðluleikur Steinu áhrif á
hvernig myndin bjagast í rauntíma.
Hér teiknar Steina í myndbands
miðilinn með fiðlunni. Tónlistin
verður sem afleiða þessarar teikn
ingar í myndbandsmiðilinn. Það
mætti segja að hún leiki ýmist fyrir
og á myndbandsmiðilinn með fiðlu
leik sínum.“ segir Þráinn.
Verk frá 1972 eftir Jón Gunnar
Árnason er á sýningunni. Þar er um
að ræða pappahólk með sellófani
innan í og með fylgja einföld fyrir
mæli listamannsins um það hvern
ig eigi að meðhöndla verkið. „Á
þessum tíma var Jón Gunnar mikill
áhugamaður um John Cage og
verkið sprettur upp úr þeim áhuga,“
segir Þráinn. „Í þessu einfalda formi;
pappahólki og sellófani, leynist heill
konsert. Þegar sellófanið er ýmist
dregið úr eða komið fyrir í hólknum
eða krumpað saman verða til tón
listarleg augnablik.“ Verkið sem
sýningargestir fá að handfjalla er
„Þegar ég hugsa um þessa sýningu finnst mér hún snúast um það hvernig við getum upplifað hljóð og tónlist ólíkt út
frá hlutum,“ segir sýningarstjóri sýningarinnar Hljóðön, Þráinn Hjálmarsson, sem er tónskáld. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Sú góða hefð er fyrir því að Reykja
víkurborg bjóði til Mozarttón
leika á Kjarvalsstöðum á fæðingar
degi tónskáldsins, 27 janúar. Ekki
er vikið frá þessari hefð í ár og
tónleikarnir verða á sunnudag og
hefjast klukkan 15.
Að þessu sinni verður tónlist
fyrir blásara í forgrunni. Flutt
verður serenaða í cmoll KV 388
og serenaða í Esdúr KV 375. Flytj
endur eru allir hljóðfæraleikarar í
Sinfóníuhljómsveit Íslands; Mattí
has Nardeau, Peter Tompkins,
Rúnar Óskarsson, Grímur Helga
son, Bryndís Þórsdóttir, Brjánn
Ingason, Frank Hammarin og Emil
Friðfinnsson.
Ekki verður einungis f lutt tón
list því Sigurður Ingi Snorrason
klarínettuleikari mun fjalla um
tónskáldið og tónlistina sem f lutt
verður. Lofa má fallegri og ljúfri
stund á Kjarvalsstöðum enda jafn
ast fátt á við tónlist Mozarts, eins og
allir sannir tónlistarunnendur vita
svo mætavel. Á alltof skammri ævi
samdi hann rúmlega 600 verk sem
hafa glatt kynslóðir og svo mun
áfram verða um ókomin ár. – kb
Ókeypis Mozart á Kjarvalsstöðum
Wolfgang Amadeus Mozart.
Ólík samtöl
efnisheims
og tónlistar
Sýningin Hljóðön
opnuð í Hafnar-
borg. Þráinn
Hjálmarsson tón-
skáld er sýningar-
stjóri. Segir hug-
myndina vera að
draga fram rödd
hlutheimsins í upp-
lifun á tónlist.
eftirgerð, en frumgerðin er vand
lega geymd undir gleri. „Pappinn
og sellófanið eldist ekki sérlega vel
en hins vegar undirstrikar efnis
val Jóns Gunnars að listin er okkur
öllum aðgengileg í hvunndeginum,
krefst þess eingöngu að við veitum
henni athygli,“ segir Þráinn.
Innblástur frá Münchausen
Verk eftir Magnús Pálsson er gips
skúlptúr, sem er afsteypa af lúðri.
„Verkið er innblásið af sögunni um
Baron Münchausen sem var á veið
um í frosti og blés í lúðurinn með
þeim afleiðingum að hljómurinn
fraus. Eftir veiðiferðina setti hann
lúðurinn yfir arininn og hljóðið
þiðnaði og skaust út. Í þessum
skúlptúr er Magnús að ímynda sér
þetta hljóð,“ segir Þráinn.
Hér hafa einungis verið nefnd
nokkur verk af þeim fjölmörgu sem
sjá má á sýningunni sem verður
opnuð klukkan 15. Klukkan 14 mun
slagverksleikarinn Jennifer Torrence
frumflytja nýtt verk eftir Bergrúnu
Snæbjörnsdóttur, auk þess að flytja
verk Toms Johnson, Níu bjöllur frá
1979. Um Níu bjöllur segir Þráinn:
„Þar gengur slagsverksleikari á milli
bjallanna og skapar tónamynstur.
Hann er háður gönguleiðinni og
hraðanum á milli bjallanna. Þann
ig setur rýmið og líkami flytjandans
tónlistinni mörk.“
Listamenn á Hljóðön
Listamennirnir sem eiga verk á
sýningunni eru Ásta Ólafsdóttir,
Steina, Steinunn Eldflaug Harðar
dóttir, Logi Leó Gunnarsson, Jón
Gunnar Árnason, James Saund
ers, Bergrún Snæbjörnsdóttir,
Magnús Pálsson, Tom Johnson,
Curver Thoroddsen og Einar Torfi
Einarsson. Yfir sýningartímann
verða einnig haldnir viðburðir,
þar sem fram koma ólíkir lista
menn og flytjendur. Má þar nefna
Harald Jónsson, Ástu Fanneyju
Sigurðardóttur, Jennifer Torr
ence, Marko Ciciliani, Barböru
Lüneburg, Skerplu og Berglindi M.
Tómasdóttur.
LISTIN ER OKKUR
ÖLLUM AÐGENGILEG Í
HVUNNDEGINUM, KREFST ÞESS
EINGÖNGU AÐ VIÐ VEITUM
HENNI ATHYGLI.
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R50 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
5
-9
C
C
0
2
2
2
5
-9
B
8
4
2
2
2
5
-9
A
4
8
2
2
2
5
-9
9
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K