Fréttablaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 94
Börnin í búsáhaldabyltingunni
Tíu ár eru liðin frá því að búsáhaldabyltingin hófst. Fjölmörg börn og ungmenni voru á mótmælunum. Þeirra á
meðal Logi Pedro Stefánsson, Snærós Sindradóttir og Patrick Jens Scheving Thorsteinsson sem gagnrýna lögreglu.
Lögreglan gekk hart fram
Tónlistarmaðurinn Logi Pedro
Stefánsson var busi í MH í
janúar 2009 og fór á Austurvöll og
fylgdist með. „Mér finnst að allar
stofnanir sem beita valdi þurfi
mikið aðhald. „Ég sá lögreglu-
menn ganga oft hart fram og gera
mistök í þessum mótmælum. Alls
konar dæmi sem áttu sér stað
þarna voru ekki í lagi, en á hinn
bóginn þá voru þetta aðstæður
sem voru hrikalega krefjandi.
Og ég hef horft á samfélagsmiðla-
herferðir lögreglunnar síðustu ár
með ákveðin spurningarmerki í
augunum. Það er spurning hversu
mjúka ímynd svona valdbeitingar-
stofnun á að vera með. Það skiptir
nefnilega öllu máli að fólk átti sig
á því að við verðum að gera mjög
skýrar og sterkar kröfur til þessa
fólks. Og líka bara viðbrögð lög-
reglunnar og talsmáti í kringum
ákveðin mál. T.d. koma frasar eins
og norska aðferðin og annað upp
í huga mér. Krafan um að gera
hreint fyrir sínum dyrum er bara
alls ekki nógu hávær innan lögregl-
unnar. Kannski erfitt að ræða það
í þessu samhengi sem búsáhalda-
byltingin var en umræða sem
hefur ekki farið nægilega hátt.“
Nú megi grípa til allra ráða
Þegar ljósmyndari smellti mynd
af Snærósu Sindradóttur fjölmiðla
konu í aftursæti lögreglubíls hafði
hún verið í sjö tíma í haldi lögreglu.
„Það er ótrúlegt að horfa á
þessa mynd núna tíu árum síðar.
Ég upplifi hana eitthvað svo frið-
sæla sem er auðvitað andstæðan
við það sem gekk á fyrir utan. Á
þessum tímapunkti var ég búin
að vera í haldi í sjö klukkustundir
eða þar um bil, fyrst í janúarkuld-
anum í Alþingisgarðinum og síðar
í bílakjallara Alþingis, nánar til-
tekið sérmerktu bílastæði forseta
þingsins,“ segir Snærós.
„Það var allan tímann ljóst að
lögreglan stóð frammi fyrir verk-
efni sem hún hafði ekki fengið
nokkra þjálfun til að takast á við.
Flestar löggurnar gerðu sitt besta,
konurnar héldu ró sinni betur, en
aðrir voru búnir að missa stjórn
á sér. Þegar við vorum leidd út
í lögreglubílinn í einfaldri röð
varð ég vitni að seinni hópnum
að störfum. Þarna mæddi mikið
á lögreglunni og lögreglumenn
sveifluðu kylfunum í kringum sig
að því er manni fannst handahófs-
kennt. Á þessari friðsælu mynd er
ég líklega í þann veginn að heyra
í talstöðinni að nú megi grípa til
allra ráða til að kveða mótmælin
niður. Það tók lögregluna nokkra
daga að ná tökum á aðstæðunum
en það gerðist fyrst þegar hópur
mótmælenda tók sér stöðu með
lögreglunni eina nóttina fyrir utan
Stjórnarráðið. Í dag eru sett ramm-
gerð járnhlið í þrjátíu metra radíus
utan um Alþingi þegar von er á
fólki og þau ein og sér taka helsta
púðrið úr öllum mótmælum. Lík-
lega munum við því aldrei aftur
sjá viðlíka hörku í tengslum við
mótmæli hér á landi, að minnsta
kosti ekki á Austurvelli. Það er
skrýtið að það sé heill áratugur
liðinn síðan ég heyrði síðast takt
búsáhaldabyltingarinnar glymja
í höfðinu á mér þegar ég lagði
höfuðið á koddann á kvöldin,“
segir hún.
Litlu handjárnin
Patrick var ellefu ára gamall og býr um þessar mundir í helli á Kanarí
þar sem hann er að skrifa bók. „Það er frekar fínt hér. Ég bý hér í svona
hippasamfélagi. Þetta er skemmtilegt fólk. Ég var ellefu ára gamall. Við
bjuggum á Akranesi á þessum tíma. Foreldrar mínir vöktu mig, sögðu
mér frá þessu og leyfðu mér að koma með á mótmælin. Ég átti að vera í
skólanum en foreldrar mínir hringdu mig inn veikan,“ segir Patrick frá.
Patrick hafði áður sótt friðsamleg mótmæli. Hann mætti jafnan vel
búinn og þennan dag var hann með bæði hjálm og öryggisgleraugu.
„Þessum mótmælum fylgdi meiri órói. „Ég var auðvitað með foreldrum
mínum. Mamma er hins vegar með gigt og þurfti að setjast niður. Ég var
alltaf í augsýn hennar. Svo dreif að fleiri lögreglumenn með kylfur og
táragas og það var mikill troðningur. Lögreglan spurði mig um mömmu,
hvar hún væri. Ég sagði þeim það og hún veifaði til þeirra. Þeir ákváðu
samt að taka mig og ræddu aðeins um það hvort þeir ættu að ná í lítil
handjárn. Á endanum var ákveðið að handjárna mig ekki. Ég tók af mér
gleraugun en það var gas úti um allt svo ég táraðist. Ég heyrði lögregluna
ræða um að það þyrfti að drífa mig í burtu áður en fjölmiðlar kæmu
auga á mig. Það myndi ekki líta vel út fyrir þá. En svo mættu þeir og ég
endaði á forsíðu DV. „Ég var stoltur af því,“ segir Patrick og hlær. – kbg
Fleiri myndir ljósmyndara úr búsáhaldabyltingunni er að
finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í
Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
5
-C
E
2
0
2
2
2
5
-C
C
E
4
2
2
2
5
-C
B
A
8
2
2
2
5
-C
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K