Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 94

Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 94
Börnin í búsáhaldabyltingunni Tíu ár eru liðin frá því að búsáhaldabyltingin hófst. Fjölmörg börn og ungmenni voru á mótmælunum. Þeirra á meðal Logi Pedro Stefánsson, Snærós Sindradóttir og Patrick Jens Scheving Thorsteinsson sem gagnrýna lögreglu. Lögreglan gekk hart fram Tónlistarmaðurinn Logi Pedro Stefánsson var busi í MH í janúar 2009 og fór á Austurvöll og fylgdist með. „Mér finnst að allar stofnanir sem beita valdi þurfi mikið aðhald. „Ég sá lögreglu- menn ganga oft hart fram og gera mistök í þessum mótmælum. Alls konar dæmi sem áttu sér stað þarna voru ekki í lagi, en á hinn bóginn þá voru þetta aðstæður sem voru hrikalega krefjandi. Og ég hef horft á samfélagsmiðla- herferðir lögreglunnar síðustu ár með ákveðin spurningarmerki í augunum. Það er spurning hversu mjúka ímynd svona valdbeitingar- stofnun á að vera með. Það skiptir nefnilega öllu máli að fólk átti sig á því að við verðum að gera mjög skýrar og sterkar kröfur til þessa fólks. Og líka bara viðbrögð lög- reglunnar og talsmáti í kringum ákveðin mál. T.d. koma frasar eins og norska aðferðin og annað upp í huga mér. Krafan um að gera hreint fyrir sínum dyrum er bara alls ekki nógu hávær innan lögregl- unnar. Kannski erfitt að ræða það í þessu samhengi sem búsáhalda- byltingin var en umræða sem hefur ekki farið nægilega hátt.“ Nú megi grípa til allra ráða Þegar ljósmyndari smellti mynd af Snærósu Sindradóttur fjölmiðla konu í aftursæti lögreglubíls hafði hún verið í sjö tíma í haldi lögreglu. „Það er ótrúlegt að horfa á þessa mynd núna tíu árum síðar. Ég upplifi hana eitthvað svo frið- sæla sem er auðvitað andstæðan við það sem gekk á fyrir utan. Á þessum tímapunkti var ég búin að vera í haldi í sjö klukkustundir eða þar um bil, fyrst í janúarkuld- anum í Alþingisgarðinum og síðar í bílakjallara Alþingis, nánar til- tekið sérmerktu bílastæði forseta þingsins,“ segir Snærós. „Það var allan tímann ljóst að lögreglan stóð frammi fyrir verk- efni sem hún hafði ekki fengið nokkra þjálfun til að takast á við. Flestar löggurnar gerðu sitt besta, konurnar héldu ró sinni betur, en aðrir voru búnir að missa stjórn á sér. Þegar við vorum leidd út í lögreglubílinn í einfaldri röð varð ég vitni að seinni hópnum að störfum. Þarna mæddi mikið á lögreglunni og lögreglumenn sveifluðu kylfunum í kringum sig að því er manni fannst handahófs- kennt. Á þessari friðsælu mynd er ég líklega í þann veginn að heyra í talstöðinni að nú megi grípa til allra ráða til að kveða mótmælin niður. Það tók lögregluna nokkra daga að ná tökum á aðstæðunum en það gerðist fyrst þegar hópur mótmælenda tók sér stöðu með lögreglunni eina nóttina fyrir utan Stjórnarráðið. Í dag eru sett ramm- gerð járnhlið í þrjátíu metra radíus utan um Alþingi þegar von er á fólki og þau ein og sér taka helsta púðrið úr öllum mótmælum. Lík- lega munum við því aldrei aftur sjá viðlíka hörku í tengslum við mótmæli hér á landi, að minnsta kosti ekki á Austurvelli. Það er skrýtið að það sé heill áratugur liðinn síðan ég heyrði síðast takt búsáhaldabyltingarinnar glymja í höfðinu á mér þegar ég lagði höfuðið á koddann á kvöldin,“ segir hún. Litlu handjárnin Patrick var ellefu ára gamall og býr um þessar mundir í helli á Kanarí þar sem hann er að skrifa bók. „Það er frekar fínt hér. Ég bý hér í svona hippasamfélagi. Þetta er skemmtilegt fólk. Ég var ellefu ára gamall. Við bjuggum á Akranesi á þessum tíma. Foreldrar mínir vöktu mig, sögðu mér frá þessu og leyfðu mér að koma með á mótmælin. Ég átti að vera í skólanum en foreldrar mínir hringdu mig inn veikan,“ segir Patrick frá. Patrick hafði áður sótt friðsamleg mótmæli. Hann mætti jafnan vel búinn og þennan dag var hann með bæði hjálm og öryggisgleraugu. „Þessum mótmælum fylgdi meiri órói. „Ég var auðvitað með foreldrum mínum. Mamma er hins vegar með gigt og þurfti að setjast niður. Ég var alltaf í augsýn hennar. Svo dreif að fleiri lögreglumenn með kylfur og táragas og það var mikill troðningur. Lögreglan spurði mig um mömmu, hvar hún væri. Ég sagði þeim það og hún veifaði til þeirra. Þeir ákváðu samt að taka mig og ræddu aðeins um það hvort þeir ættu að ná í lítil handjárn. Á endanum var ákveðið að handjárna mig ekki. Ég tók af mér gleraugun en það var gas úti um allt svo ég táraðist. Ég heyrði lögregluna ræða um að það þyrfti að drífa mig í burtu áður en fjölmiðlar kæmu auga á mig. Það myndi ekki líta vel út fyrir þá. En svo mættu þeir og ég endaði á forsíðu DV. „Ég var stoltur af því,“ segir Patrick og hlær. – kbg Fleiri myndir ljósmyndara úr búsáhaldabyltingunni er að finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM 2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 2 5 -C E 2 0 2 2 2 5 -C C E 4 2 2 2 5 -C B A 8 2 2 2 5 -C A 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.