Fréttablaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 38
Sólarorkulamparnir hafa bætt lífsgæði barna í Kenýa og Tansaníu sem nú geta lært við hreint ljós í stað mengandi steinolíulampa. MYNDIR/GIVEWATTS
Steinolíulampar
gefa frá sér skað-
legan reyk fyrir augu og
lungu barna sem nota
ljóstíruna við heima-
námið.
Lovísa Árnadóttir
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@frettabladid.is
Rafmagn er bæði sjálfsagt og aðgengilegt í daglegu lífi Íslendinga og því er
auðvelt að gleyma því
að um 1,3 milljarðar
manna búa við tak-
markað aðgengi að
rafmagni í heim-
inum,“ segir Lovísa
Árnadóttir, upplýs-
ingafulltrúi Samorku, á
Degi rafmagnsins sem
var fagnað á Norður-
löndunum 23. janúar.
„Tilgangur dagsins er
að minna á mikilvægi raf-
magns í leik og starfi. Það
er samofið öllum okkar
daglegu athöfnum og við göngum
að því vísu hér á Íslandi á hverjum
einasta degi. Rafmagn okkar Íslend-
inga er líka einstakt að því leyti að
það er framleitt að fullu með endur-
nýjanlegum hætti, en við vitum að
staðan er allt önnur fyrir margar
aðrar þjóðir. Innan Evrópusam-
bandsins eru að meðaltali aðeins
um 15 prósent rafmagns framleidd
með endurnýjanlegum hætti og í
Heilnæmt ljós til Afríku
Sólarorkulampar frá Samorku lýsa nú börnum í myrkri Kenýa og Tansaníu í stað reykjandi og
heilsuspillandi steinolíulampa. Lamparnir eru gefnir í tilefni Dags rafmagnsins sem var í vikunni.
heiminum öllum býr yfir milljarður
manna við takmarkað aðgengi að
rafmagni,“ upplýsir Lovísa.
Í tilefni Dags rafmagnsins hefur
Samorka síðustu tvö ár staðið fyrir
fjármögnun og dreifingu sólar-
orkulampa í Afríku, í samvinnu
við sænska fyrirtækið Givewatts.
Alls hefur Samorka fjármagnað
320 lampa sem bætt hafa lífsgæði
um 1.600 manns, þar sem fimm
einstaklingar að meðaltali nýta sér
hvern lampa á hverju heimili.
„Markmið Givewatts er að gefa
afrískum fjölskyldum kost á að fjár-
festa í hreinni og ódýrri orku í formi
sólarorkulampa í stað steinolíu-
lampa. Lampar frá Samorku lýsa
nú börnum í þorpunum Vihiga
í Kenýa og Mwanza í Tansaníu.
Vegna slæmrar uppskeru var efna-
hagsástand á svæðunum bágborið
síðari hluta ársins 2018 og því varð
nokkur töf á dreifingu lampanna en
vonast er til að hún taki kipp á nýju
ári,“ útskýrir Lovísa.
Givewatts hefur nú fjölgað starfs-
mönnum sínum á svæðunum til
að efla kynningu á sólarorkulömp-
unum og kostum endurnýjanlegrar
orku í stað steinolíulampa. Með því
er vonast til að dreifing lampanna
komist á skrið að nýju.
„Steinolía er aðal birtugjafinn
við dagleg störf í Mwanza og
Vihiga. Steinolíulampar gefa frá
sér skaðlegan reyk fyrir augu og
lungu barna sem nota ljóstíruna
við heimanámið. Það er sannarlega
ólíkt þeim veruleika sem íslensk
börn búa við, þar sem sjónvarp,
iPad og eldavél eru í gangi á sama
tíma og hægt er að lesa góða bók
í skammdeginu undir teppi. Því
viljum við gefa öðrum tækifæri til
að beisla hreina orku, eins og við
búum við hér, og um leið bæta
heilsu þeirra og lífsgæði.“
Lovísa
Árnadóttir,
upplýs-
ingafulltrúi
Samorku.
Smávirkjanir
Mannvit veitir víðtæka þjónustu vegna forathugana, áætlanagerðar og undirbúnings
smávirkjana. Þjónustan innifelur undirbúningsrannsóknir, vatnamælingar,
hönnunarvinnu og mat á umhverfi sáhrifum þar sem við á. Einnig veitum við
þjónustu á sviði veituhönnunar og bortækni til jarðhitanýtingar.
www.mannvit.is
2 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANDS
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-E
6
D
0
2
2
2
5
-E
5
9
4
2
2
2
5
-E
4
5
8
2
2
2
5
-E
3
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K