Fréttablaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 14
Álagningar- og breytingarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík 2019 verða birtir á vefsíðunni island.is og á
Rafrænni Reykjavik á næstu dögum. Álagningar- og breytingarseðlar eru ekki sendir í pósti í samræmi
við breytingu sem gerð var á lögum nr. 4/1995 sem tók gildi 1. janúar 2019, en þá er sveitarstjórn heimilt
að senda tilkynningu um álagningu fasteignaskatts rafrænt.
Fasteignagjöldin verða innheimt í gegnum netbanka þar sem jafnframt er hægt að prenta út greiðslu-
seðil. Greiðsluseðlar verða ekki sendir út en hægt er að óska eftir heimsendum greiðsluseðlum á
mínum síðum á www.reykjavik.is eða í gegnum þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar annast álagningu og innheimtu á
fasteignaskatti, lóðaleigu og sorphirðugjaldi.
Fasteignagjöld ársins 2019, yfir 25.000 kr., greiðast með níu jöfnum
greiðslum á gjalddögum 2. febrúar, 2. mars, 2. apríl, 4. maí, 1. júní,
2. júlí, 3. ágúst, 1. september og 2. október.
Gjalddagi fasteignagjalda undir 25.000 kr. er 2. febrúar.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar, sem fengu afslátt af fasteignaskatti
og fráveitugjaldi sem greitt er til Orkuveitu Reykjavíkur á síðastliðnu ári,
fá einnig að óbreyttu afslátt af fasteignaskatti og fráveitugjaldi fyrir árið
2019 að teknu tilliti til tekjuviðmiða. Fjármálaskrifstofa framkvæmir
breytingar á fasteignaskatti og fráveitugjaldi eftir yfirferð skattframtala
elli- og örorkulífeyrisþega. Það þarf því ekki að sækja sérstaklega um
afslátt þessara gjalda. Við álagningu fasteignagjalda í janúar verður
afsláttur elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða miðaður við tekjur
ársins 2017. Þegar álagning vegna tekna ársins 2018 liggur fyrir í
júní 2019, verður afslátturinn endanlega ákvarðaður og verða þá allar
breytingar tilkynntar bréflega.
Skilyrði afsláttar eru að viðkomandi sé elli- eða örorkulífeyrisþegi,
sé þinglýstur eigandi fasteignar, eigi þar lögheimili og geti átt rétt
á vaxtabótum vegna hennar skv. B-lið 68. gr. laga nr. 90/2003 um
tekjuskatt og eignaskatt.
Einungis er veittur afsláttur vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota.
Borgarráð hefur ákveðið að tekjumörk elli-og örorkulífeyrisþega vegna afsláttar
fasteignaskatts og fráveitugjalds á árinu 2019 verði eftirfarandi:
100% afsláttur: Einstaklingur með tekjur allt að 4.090.000 kr.
A100 Samskattaðir einstaklingar með tekjur allt að 5.710.000 kr.
80% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.090.000 til 4.690.000 kr.
A80 Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 5.710.000 til
6.340.000 kr.
50% afsláttur: Einstaklingur með tekjur á bilinu 4.690.000 til 5.450.000 kr.
A50 Samskattaðir einstaklingar með tekjur á bilinu 6.340.000 til
7.580.000 kr.
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, veitir
allar upplýsingar varðandi álagningu og breytingar á gjaldi fyrir meðhöndlun
úrgangs í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á
netfangið sorphirda@reykjavik.is.
Fjármálaskrifstofa Reykjavíkurborgar, Höfðatorgi, Borgartúni 12-14, veitir
upplýsingar varðandi álagningu fasteignaskatts og lóðarleigu og breytingar á
þeim í síma 411 1111. Einnig má leita upplýsinga með tölvupósti á netfangið
fasteignagjold@reykjavik.is.
Hægt er að leita upplýsinga um ofangreind atriði á heimasíðu Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is
Fasteignagjöld
2019
Borgarstjórinn í Reykjavík, 26. janúar 2019.
www.reykjavik.is
GRIKKLAND Gríska þingið lögfesti
samning við Makedóníu í gær með
153 atkvæðum gegn 146. Make-
dónar höfðu áður lögfest plaggið.
Með því verður nafni ríkisins nú
formlega breytt í Lýðveldið Norður-
Makedónía og verður það tekið upp
eftir að Makedónar, brátt Norður-
Makedónar, hafa gert Sameinuðu
þjóðunum viðvart og Atlantshafs-
bandalagið (NATO) hefur skrifað
undir.
Með þessu lýkur 27 ára langri
deilu ríkjanna. Strax eftir að Make-
dónía fékk sjálfstæði frá Júgóslavíu
kváðust Grikkir ósáttir við nafn
ríkisins. Í stuttu máli má rekja þá
óánægju til þess annars vegar að
Makedónía er einnig grískt hérað
og óttuðust Grikkir að hið nýja ríki
hygðist innlima héraðið og hins
vegar til þess að Grikkir álíta forna
konungsríkið Makedóníu, sem til
dæmis Alexander mikli stýrði, hluta
af sínum menningararfi.
Syriza, flokkur Alexis Tsipras for-
sætisráðherra, greiddi atkvæði með
auk nokkurra þingmanna To Potami
og Sjálfstæðra Grikkja. Ekki voru
þó allir sáttir. „Landráðamenn!“
mátti heyra þingmenn nýnasista-
flokksins Gullinnar dögunar hrópa
í salnum. Flokksmenn Nýs lýð-
ræðis voru einnig ósáttir. „Þennan
samning hefði aldrei átt að undir-
rita né leggja í dóm þingsins. Þetta
er þjóðarósigur. Harmleikur sem er
móðgun við bæði sannleikann og
sögu Grikklands,“ sagði Kyriakos
Mitsotakis formaður.
Nafnbreytingin greiðir leið Make-
dóníu inn í bæði Atlantshafsbanda-
lagið og Evrópusambandið en í skjóli
neitunarvalds síns hafa Grikkir hald-
ið Makedónum utan sambandanna
vegna deilunnar. – þea
Nafnadeilu
að ljúka
Tsipras og félagar fagna.
NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN Roger Stone, sem kveðst
einn elstu vina Donalds Trump
Bandaríkjaforseta og var ráðgjafi
forsetaframboðs hans, var ákærður í
Bandaríkjunum í gær. Robert Muell-
er, sérstakur saksóknari sem fer með
rannsókn Rússamálsins svokallaða,
ákærir Stone í sjö liðum. Stone er
þannig ákærður fyrir ljúgvitni í fimm
liðum, að hindra rannsókn í einum
og hafa óeðlileg áhrif á vitnisburð
annars manns í einum.
Nánar tiltekið snýr ákæran að
meintum lygum Stone í samskiptum
við upplýsingamálanefnd fulltrúa-
deildar þingsins um samskipti hans
við lekasamtökin WikiLeaks og á
Stone aukinheldur að hafa skipað
tengilið sínum við WikiLeaks að
segja ósatt um samskiptin.
Eins og frægt er orðið var tölvu-
póstum bæði miðstjórnar Demó-
krataflokksins og Johns Podesta,
kosningastjóra Hillary Clinton, stol-
ið í kosningabaráttunni. Fjölmargir
rannsakendur fullyrða að Rússar hafi
staðið að hakkinu. Julian Assange,
stofnandi WikiLeaks, hefur sagt það
af og frá, eins og Kristinn Hrafnsson
ritstjóri benti á í viðtali við Frétta-
blaðið í október.
Rússamálið snýst í grunninn um
meint óeðlileg áhrif rússneskra
yfirvalda á forsetakosningarnar og
meint samráð framboðs Trumps
við Rússa. Að auki hefur saksóknari
frelsi til þess að fylgja eftir öllum
þeim málum sem koma í ljós við
rannsóknina. Enginn meintra glæpa
Stone átti sér stað í kosningabarátt-
unni sjálfri þótt samskiptin sem
hann er sakaður um að hafa logið um
eigi að hafa átt sér stað á þeim tíma.
Jay Sekulow, einn lögmanna for-
setans, sagði í yfirlýsingu í gær að
Stone væri ekki sakaður um samráð
við Rússa eða nokkurn annan. „Þessi
ákæra snýst um meint ljúgvitni herra
Stone fyrir fulltrúadeildinni.“
Alríkislögreglan handtók Stone á
heimili hans í Flórída snemma í gær-
morgun. Hann var færður fyrir dóm
þar sem hann var leystur úr haldi
gegn 250.000 dala tryggingu.
Er Stone gekk út úr dómshúsinu
ræddi hann stuttlega við fjölmiðla
þar sem hann hélt fram sakleysi sínu
og sagðist ætla að berjast af hörku og
að lokum hafa betur gegn saksókn-
ara. Stone sagði, líkt og Trump hefur
ítrekað haldið fram um rannsóknina,
að málið væri pólitísks eðlis.
„Það eru engar kringumstæður
hugsanlegar þar sem ég myndi bera
ljúgvitni gegn forseta mínum. Ég
mun heldur ekki ljúga til þess að
létta þrýstingnum af sjálfum mér,“
sagði Stone. Trump hefur áður sagt
þá sem Mueller hefur ákært ljúga um
sig. thorgnyr@frettabladid.is
Einn elstu vina Trumps forseta ákærður
Roger Stone, áður ráðgjafi forsetaframboðs Trumps, var handtekinn og ákærður í sjö liðum í gær. Ákæran snýst um meintar lygar að rann-
sakendum um samskipti hans við WikiLeaks. Miðillinn birti stolna tölvupósta Demókrata í kosningabaráttunni. Stone kveðst saklaus.
Fleiri verið ákærðir
n Manafort, fyrrverandi kosn-
ingastjóri, var sakfelldur fyrir
fjársvik og bíður dóms.
n Michael Cohen, fyrrverandi lög-
maður Trumps, játaði á sig fjár-
svik og brot á kosningalögum.
Fékk þriggja ára fangelsisdóm.
n Michael Flynn, fyrrverandi
þjóðaröryggisráðgjafi, játar lygar
að alríkislögreglu. Bíður dóms.
n Rick Gates, fyrrverandi starfs-
maður framboðs, játaði fjársvik
og lygar að alríkislögreglu
og bíður dóms.
n George Papadopoulos, fyrrver-
andi ráðgjafi framboðs, játaði
á sig lygar að alríkislögreglu og
fékk tvær vikur í fangelsi.
n 13 Rússar, tengdir „tröllaverk-
smiðjunni“ Internet Research
Agency, hafa verið ákærðir fyrir
samsæri gegn Bandaríkjunum.
n 12 rússneskir leyniþjónustu-
liðar hafa verið ákærðir fyrir
tölvuglæpi.
Stone líkti eftir Nixon þegar hann gekk út úr dómshúsinu. NORDICPHOTOS/AFP
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-7
F
2
0
2
2
2
5
-7
D
E
4
2
2
2
5
-7
C
A
8
2
2
2
5
-7
B
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K