Fréttablaðið - 26.01.2019, Blaðsíða 122
Lífið í
vikunni
20.01.19 -
26.01.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ALLAR BAÐVÖRUR
FRÁ ZONE
60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Janúar
útsalan
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
JANÚAR
ÚTSALAN
Í FULLUM GANGI
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Aðeins 9.950 kr.
STÓRI
BJÖRN
dúnsæng 50%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
QOD Stóri Björn dúnsæng
50% dúnn & 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sara segir að besta leiðin til að ná til fólks sé í gegnum húmor. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Hugmyndin kom til mín þar sem ég var stödd í part-íi í London fyrir nokkrum árum. Ég hef aldrei verið
eins einmana og þá en þó var ég
umkringd fjölda fólks. Ég vissi ekki
að það væri hægt að upplifa svo
mikla einsemd innan um fullt af
fólki og fór í framhaldi að hugsa
um þetta þema. Það er staðreynd
að einsemdin fær mann til að gera
örvæntingarfulla, hræðilega og
hlægilega hluti.“
Um er að ræða svokallað kvik-
myndaleikhúsverk en um það bil
helmingur sýningarinnar hefur
þegar verið skjalfestur og er varpað
á risaskjá í salnum. „Á sviðinu eru
fjórar íbúðir þar sem við fylgjumst
með persónum verksins. Þegar þær
svo fara út úr húsi sést það sem þær
gera aftur á móti á skjánum.“ Hóp-
urinn hefur verið í upptökum frá því
í desember og segir Sara þau nánast
vera komin með efni í kvikmynd í
fullri lengd.
„Persónurnar eru allar að drep-
ast úr einsemd af mismunandi
ástæðum. Ein t.a.m fer að fremja
hryðjuverk því fólk er svo ömurlegt
við hana, annan langar mikið að
eignast konu og notar netið mikið
til að reyna að læra hvernig á að
tala við þær. Á YouTube eru aftur á
móti ekki bestu kennararnir á þessu
sviði svo aðferðir hans reynast bros-
legar.“ Sara segist yfirleitt vinna
með hið sammannlega, allir hafi
einhvern tíma upplifað einsemd og
húmor sé jafnframt besta leiðin til
að að ná til fólks. „Enginn nennir
að koma í leikhús til að horfa á
sorgmætt, einmana fólk. Við vitum
hvernig tilfinningin er svo það er
óþarfi að sýna hana beint. Aftur á
móti getur verið sprenghlægilegt að
skoða hvað tilfinningin fær okkur til
að gera.“
Ein persóna verksins upplifir ein-
angrun og einsemd sökum heyrnar-
leysis og er leikkonan sem hana
túlkar, Sigríður Vala Jóhannesdóttir,
sjálf heyrnarlaus. „Persóna hennar
vinnur á vinnustað þar sem allir eru
heyrandi og enginn leggur sig fram
við samskipti við hana. Ég valdi að
hafa persónuna heyrnarlausa enda
tungumál þeirra sérlega sjónrænt og
fallegt en ég hefði eins getað valið
að hún væri útlendingur. Enda held
ég að það sé jafn einmanalegt að
vera útlendingur á Íslandi og tala
ekki íslensku. „Sigríði ferst verkið
sérlega vel úr hendi, þó þetta sé í
fyrsta sinn sem hún stendur á stóra
sviðinu. Hún er alin upp í Banda-
ríkjunum þar sem hún hefur sótt
leiklistarnámskeið en aldrei starfað
í atvinnuleikhúsi.“ Sara segir sam-
starfið hafa gengið frábærlega og
þakkar það ekki síst Ástbjörgu Rut
Jónsdóttur sem er bæði sviðshöf-
undur og táknmálstúlkur. „Hún er
gríðarlegur fengur fyrir íslenska
leiklist.“ bjork@frettabladid.is
Einsemdin getur verið
hræðileg og hlægileg
Næstkomandi föstudag frumsýnir Tjarnarbíó í samstarfi við Smartí-
lab gamanverk um einsemdina. Sara Martí Guðmundsdóttir, annar
höfunda verksins og leikstjóri, segist hafa fengið hugmyndina í partíi.
ÉG VISSI EKKI AÐ ÞAÐ
VÆRI HÆGT AÐ
UPPLIFA SVO MIKLA EINSEMD
INNAN UM FULLT AF FÓLKI OG
FÓR Í FRAMHALDI AÐ HUGSA
UM ÞETTA ÞEMA.
ARNOLD BAUÐ FJALLINU Í
KVÖLDMAT OG KÓSÍ
Hafþór Júlíus
Björnsson
var beðinn
um að
fljúga til
Kaliforníu
til að safna
fé fyrir
slökkviliðs-
menn. Arnold
Schwarzenegger stóð fyrir fjár-
öfluninni og bauð Fjallinu í mat og
UFC-áhorf á heimili sínu.
SAMEINAR HAF OG GEIM
dj flugvél og geimskip sendi á
föstudag frá sér sína þriðju plötu
sem nefnist Our Atlantis! Á henni
sameinar tónlistarkonan, Stein-
unn Harðardóttir, skemmtilega
umfjöllunarefni beggja fyrri verka
sinna, hafsbotninn og geiminn.
OG ÓSKARINN FÆR … SÁ
UMBREYTTI
Akademían
elskar þegar
leikarar,
sérstak-
lega karlar,
missa
nokkur kíló
eða bæta
þeim á sig fyrir
hlutverk. Christian
Bale er í ár tilnefndur fyrir hlutverk
sitt sem Dick Cheney í Vice en fyrir
það hlutverk breytti hann útliti sínu
helling.
ALLIR ÆTTU AÐ
SLEPPA SYKRI
Júlía Magnús-
dóttir, heilsu-
markþjálfi og
lífsstílsráðgjafi,
er hlynnt
einföldum
breytingum að
betri heilsu.
„Enda virka
megrunarkúrar
og stíf matar-
plön síður til
lengri tíma litið,“ sagði hún meðal
annars í umfjöllun í vikunni.
2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R64 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
5
-A
6
A
0
2
2
2
5
-A
5
6
4
2
2
2
5
-A
4
2
8
2
2
2
5
-A
2
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K