Fréttablaðið - 26.01.2019, Page 32

Fréttablaðið - 26.01.2019, Page 32
er búið að fletja þetta út,“ segir Helga sem segist örugglega myndu hafa upplifað kulnun í starfi ef hún hefði ekki gætt að heilsunni. „Það voru átta umsjónarmenn í Kastljósi, svo urðu þeir tveir, ég og Baldvin Þór Bergsson. Það var mikið álag þó það hefði líka verið gaman og ég hefði átt í mjög góðu samstarfið við Baldvin, við studd­ um við bakið hvort á öðru, það var ómetanlegt. Það hjálpaði líka að ég var hætt að borða sykur, drakk ekki áfengi og lifði eins heilsusam­ legu lífi og ég gat. Ég hafði reyndar ekki tíma til að hreyfa mig jafn­ mikið og ég vildi, ég var á þessum tíma einstæð móðir í rúmlega tvö ár og fannst ég aldrei hafa tíma til þess en maður verður að setja þetta í forgang, bara að labba með börnin í skólann er dýrmæt hreyfing inn í daginn. Hrynjum niður eins og flugur Álagið í þessum geira er eins og víða í samfélaginu ómannlegt. Störf okkar hafa ekki breyst, þau eru bara á færri höndum. Þetta er eitt af umfjöllunarefnum mínum og er brýnt. Því hvað er breytt? Hvers vegna er alvarleg streita og kulnun eins og faraldur. Við erum að hrynja niður eins og flugur. Við lögðum öll mikið á okkur í hruninu. Tókum á okkur miklar launalækk­ anir en bættum við okkur álagi. Hér erum við tíu árum síðar og afleiðingarnar eru ljósar. Það er eitt­ hvað að á vinnumarkaði og það þarf að takast á við það. Ég rýndi í starf Starfsendurhæfingarsjóðsins Virk sem hefur mikla innsýn inn í það af hverju við erum svona aðfram­ komin. Svo virðist sem mörkin á milli vinnu og einkalífs séu að mást út,“ segir Helga. Eru lausnir í sjónmáli? Hvað finnst þér að fólk ætti að gera? „Fólk verður að skilja að einka­ líf og vinnu og hvílast. Það er lykil­ atriði. Stéttarfélögin eru að velta upp mörgum leiðum í þessu efni, eitt var meðal annars nefnt við mig og það er að skoða þegar fólk lýkur vinnudeginum að það sé lokað á tölvupóstinn og hann sé ekki hægt að opna fyrr en nýr vinnudagur hefst. Ég skil ekki hvað fær vinnu­ veitendur til þess að senda vinnu­ tengda tölvupósta til starfsfólks sína langt fram eftir á kvöldin,“ segir Helga. „Ég á bágt með streitu, þegar ég er undir álagi þá finn ég hvernig það tætir upp í mér. Adrenalínið fer á flug. Við erum alltaf sítengd á samfélagsmiðlunum líka. Mér finnst rétt að taka streitumiklu líferni eins og hverri annarri neyslu. Eins og að borða sykur og drekka áfengi,“ segir Helga. Glímir við kvilla vegna streitu Helga segir að þó að hún sé með­ vituð um mikilvægi andlegra þátta þegar kemur að andlegri heilsu þá hafi í fyrstu vafist fyrir henni hvernig hún ætti að fjalla um þá. „Það er oft gert mjög lítið úr vægi þess andlega á heilsuna. Núvitund og hugleiðslu, slökunina. Ég fékk til mín fólk til að ræða um þessa þætti á mannamáli. Ég gerði æfingar í núvitund og átti bara fullt í fangi með þær. Ég er þannig að stundum magna ég upp streitu innra með mér svo að púlsinn er kominn upp í 120 slög! Streitan er minn helsti óvinur og ég glímdi við ýmsa kvilla vegna hennar, gegndarlausar sýkingar og margt fleira. Fyrsta æfingin mín fólst í að vera á staðnum og ég varð fljótt pirruð og sagði hei, ég er alveg á staðnum en ég er bara með fimm­ tíu verkefni á dagskrá,“ segir Helga og hlær. „Ég lærði að ná betri tökum á núvitund og að yfir daginn getur dugað fólki að gera nokkrar ein­ faldar æfingar. Bara það að fara í sturtu og einbeita sér að því að njóta þess að láta heitt vatnið renna á sig. Já, ég veit, það er einhver dulúð yfir þessu og fólk heldur kannski að þetta sé kjaftæði. En langt því frá, það er mikilvægt að veita heilanum hvíld. Og til dæmis að liggja aðeins lengur í rúminu og taka daginn inn í staðinn fyrir að stökkva fram úr rúminu. Þetta gæti gjörbreytt deg­ inum,“ segir Helga og bætir við að hún sé langt frá því fullnuma. „Ég var til dæmis með útvarpsviðtal sem ég var að fara í á heilanum í sturtunni í morgun. Átti fullt í fangi með þetta,“ segir hún. Helga segist einnig glíma við hugar farið. „Ég er svo samviskusöm, mér finnst ég alltaf vera að svíkjast um. Bragi þurfti oft að hughreysta mig og minna mig á ýmislegt. Þetta eru bara sjónvarpsþættir á Íslandi, slakaðu á, sagði hann stundum. Ég tek lítil skref. Aðrir ættu líka að reyna það, til dæmis í eina mínútu á dag. Maður þarf að æfa sig í þessu.“ Einmanaleikinn er eyðileggjandi Það sem Helgu fannst einna for­ vitnilegast í þáttagerðinni voru mikil áhrif einmanaleika á heilsuna. „Þetta sló mig. Einmanaleiki veldur líkamlegum einkennum, til dæmis bólgum í líkamanum svo ekki sé talað um geðræn einkenni, segir Helga. „Við erum nálæg í fjarlægð. Erum til taks fyrir vini okkar á sam­ félagsmiðlum en ekki í raun og veru. Vinur minn handleggsbrotnaði fyrir nokkru. Það voru allir í sambandi við hann og sendu honum bataóskir og hlýjar kveðjur. Hann sagði mér seinna að það hefði enginn komið í heimsókn. Ég er búinn að vera einn hér í þrjár vikur, sagði hann. Og þetta er rétt, það er eitthvað breytt. Samveran er minni og ég held að það geti haft neikvæð áhrif á heils­ una og lífslíkur. Kannski erum við svona óheppin en það er örsjaldan sem manni er boðið í matarboð og ég er ekki viss um af hverju það stafar. Kannski er það vegna þess að við höfum ekki tíma. Maður kemur örmagna heim og þá bíða heim­ ilisstörfin og börnin. Maður þarf að baða, gefa að borða og hjálpa til við heimavinnu. Svo þegar börnin eru farin að sofa, hvað gerir þú? Ferð „Einmanaleiki veldur líkamlegum einkennum, til dæmis bólgum í líkamanum,“ segir Helga. „Við erum nálæg í fjarlægð.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK ÞAÐ VAR HUGGUN AÐ FÁ FALLEGAR KVEÐJUR FRÁ STARFSFÓLKI BIRTÍNGS. EN ÞETTA HAFÐI VERULEG ÁHRIF Á MIG. ↣ 2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 5 -7 5 4 0 2 2 2 5 -7 4 0 4 2 2 2 5 -7 2 C 8 2 2 2 5 -7 1 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.