Fréttablaðið - 26.01.2019, Síða 33
ÉG KANN BARA AÐ VERA
HEIÐARLEG OG ÉG ÁKVAÐ
BARA AÐ LÁTA EKKI EIN-
HVERJA KARLA ÚR VIÐ-
SKIPTALÍFINU SMÁNA
MIG. ÞVÍ ÞANNIG ER ÞAÐ,
ÁKVEÐNAR OG KRAFT-
MIKLAR KONUR ERU
SMÁNAÐAR FYRIR AÐ
SÝNA FESTU.
kannski beint á Netflix. Kannski er
það vegna þess að við erum að bera
okkur saman við aðra á Facebook
og höldum að við þurfum að bjóða
upp á gæsalifur eða álíka. Sem er
fjarstæða. Ég á frábæra minningu
um matarboð hjá góðri vinkonu
minni sem bauð upp á fiskibollur í
bleikri sósu og Frónkex í eftirrétt og
við elskuðum það!
Ég gerði breytingar á eigin lífi.
Ég fór verulega út fyrir þæginda-
rammann og ákvað að fara að æfa
Beyoncé-dans í Kramhúsinu með
gamalli vinkonu. Ég græddi ekki
einungis betri heilsu heldur tengdi
ég upp á nýtt við vinkonu mína sem
ég hafði ekki haft mikil samskipti
við síðustu mánuði.“
Sveigjanleikinn ómetanlegur
Helga byrjaði ferilinn á næturfrétta-
vöktum á RÚV árið 2004 og vann
þar á bæði fréttastofum útvarps
og sjónvarps. Hún starfaði í sjö ár á
Stöð 2 sem fréttamaður og dagskrár-
gerðarmaður í sjónvarpi og útvarpi.
Þar framleiddi hún þætti sem njóta
vinsælda enn þann dag í dag, um
Guðmundar- og Geirfinnsmálin,
Mannshvörf á Íslandi og Óupplýst
sakamál. Hún starfaði í fréttaskýr-
ingarþættinum Kastljósi á RÚV frá
árinu 2014.
„Þegar maður starfar sjálfstætt
þá þarf maður að hafa fyrir því að
rækta félagsleg tengsl. Að eiga góða
vinnufélaga er vanmetið og ég er
mikil félagsvera. Ég sakna þess að
hitta fólkið í bransanum. Á RÚV
starfar svo ofboðslega skapandi og
gott fólk. En sveigjanleikinn sem ég
fæ og frelsið við að vinna sjálfstætt
er ómetanlegt, “ segir Helga.
Forsendubrestur
Fyrir rúmu ári ákvað hún að skipta
um starfsvettvang og tók spenn-
andi atvinnutilboði frá Birtíngi um
að verða yfirritstjóri útgáfufélagsins
Birtíngs. Hún átti þó eftir að staldra
stutt við hjá fyrirtækinu.
„Ég fékk þetta góða boð um að
verða yfirritstjóri útgáfufélagsins og
þáði það. Ég sagði upp góðri stöðu
á RÚV og sá fyrir mér mikil tæki-
færi og skemmtilega áskorun. Mér
var ágætlega tekið en ég skynjaði
samt ólgu. Það var búið að vara mig
við því að á vinnustaðnum væru of
margir sem ynnu undir miklu álagi
og á of lágum launum. Á Birtíngi
starfaði magnað fólk sem gæfi út
ótrúlega flott blöð en fengi ekki að
njóta þess. Ég kom inn af krafti og
með skýra sýn. Eftir 8 daga í starfi
var mér tilkynnt að það yrðu breyt-
ingar á rekstri. Ég yrði ekki lengur
yfirritstjóri heldur ætti eingöngu
að sinna starfi ritstjóra Mannlífs. Ég
átti að vera svokallaður skrifandi rit-
stjóri. Þetta var allt annað starf en ég
var ráðin til og ég var búin að segja
upp starfi sem ég naut farsældar í. Ég
mótmælti þessu harkalega. Þetta var
samningsbrot og algjör forsendu-
brestur. Þessar hugmyndir voru
dregnar til baka og sagt við mig að
af þessu yrði ekki, a.m.k. ekki strax
en ég fann strax þarna að andrúms-
loftið var breytt.“
Traustið var farið
Helga sá sig knúna til að senda út
yfirlýsingu á Facebook um starfslok
sín á Birtíngi. „Ég var drifin áfram af
ástríðu og trúði því að ég gæti gert
góða hluti. Það var huggun að fá fal-
legar kveðjur frá starfsfólki Birtíngs.
En þetta hafði veruleg áhrif á mig.
Eftir fundinn þar sem stjórnendur
tilkynntu mér einhliða að hlutverk
mitt yrði breytt þá fann ég að traust-
ið var farið. Viku fyrir útgáfu fyrsta
og eina tölublaðs sem ég stýrði af
Mannlífi þá hættu þeir að tala við
mig. Þá vissi ég að þetta væri bara
orðið gott.“
Helga hefur eingöngu starfað á
tveimur fjölmiðlum á sínum 15 ára
ferli að frátöldum Birtíngi. „Ég hef
aldrei kynnst viðlíka framkomu
og varð fyrir miklum vonbrigðum.
Ég átti í frábæru samstarfi við yfir-
menn mína á RÚV og á Stöð 2 naut
ég sjálfstæðis. Ég þekki til dæmis
ekki Jón Ásgeir, ég tala bara fyrir mig
en það voru aldrei nokkur afskipti
af mínum störfum þar. Ég tek mig
hátíðlega sem blaðamann, ég gef
bara engan afslátt og þannig verður
það áfram. Ég kann bara að vera
heiðarleg og ég ákvað bara að láta
ekki einhverja karla úr viðskiptalíf-
inu smána mig. Því þannig er það,
ákveðnar og kraftmiklar konur eru
smánaðar fyrir að sýna festu,“ segir
Helga.
Dýrmæt reynsla
Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði
nokkuð gott og Helga segist hafa
öðlast dýrmæta reynslu. „Það góða
í þessu öllu saman er að þarna gafst
mér andrými til að stofna mitt eigið
fyrirtæki. Nokkru síðar var ég kölluð
á fund hjá Símanum og með þeim
hef ég átt í frábæru og faglegu sam-
starfi. Þeir eru að gera góða hluti og
eru framsýnir, ég get vel hugsað mér
að starfa meira fyrir þá. Ég hef aldr-
ei áður verið sjálfstæður atvinnu-
rekandi og sá ekki þennan mögu-
leika. Ég er ótrúlega ánægð. Það er
fyrir öllu að starfa með góðu fólki.
Ég er fjölmiðlakona, ég verð það
alltaf. Ég er alltaf að leita að sögum
og þetta er bara ævistarfið. Hver
veit hvort ég fari aftur í fast starf? Ég
ætla bara að sjá til. Ég á mér nefni-
lega fleiri drauma. Ég el nú draum
um að skrifa, er bæði með glæpa-
sögu fyrir sjónvarp og barnabók í
maganum. Ég ætla aðeins að virkja
það og kanna hvert það leiðir mig.
En einmitt núna á heilsan og langlífi
hug minn allan. Ég er að fara af stað
með hlaðvörpin og heimasíðu sem
heldur utan um efnið ef ég fæ styrki
og stuðning til þess,“ segir Helga.
M O R G U N F U N D U R I S A V I A
F A R Þ E G A S P Á
K E F L A V Í K U R F L U G V A L L A R
2 0 1 9
Isavia boðar til morgunfundar þann
29. janúar næstkomandi á Hilton
Reykjavík Nordica kl. 8.30.
Á fundinum verður farþegaspá
Keflavíkurflugvallar fyrir árið 2019
kynnt og rætt um mikilvægi flugvallarins,
flugrekstrar og öflugs samstarfs
í íslensku efnahagslífi.
Boðið verður upp á kaffi og létta
morgunhressingu.
Skráning fer fram á
www.isavia.is/morgunfundur
Dagskrá
— Björn Óli Hauksson,
forstjóri Isavia, setur fundinn
F A R Þ E G A S P Á 2 0 1 9
— Hlynur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs
Isavia á Keflavíkurflugvelli
S T E R K A R I S A M A N
— Pétur Óskarsson,
framkvæmdastjóri Íslandsstofu
F Y R I R S P U R N I R Ú R S A L
Fundarstjóri er Elín Árnadóttir,
aðstoðarforstjóri Isavia.
S K R Á N I N G
I S AV I A . I S/ M O R G U N F U N D U R
H I LT O N R E Y K J AV Í K N O R D I C A
2 9 . J A N Ú A R K L . 8 . 3 0
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 2 6 . J A N Ú A R 2 0 1 9
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
5
-B
A
6
0
2
2
2
5
-B
9
2
4
2
2
2
5
-B
7
E
8
2
2
2
5
-B
6
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K