Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 40

Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 40
Orkuskipti í sam- göngum eru sam- bærileg þeim orkuskipt- unum sem urðu með innleiðingu hitaveitunn- ar á sínum tíma. Vera Einarsdóttir vera@frettabladid.is Rafvæðing bílaflotans felur ekki aðeins í sér loftslagsávinning. Aukin nýting innlendra endurnýjanlegra orkugjafa hefur fjárhagsávinning í för með sér. Aðgerðaáætlun í loftslags-málum 2018-2030 var kynnt síðastliðið haust en mark- mið hennar er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að aukinni kolefnisbindingu þannig að Ísland geti staðið við markmið Parísarsamningsins til 2030 og markmið ríkisstjórnar- innar um kolefnishlutleysi árið 2040. Áætlunin samanstendur af 34 aðgerðum á ýmsum sviðum en megináherslurnar eru á orku- skipti í samgöngum, með sérstakri áherslu á rafvæðingu í vega- samgöngum og átak í kolefnis- bindingu þar sem skógrækt og landgræðsla gegna lykilhlutverki. Um 60 prósent af olíunotkun hér á landi tengjast vegasam- göngum en olíunotkun er stærsti hluti þeirrar losunar sem er á ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Til að standa við þær skuldbindingar sem Ísland hefur undirgengist með Parísarsáttmálanum er því nauðsynlegt skipta olíu út fyrir umhverfisvæna orkugjafa. Orku- skipti í samgöngum eru sambæri- leg þeim orkuskiptum sem urðu með innleiðingu hitaveitunnar á sínum tíma. Hætt var að brenna mengandi og innfluttum orku- gjöfum og innlend, endurnýjanleg orka nýtt í staðinn. Verkefnið í dag er af sama meiði og markmiðið að vera á meðal fyrstu ríkja heims til að ná fram fullum orkuskiptum, það er bæði í húshitun og vega- samgöngum. Eftirfarandi aðgerðir veiga- mestar þegar kemur að orku- skiptum í samgöngum: n Verulega verður aukið við fjárfestingar og innviði vegna rafvæðingar í samgöngum en ríkisstjórnin áætlar að verja 1,5 milljörðum króna á næstu fimm árum til uppbyggingar inn- viða fyrir rafbíla og rafvæðingu hafna. n Hvatar til að fjárfesta í öku- tækjum sem losa lítinn koltví- sýring verða efldir. Ívilnunum fyrir rafbíla og aðra visthæfa bíla verður viðhaldið og nýjum ívilnunum komið á vegna almenningsvagna, dráttarvéla og fleiri þyngri ökutækja og vegna kaupa og útleigu á ökutækjum í atvinnurekstrarskyni. n Kolefnisgjald verður áfram hækkað og almenningssam- göngur styrktar í samræmi við samgönguáætlun. Fylgt verður fordæmi nágrannaríkja líkt og Noregs, Frakklands og Bret- lands og mörkuð sú stefna að nýskráning bíla sem eingöngu ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði ólögmæt. Miðað er við árið 2030. n Gætt verður sérstaklega að hugsanlegum undanþágum t.d. á stöðum þar sem erfitt kann að vera að nota aðra bíla en þá sem ganga fyrir bensíni og dísil. Íslendingar standa betur að vígi þegar kemur að nýtingu endur- nýjanlegra orkugjafa en margar aðrar þjóðir en með því að nýta í stórauknum mæli okkar eigin endurnýjanlegu orkuauðlindir í stað innflutts eldsneytis mun efna- hagslegt sjálfstæði landsins styrkj- ast. Aðgerðaáætlunin felur því ekki aðeins í sér loftslagsávinning. Samkvæmt útreikningum Hag- fræðistofnunar Háskóla Íslands borgar rafvæðing bílaflotans sig til lengri tíma út frá hreinum fjár- hagssjónarmiðum. Heimild: stjornarradid.is Ísland er í fararbroddi í átt að fullum orkuskiptum Orkuskipti í sam- göngum eru sam- bærileg þeim orkuskiptum sem urðu með innleiðingu hita- veitunnar á sínum tíma. Markmið stjórnvalda er að Ísland verði á meðal fyrstu ríkja heims til að ná fullum orkuskipt- um, það er bæði í húshitun og vega- samgöngum. Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir þýðingarmikið að koma á fót kauphöll raforkunnar sem muni hafa fjölbreytt jákvæð áhrif í framtíðinni. MYND/STEFÁN Ef maður horfir á raforku-kerfið þá er það raunveru-lega forsenda fyrir nútíma- lifnaðarháttum að hafa aðgang að öruggu og traustu rafmagni á hagkvæman hátt,“ segir Guð- mundur og bætir við: „Ef raf- magnið bregst í dag þá stoppar allt, að ég tali nú ekki um í fram- tíðinni þegar tæknin leikur enn þá stærra hlutverk. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa öf luga innviði og til að svo megi vera þurfum við að styrkja raforku- kerfið.“ Hann segir raforkumarkað og þjóðaröryggi tengjast sterkum böndum. „Hægt er að tala um öryggi til lengri tíma og skemmri. Dagsdaglega eða til skemmri tíma þarf að tryggja að það sé alltaf nægilegt framboð af raforku til að mæta markaðnum. Við þurfum að hafa f lutnings- kerfi sem hindrar ekki f læðið og svo þurfum við að hafa af l til að mæta sveif lum sem kunna að verða og þar spilar orku- markaðurinn verulegt hlutverk. Sama gildir um óveður og bilanir í kerfinu. Svo þegar horft er á hagsmuni þjóðarinnar í sam- hengi við náttúruhamfarir eins og eldgos þá skiptir miklu máli að geta f lutt orku milli svæða til að reyna að lágmarka tjón og hafa þá góðar viðbragðsáætlanir til að gera við eða hreinlega að stjórna því hverjir fá aðgang að þessum takmörkuðu auðlindum sem yrðu við slíkar aðstæður.“ Til lengri tíma mun skilvirkur raforkumarkaður gefa vísbend- ingar til stjórnvalda, almenn- ings og orkugeirans um hvort það sé lítið framboð á raforku, sem myndi þýða hærra verð. Slík skilaboð frá markaði tengjast langtímaraforkuöryggi sterkum böndum. Hátt verð í kauphöll- inni hvetur til fjárfestinga í nýjum virkjunum og f lutnings- kerfi. Með sama hætti leiðir lágt verð til minni fjárfestinga en ella. „Það er engin tilviljun að ef orku- stefnur nágrannalanda okkar eru skoðaðar, þá er skilvirkur mark- aður með raforku efst á blaði í orkuöryggiskaf la stefnunnar.“ Hann segir að líta megi á Landsnet sem tengil. „Við tengjum saman þá sem fram- leiða orku og þá sem nota hana. Við tengjum stærri notendur beint og minni notendur gegnum dreifikerfin. Okkar kerfi nær um allt land og okkar hlutverk er að tryggja örugga orkuf lutninga og jafna aðgengi að rafmagni og raf- kerfinu. Okkur er líka ætlað það hlutverk að auðvelda orkuvið- skipti og að tryggja öryggi íbúana og atvinnulífsins.“ Meginverkefni Landsnets á næstu árum eru tvíþætt að sögn Guðmundar. „Að treysta betur f lutningskerfið því það eru ann- markar á því og við getum ekki alls staðar tryggt nægjanlegt öryggi. Og síðan að þróa með einhverjum hætti og auka skil- virkni markaðarins til að auka samkeppni á raforkumarkaði og þannig lækka orkukostnað fyrir heimili og fyrirtæki.“ Hann segir heilmikla sam- keppni um raforku á Íslandi í dag. „ Við höfum skilgreint okkur sem evrópskt raforkuf lutnings- fyrirtæki og höfum tekið þátt í evrópsku samstarfi með það að markmiði að aðlaga viðskipta- umhverfi hér að alþjóðlegu fyrir- komulagi. Þetta er mikilvægt fyrir samkeppnishæfni þjóðar- innar því margir kaupendur raf- orku eru alþjóðleg fyrirtæki sem horfa bæði til verðs og viðskipta- umhverfis þegar þau velja sér stað til að vera á. Þá skiptir miklu máli að vera með viðskiptaum- hverfi sem er í takt við þær þjóðir sem við erum í samkeppni við.“ Að lokum vill hann ítreka mikilvægi samkeppnisviðskipta með raforku. „Það gleymist oft í umræðunni að skilvirk gagnsæ samkeppnisviðskipti með raf- orku leiða til betri nýtingar orku- auðlindanna og þeirra innviða sem við eigum. Ávinningurinn er ekki einungis lægra orkuverð því góð nýting mannvirkjanna dregur úr fjárfestingum og minnkar umhverfisáhrif.“ Tengsl milli raforkumarkaðar og þjóðaröryggis Raforkukerfið skiptir miklu máli fyrir öryggi íbúa landsins og til að tryggja skilvirkni er nauðsynlegt að koma á fót heildsölumarkaði, eins konar kauphöll raforku að mati Guðmundar Inga Ásmundssonar, forstjóra Landsnets. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RORKA ÍSLANDS 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 5 -F A 9 0 2 2 2 5 -F 9 5 4 2 2 2 5 -F 8 1 8 2 2 2 5 -F 6 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.