Fréttablaðið - 26.01.2019, Side 46
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@frettabladid.is
Dansinn hefur alltaf skipað stóran sess á Reykjavíkurleik-unum en aðaldansdagurinn
er á morgun, sunnudag. Jóhann
Gunnar Arnarsson er í stjórn Dans-
íþróttasambandsins og verður auk
þess kynnir á mótinu.
„Danshluti Reykjavíkurleikanna
Íslenskir og erlendir
dansarar á heimsmælikvarða
Dansinn mun duna á Reykjavíkurleikunum á sunnudaginn eins og þegar þessi mynd var tekin 2016. MYND/VILHELM
Jóhann Gunnar
Arnarsson er í
stjórn Dans-
íþrótta-
sambands
Íslands
og verður
kynnir á
mótinu.
MYND/STEFÁN
Dansinn verður
áberandi á
Reykjavíkurleik-
unum í ár sem
endranær enda
dansíþróttin í
miklum vexti í
kjölfar vinsæls
sjónvarpsþáttar.
hefur í gegnum tíðina verið ein
af skrautfjöðrum mótsins, enda
vandað til verka í skipulagningu
allri,“ segir Jóhann. „Mótið hefst
í fyrramálið og stendur keppnin
yfir fram til fjögur þegar er gert
hlé. Hátíðardagskrá hefst á kvöld-
verði og svo úrslitum í nokkrum
flokkum, sem kepptu fyrr um
daginn. Þetta er mikið sjónarspil og
öllu tjaldað til.“ Hann segir mikið
lagt í mótið að þessu sinni. „Fimm
erlendir dómarar dæma mótið, allir
með viðurkennd alþjóðleg rétt-
indi, en þeir eru Aigars Stolcers frá
Kanada, Emil Ioknikov frá Banda-
ríkjunum, Anastasia Titkova frá
Rússlandi, Susanne Radich Holde
frá Danmörku og Nuno Moreira frá
Portúgal.“
Hann bendir á að íslensk danspör
hafa í gegnum tíðina náð gríðar-
lega góðum árangri í sinni íþrótt á
alþjóðlegum vettvangi. „Við höfum
átt heimsmeistara, Norðurlanda-
meistara, sigurvegara og pör sem
dansað hafa til úrslita á flestum allra
sterkustu keppnum sem haldnar
eru í heiminum. Flest okkar allra
bestu pör munu keppa á Reykjavík-
urleikunum í öllum aldursflokkum
og getustigum, en einnig eru tíu
erlend pör skráð til leiks, mörg hver
hafa náð miklum árangri í dansí-
þróttinni á alþjóðlegum vettvangi.
Það verður því mikið um dýrðir.“
Hann bendir á að undanfarin ár hafi
RÚV sýnt beint frá útslitunum en
svo verði ekki í þetta sinn. „Úrslitin
verða sýnd í sjónvarpinu eftir tíu-
fréttir á mánudagskvöld og svo
aftur á laugardaginn næsta klukkan
13.40. Þetta er eini glugginn okkar
á árinu inn í stofu til fólks og hefur
alltaf vakið gríðarlega athygli
og það er mikið áhorf.“
Keppt er annars
vegar í suðuramer-
ísku dönsunum
og hins vegar
í almennum
ballroom-dansi
og í öllum
flokkum. „Við
verðum með
keppendur
á öllum getu-
stigum, allt frá
meistaraflokki og
niður í átta ára börn.“
Hann segir að sér virð-
ist sem aðsókn og áhugi á dansi hafi
aukist eftir danskeppnina Allir geta
dansað sem var vinsælt sjónvarps-
efni í fyrra. „Það er mikið af hjónum
og pörum sem eru að byrja í dansi
núna og það er kannski vegna þess
að þættirnir hafa vakið áhugann.
Því það geta allir dansað og það er
bara svo rosalega skemmtilegt.“
Jóhann byrjaði sjálfur að dansa
þegar hann var fjögurra ára á Akur-
eyri og hefur kennt dans í rúm-
lega tuttugu ár. Honum
finnst skemmti-
legast að horfa á samba og slow
foxtrott. „Það er bara svo rosalega
mikil reisn og fegurð yfir þessum
dönsum, þeir eru gríðarlega tækni-
lega erfiðir og tónlistin fer inn í
beinin á manni.“
Jóhannn segir ýmislegt á döfinni
hjá Dansíþróttasambandinu. „Við
erum með þessa keppni núna, svo
er Íslandsmeistaramót í suður-
amerískum dönsum í febrúar og
Íslandsmeistaramótið í tíu dönsum
í mars og svo Íslandsmeistara-
mótið í ballroom-dönsum í maí.
Pörin okkar eru svo alltaf að keppa
erlendis og ná gríðarlega góðum
árangri og hafa meðal annars
komist í úrslit á heimsmeistara-
mótum. Ég vil sérstaklega minnast
á ungu pörin okkar 10-12 ára sem
hafa líka verið að ná mjög góðum
árangri. Við eigum mikið af afreks-
íþróttafólki í dansinum þótt það
fari ótrúlega hljótt.“
Nánari upplýsingar má finna á
Facebook á RIG 2019 – danskeppni
og á vefsíðunni www.dsi.is.
Fimmtudagur 7. febrúar
Fimmtudagur 31. janúar
Sýningar komnar í febrúar
Föstudagur 1. febrúar
Föstudagur 8. febrúar
„Fyndnasta sýningin
á höfuðborgarsvæðinu“
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
6
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
4
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
5
-C
E
2
0
2
2
2
5
-C
C
E
4
2
2
2
5
-C
B
A
8
2
2
2
5
-C
A
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
2
8
s
_
2
5
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K