Fréttablaðið - 26.01.2019, Síða 84

Fréttablaðið - 26.01.2019, Síða 84
Á sýningunni sýnir Andri Snær 52 ólíkar skálar sem flestar eru úr íslenskum við sem fellur til við grisjun. Hér má sjá úrval af fjölbreyttum skálum hans. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is KONUR Í ATVINNULÍFINU Blaðið er unnið í samtarfi við FKA - Félag kvenna í atvinnulífinu. Blaðið verður gefið út þann 31. janúar eða sama dag og árleg viðurkenningarhátíð FKA fer fram, þar sem þrjár glæsilegar konur fá sérstakar viðurkenningar fyrir að hafa verið öðrum konum í atvinnulífinu hvatning og fyrirmynd. Daginn eftir munu svo viðtöl við þessar glæsilegu konur birtast í Fréttablaðinu. Öll fyrirtæki og stofnanir sem eru stolt af því að hafa jafnrétti kynjanna í hávegum stendur til boða að taka þátt í þessu blaði með auglýsingu eða umfjöllun. Nánari upplýsingar um blaðið veitir: Jóhann Waage markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5656 / johannwaage@frettabladid.is FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum ferming rgjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningun i um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsing pláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Í síðustu viku var opnuð sýningin Skál á viku í húsnæði Handverks og hönnunar á Eiðistorgi á Sel- tjarnarnesi. Þar sýnir Andri Snær Þorvaldsson afrakstur síðasta árs en þá renndi hann eina skál á viku, samtals 52 skálar yfir árið. „Ég hef aðeins fiktað við trérennsli undan- farin ár en alltaf með löngum hléum. Mig langaði að æfa mig meira og ná upp betri lagni. Hug- myndin að verkefninu kom upp um mitt árið 2017 en í desember sama ár fluttum við fjölskyldan í stærra húsnæði og þá loksins eignaðist ég bílskúr sem ég gat innréttað sem vinnustofu. Tíma- setningin gat ekki verið betri og ég renndi fyrstu skálina 1. janúar 2018. Mér fannst góð hugmynd að sameina svo allar skálarnar að lokum og sýna þær saman, bera þær saman og sjá þróunina.“ Hann segir skál vera mjög teygjanlegt hugtak. Hún geti verið nytjahlutur eða staðið ein og sér sem listaverk. „Sumar hugmyndir komu úr bókum eða af netvafri en skemmtilegustu hugmyndirnar koma þó oft með því að handleika og skoða efniviðinn sem ég á hverju sinni. Ég reyni að vinna sem mest með íslenskan við sem fellur til við grisjun. Íslenska birkið er í miklu uppáhaldi og er algengasti efniviðurinn í skálunum. Inn- lendi viðurinn er þó ekki mjög fjölbreyttur og því nota ég líka innfluttan harðvið inn á milli. Nytjahlutir og listaverk Jólaskálin er úr íslensku birki, með handútskornum átt- blaðarósum. Fallegt íslenskt lerkið og börkurinn sem minnir á hraun. Prjónaskál úr íslensku birki sem heldur hnyklinum á sínum stað. Möndluskál úr hnotu var skemmtileg formtilraun. Andri Snær Þor- valdsson renndi eina skál á viku í fyrra. Afrakstur- inn er til sýnis á sýningunni Skál á viku á Eiðistorgi. Frábærar viðtökur Andri Snær er er menntaður grunn- og framhaldsskólakennari og hefur unnið sem smíðakennari í grunnskóla í tíu ár. „Það hentar mér mjög vel að vinna með hönd- unum í skapandi umhverfi. Ég er líka með BA-gráðu í arkitektúr frá Listaháskólanum og í framhalds- skóla var ég á listnámsbraut.“ Viðtökurnar við sýningunni hafa verið frábærar að hans sögn. „Skál á viku er á Facebook og Instagram og þar setti ég inn myndir af skálum hverrar viku jafnóðum. Það var fjölmenni á opnun sýningarinnar og nú þegar er meira en helmingur skálanna seldur.“ Mikill tími fór í gerð skálanna á síðasta ári og því er kærkomin afslöppun á dagskránni til að byrja með hjá honum. „Ég held þó áfram að renna og hef líka tíma til að einbeita mér að annars konar smíðum sem ég hef áhuga á. Það væri þó gaman að endurtaka leikinn á næsta ári, hvort sem það verða fleiri skálar eða eitthvað allt annað.“ Sýningin mun standa til og með 8. febrúar. Sjá nánar á Facebook (Skál á viku) og á Instagram (skala- viku). Andri Snær Þorvaldsson. 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 2 6 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 4 F B 1 2 8 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 2 5 -D 3 1 0 2 2 2 5 -D 1 D 4 2 2 2 5 -D 0 9 8 2 2 2 5 -C F 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 1 2 8 s _ 2 5 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.