Mosfellingur - 30.01.2014, Síða 20
Varmá Fréttarit sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
Heimili: Lindarbyggð 9.
Starf: Kennari.
Fæðingardagur: 4. júlí 1971.
Maki: Dögg Harðardóttir.
Börn og aldur þeirra:
Einar Aron f. 1996 og Jóel f. 2000.
Menntun: B.Ed. í kennsluvísindum.
Félagsstörf:
Ýmis nefndar og trúnaðarstörf á vegum Félags grunnskólakenn-
ara, stjórn Gídeonfélagsins 2007-2011, stjórn BKNE 2006-2008,
stjórn UFA 2010-2012, stjórn BKNE 2010-2014. Fulltrúi Íslands í
vísindasamfélagi Scientix á vegum EU, fulltrúi kennara í fræðslu-
nefnd Mosfellsbæjar.
Áhugamál:
Fjölskyldan nr. 1, framsækni í kennslufræði, kristin trú og
trúarbrögð almennt.
Tölvupóstur: xfjalar@gmail.com
Helstu áherslur:
Framsækni í menntamálum með áherslu á úrræði fyrir a) bráð-
gera nemendur til að styrkja og efla námslega getu þeirra og b)
nemendur með hegðunar-, aðlögunar- og/eða samskiptaröskun
með miðlægu námsveri þar sem nemendur verði þjálfaðir til
þátttöku í almennum skóla.
Styðja við kristna trú og gildi sem hafa gert okkur að þeirri þjóð
sem við erum og mótað samfélag okkar.
Fjalar Freyr Einarsson gefur kost á sér í 5. sæti
Hafsteinn Pálsson gefur kost á sér í 2. - 3. sæti
Heimili: Dalatangi 29.
Starf: Verkfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Fæðingardagur: 7. september 1952.
Maki: Lára Torfadóttir kennari við Lágafellsskóla.
Börn og aldur þeirra: Guðrún Erna (34 ára) íþróttafræðingur og
grunnskólakennari, Jóhanna Rut (29 ára) hjúkrunarfræðingur og
Snævar Ingi (25 ára) háskólanemi.
Menntun: Doktorspróf í byggingarverkfræði frá Georgia Tech,
Atlanta, Georgia, Bandaríkjunum 1982 og byggingarverkfræð-
ingur frá Háskóla Íslands 1976.
Félagsstörf: Bæjarfulltrúi í 10 ár, frá 2007 og frá 2002 til 2006.
Hann hefur m.a. verið formaður fræðslunefndar, formaður
íþrótta- og tómstundanefndar, formaður bæjarráðs og forseti
bæjarstjórnar. Í stjórn ÍSÍ frá 1992, stjórnarformaður Íslenskra
Getrauna frá 2007 og áður ýmis trúnaðarstörf fyrir Aftureldingu,
m.a. fyrsti formaður knattspyrnudeildar. Jafnframt ýmis trúnaðar-
störf fyrir verkfræðinga.
Áhugamál: Íþróttir, félagsmál og ferðalög.
Tölvupóstur: dalat@simnet.is
Helstu áherslur: Áherslur mínar eru að efla og styrkja það fram-
sækna samfélag sem við höfum búið okkur í bænum okkar. Mér
er umhugað um að bæjarfélagið okkar sé fjölskylduvænt og þá
bæði umhverfið og sú þjónusta sem er veitt með virðingu fyrir
þörfum allra aldurshópa. Áhugasviðin eru fræðslumál, íþrótta- og
æskulýðsmál og sú grunnþjónusta sem veita þarf af umhyggju í
fjölskylduvænu umhverfi.
Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson gefur kost á sér í 5. sæti
Heimili: Fálkahöfða 17.
Starf: Framkvæmdastjóri Lágafellssóknar, varabæjarfulltrúi
og formaður menningarmálanefndar.
Fæðingardagur: 14. október 1962.
Maki: Sólveig Ragnarsdóttir, flugsálfræðingur.
Börn og aldur þeirra: Ragnar Bjarni Zoëga 13 ára,
Fjóla Rut 6 ára og Arna Sól 4 ára.
Menntun: Kjötiðnaðarmeistari, framhaldsmenntun
í Dk: Félags og æskulýðsmálafræði.
Félagsstörf: Allt frá því í framhaldsskóla hef ég verið mjög
virkur í félagsstarfi. Helst er þar að nefna félagsstarf sem tengist
barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar og KFUM & KFUK bæði hér
á landi og sem fulltrúi Íslands á norrænum vettvangi. Einnig hef
ég starfað í stjórnum og nefndum innan Sjálfstæðisflokksins svo
sem varaformaður Eyverja - félags ungra í Vestmannaeyjum sem
og stjórnarmaður félagsins hér í Mosfellsbæ.
Áhugamál: Söngur hefur verið áhugamál lengi. Hef tekið þátt
í söngstarfi með: Æskulýðskór KFUM&K, Karlakór Fóstbræðra,
Kirkjukór Breiðholtskirkju, Kirkjukór Landakirkju, Kirkjukór
Bústaðakirkju og ýmsum kvartettum. Tók virkan þátt í starfi SUS
og einnig í bæjarpólitíkinni í Vestmannaeyjum.
Tölvupóstur: Hreidar@kirkjan.is
Helstu áherslur: Að halda áfram þeirri vegferð sem við erum
á hér í Mosfellsbæ, að byggja upp gott og öflugt samfélag.
Samfélag sem styður ríkulega við íþrótta-, æskulýðs- og tóm-
stundastarf. Samfélag sem nær að halda utan um börnin okkar
bæði í og utan skóla. Samfélag sem stendur vörð um þjónustu
við eldri borgara. Í stuttu máli fjölskylduvænt samfélag.
Heimili: Skálahlíð 46.
Starf: Bæjarstjóri.
Fæðingardagur: 14. desember 1961.
Maki: Ragnheiður K. Gunnarsdóttir, forstöðumaður
í Fjársýslu ríkisins.
Börn og aldur þeirra: Steinunn Anna, 32 ára. Valgerður Rún, 22
ára. Sverrir, 13 ára. Auk þess 3 barnabörn.
Menntun: Viðaskiptafræðingur frá HÍ. Framhaldsnám í fjármálum
og stjórnun við University of Arizona USA.
Félagsstörf: Formaður Golfklúbbsins Kjalar 1996–2000.
Varabæjarfulltrúi 1998–2002, sat í skipulags- og bygginganefnd
og menningarmálanefnd. Bæjarfulltrúi frá 2002, formaður
bæjarráðs og skipulags- og bygginganefndar.
Bæjarstjóri frá árinu 2007.
Áhugamál: Útivera, náttúran og fjallgöngur, golf,
fjölskyldan og stjórnmál.
Tölvupóstur: haraldur@mos.is
Heimasíða: facebook.com/pages/Haraldur-Sverrisson-í-1-sæti
Helstu áherslur: Við búum í einstöku bæjarfélagi með frábæra
möguleika. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa með
Mosfellingum sem bæjarstjóri undanfarin ár. Þetta hefur verið
skemmtilegur og lærdómsríkur tími á miklu erfiðleikatímabili
íslensku þjóðarinnar. Það hefur gengið vel í Mosfellsbæ, bæjar-
félagið stendur vel og bjartir tímar framundan. Í störfum mínum
fyrir Mosfellsbæ hef ég lagt mig fram um að gera gott samfélag
enn betra. Ég er fullur af krafti og áhuga á að halda þessu starfi
áfram og óska eftir stuðningi Mosfellinga til þess.
Haraldur Sverrisson gefur kost á sér í 1. sæti
Eva Magnúsdóttir gefur kost á sér í 4. sæti
Heimili: Leirvogstunga 20.
Starf: Forstöðumaður hjá Mílu.
Fæðingardagur: 8. apríl 1964.
Maki: Finnur Sigurðsson.
Börn og aldur þeirra: Ísabella Ýr Finnsdóttir 18 að verða 19 ára
og Gréta Rós Finnsdóttir 16 ára.
Menntun: MBA í viðskiptafræði og stjórnun, háskólapróf í
hagnýtri fjölmiðlun, BS próf í þjóðháttafræði með sænsku í vali.
Félagsstörf: Ég hef verið formaður fræðslunefndar í tæp
tvö ár og varaformaður í nefndinni í 3 ár. Ég starfaði í stjórn
Fimleikadeildar Aftureldingar í 9 ár, þar af sem formaður í 8.
Einnig sit ég í skólanefnd Framhaldsskólans í Mosfellsbæ. Ég var
varaþingmaður Suðvesturkjördæmis 2009-2013 og sat að auki í
stjórn foreldrafélags Reykjakots.
Áhugamál: Hreyfing er mér gríðarlega mikilvæg, útivist sérstak-
lega, fjallgöngur og hlaup með fjölskyldu og vinum.
Tölvupóstur: evamagnusdottir@hotmail.com
Helstu áherslur: „Ég legg áherslu á að við eflum fjölbreytta
menntun og íþróttastarf í Mosfellsbæ. Við eigum að halda
áfram að virkja íbúa til þátttöku með íbúalýðræði í mikilvægum
málum. Sveitarfélag er eins og heimili eða fyrirtæki og á að
rekast sem slíkt; að ráðstafa fé annarra á ekki að vera auðveldara
en að ráðstafa sínu eigin. Við þurfum að varðveita sérstöðu
Mosfellsbæjar sem felst í þessari nálægð við náttúruna og vinna
áfram að því að bjóða fjölbreytta þjónustu fyrir unga sem aldna.
Í stækkandi bæ þarf að huga betur að uppbyggingu í atvinnu-
og ferðamálum svo Mosfellingar geti bæði verið gestgjafar og
starfað í heimabyggð.“