Mosfellingur - 30.01.2014, Blaðsíða 21
Fréttarit sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ Varmá
Heimili: Ásland 3.
Starf: Kennari og lýðheilsufræðingur.
Fæðingardagur: 19. ágúst 1967.
Maki: Sigurður Andrésson byggingameistari.
Börn og aldur þeirra: Þorsteinn Már 24 ára, Andrés Leó 17 ára og
Snorri Þór 8 ára. Eitt barnabarn.
Menntun: Grunn- og framhaldsskólakennari, Mph í lýðheilsufræð-
um og diploma í hagnýtri fjölmiðlun. Nemandi í viðskiptafræði
við Háskólann á Bifröst.
Félagsstörf: Frá 2010 formaður fjölskyldunefndar og varabæj-
arfulltrúi. Bæjarfulltrúi frá janúar 2013. Frá 2008 - 2011 formaður
knattspyrnudeildar Aftureldingar. Hugmyndasmiðurinn á bakvið
Íþróttafjörið sem er samstarf Ungmennafélags Aftureldingar og
Mosfellsbæjar. Einn af stofnendum Erindi - samtaka um samskipti
og skólamál, sem hefur farið með verkefnið Ást gegn hatri í
fjölmarga skóla landsins.
Áhugamál:
Fyrir utan stjórnmálin er það fjölskyldan, útivera, ferðarlög,
blómlegt mannlíf og skemmtilegur félagsskapur.
Tölvupóstur: kolbrunth@mos.is
Heimasíða: www.facebook.com/kolbrun3mos
Helstu áherslur:
Í mínum huga er ekkert sem skiptir okkur Mosfellinga meira máli
en að hér verði áfram styrk stjórn sem ber hag Mosfellsbæjar
fyrir brjósti og óska ég eftir að fá að vera áfram í þessu góða og
trausta liði. Sem formaður fjölskyldunefndar eru áherslur mínar
á því sviði, þ.e. að halda áfram að fylgja stefnu Mosfellsbæjar í
velferðarmálum.
Heimili: Einiteigur 1.
Starf: Vöru- og viðskiptastjóri hjá Opnum kerfum ehf.
Fæðingardagur: 7. maí 1973.
Maki: Bylgja Bára Bragadóttir.
Börn og aldur þeirra: Bragi Þór Rúnarsson fæddur 1994
og Birta Rut Rúnarsdóttir fædd 2001.
Menntun: Diploma frá Endurmenntun Háskóla Íslands í rekstrar-
og viðskiptafræði sem og markaðs- og útflutningsfræði.
Félagsstörf: Er formaður þróunar- og ferðamálanefndar
Mosfellsbæjar sem og formaður heilbrigðisnefndar Kjósarsvæðis.
Sit í stjórn Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Hef setið
í barna- og unglingaráði hjá ÍR og hjá Aftureldingu. Hef verið
formaður þorrablótsnefndar Aftureldingar sl. sjö ár ásamt því að
hafa sinnt hinum ýmsu sjálfboðaliðastörfum fyrir félagið.
Áhugamál: Fjöskyldan á hug minn allan í frístundum, sem og
flestar íþróttir og útivera eins og t.d. golf, fótbolti og útilegur.
Tölvupóstur: runarbg@hotmail.com
Helstu áherslur: Ég legg mikla áherslu á það að einstaklingar
og fyrirtæki fái að blómsta í Mosfellsbæ. Mosfellsbær þarf að
geta þjónað þegnum sínum á þann hátt að þeir geti farið
áhyggjulausir í háttinn á kvöldin og vaknað fullir eftirvæntingar
til að takast á við daginn. Ferðaþjónustan er sífellt stækkandi og
þarf Mosfellsbær að tryggja sýnileika sinn og vera fyrsti kostur
yfir áhugaverða staði á Íslandi fyrir ferðamenn. Mosfellsbær er
heilsubær og eigum við að gera fólki á öllum aldri kleift að auka
heilbrigði sitt og lífsgæði. Ég legg áherslu á að Mosfellsbær
verði með bestu skólana, bestu þjónustuna, bestu fyrirtækin og
bestu íþróttafélögin.
Rúnar Bragi Guðlaugsson gefur kost á sér í 4. sæti
Sigurður Borgar Guðmundsson gefur kost á sér í 3. sæti
Heimili: Asparteigur 3, 270 Mosfellsbæ.
Starf: Sölustjóri hjá Ölgerðinni.
Fæðingardagur: 4. janúar 1965.
Maki: Gerður Gísladóttir, tónlistarkennari.
Börn og aldur þeirra: Karitas 21 árs og Guðmundur Gauti 18 ára.
Menntun: Rafiðn og nám í iðnrekstrarfræði.
Félagsstörf: Ég hef gegnt eftirfarandi trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn: formaður kjördæmisráðs sjálfstæðisfélag-
anna í Suðvesturkjördæmi, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna í Mosfellsbæ, formaður Sjálfstæðisfélags Mosfellinga,
formaður Viljans, félags ungra sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ,
aðalmaður í íþrótta-, tómstunda- og leikskólanefnd.
Áhugamál: Hjólreiðar, skíðamennska, líkamsrækt, garðrækt og
ferðalög.
Tölvupóstur: sigurdurborgar@gmail.com
Helstu áherslur: Ég vil leggja metnað minn í að gera góðan bæ
enn betri þar sem fjölskyldan er í fyrirrúmi. Gæta þess um leið að
huga að ólíkum fjölskyldumynstrum og þörfum ólíkra hópa, svo
sem ungs fólks og eldri borgara. Tryggja þarf góðan aðbúnað
nemenda og kennara í skólum bæjarins. Finna þarf leiðir til að
efla íþrótta- og æskulýðsstarf, einkum er snýr að aðstöðumálum.
Ég vil efla atvinnustarfsemi í sambandi við sívaxandi fjölgun
ferðamanna. Laða að þann mikla fjölda gesta sem fer í gegnum
Mosfellsbæ. Það eru ákveðin forréttindi okkar Mosfellinga að
búa í nánd við fallegt og einstakt umhverfi. Hlúa þarf að því. Í
áframhaldandi skipulagi og uppbyggingu bæjarins
þarf að taka mið af þörfum íbúana á hverjum tíma.
Viðhalda góðri og skilvirkri stjórnsýslu.
Ólöf A. Þórðardóttir gefur kost á sér í 5. sæti
Heimili: Brattholt 6e.
Starf: Aðalbókari ISS Ísland ehf.
Fæðingardagur: 15. október1964.
Maki: Pétur R. Pétursson.
Börn og aldur þeirra: Björn Hlynur 26 ára
og Alexander Glói 18 ára.
Menntun: Mannauðsstjórnun í Háskóla Íslands.
Félagsstörf: Er í dag formaður Leikfélags Mosfellssveitar
sem er eitt öflugasta áhugaleikfélag landsins og ritari BÍL
(Bandalag íslenskra leikfélaga). Áður hef ég gegnt hinum ýmsu
trúnaðarstörfum fyrir Junior Chamber-hreyfinguna bæði hér á
landi og erlendis, m.a. forseti, landsritari og störf í alþjóðlegum
verkefnum, hef hlotið senatora- og heiðursfélagaútnefningu frá
alþjóðahreyfingunni fyrir mín störf þar.
Áhugamál: Fjölskyldan og vinir, leikhúslífið og menning í allri
sinni mynd, hönnun og prjón, útivist og ferðalög.
Tölvupóstur: lmolof@visir.is
Helstu áherslur:
Ég legg áherslu á góðan rekstur, skynsamlega uppbyggingu
ásamt góðri fjárstýringu. Við búum í bæjarfélagi þar sem haldið
hefur verið vel á spöðunum. Menningar-, íþrótta- og tómstunda-
starf er í miklum blóma og það er mín einlæga löngun að halda
því góða starfi áfram sem hefur verið í gangi undangengin ár.
Við þurfum að halda áfram uppbyggingu í öldrunarþjónustu
sem við höfum náð að gera svo góð skil. Ég býð mig fram til að
leggja hönd á plóg til að gera gott bæjarfélag enn betra.
Karen Anna Sævarsdóttir gefur kost á sér í 7. sæti
Heimili: Tröllateigur 41.
Starf: Nemi og fimleikaþjálfari.
Fæðingardagur: 25. júlí 1995.
Maki: Ásgeir Elíasson.
Börn og aldur þeirra: Engin.
Menntun:
Nemi við Menntaskólann við Sund.
Fimleikaþjálfararéttindi A, B og C.
Félagsstörf:
Nemendafélag Varmárskóla í 10. bekk.
Áhugamál:
Hreyfing og flest allt sem tengist íþróttum.
Fjölskylda og mannúðarmál o.fl.
Tölvupóstur: karenanna95@hotmail.com
Helstu áherslur:
Ég vil taka þátt í uppbyggingu og vera rödd unga fólksins í
bænum okkar. Ég hef mikinn áhuga á að leggja mitt af mörkum
til uppbyggingar öflugs íþrótta- og félagsstarfs í bæjarfélaginu
sem er nauðsynlegt fyrir börn og unglinga sem eru framtíð okkar
Mosfellsbæjar.
Kolbrún Guðný Þorsteinsdóttir gefur kost á sér í 3. sæti
Auglýsing
sjálfstæðisfélag Mosfellinga