Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Qupperneq 8
8 14. desember 2018FRÉTTIR LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM Greiðslulausnir tengdar helstu afgreiðslukerfum Sjálfstandandi greiðslulausnir og handfrjálsir posar Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060 Frost í sölu fasteigna í miðbænum M ikið framboð er af nýjum íbúðum til sölu í miðbæ Reykjavíkur og bendir ýmislegt til að markaðurinn sé mjög hægur, jafn- vel frosinn. Samkvæmt lauslegri talningu DV eru um 150 nýjar íbúðir óseldar á fasteignasíð- um og enn fleiri á leiðinni. Í Hagsjá Landsbankans í vikunni birtust vangaveltur um hvort verið væri að byggja of mikið af íbúðum hérlendis, eina ferðina enn. Margt virðist þó benda til þess að of mikið hafi verið byggt á röngum stað á höfuðborgarsvæðinu. 74% íbúða óseld DV tók saman stöðuna á sölu nýrra íbúða í miðbæ Reykjavíkur. Samkvæmt fasteignasíðum eru fjöl- margar íbúðir til sölu í alls tíu nýbyggingum, Geirs- götu 2 og 4, Tryggvagötu 13, Frakkastíg 8C, 8D og 8E, Hverfisgötu 58A, 58B og 94 auk Arnarhlíðar 1 sem tilheyrir Valssvæðinu svokallaða. Alls hafa 217 íbúðir í þessum húsum verið boðnar til sölu undanfarna mánuði en aðeins 56 eru seldar, ef mið er tekið af þinglýstum eigendum í Fasteignaskrá. Það þýðir að 74% íbúðanna eru óseld. Nokkrar vikur getur tekið að þinglýsa kaupsamningum á nýjar íbúðir og því eru þessar tölur birtar með þeim fyrir vara. Flestir virðast sammála um að mikil umfram- eftirspurn sé eftir húsnæði á höfuðborgarsvæðinu og nærliggjandi svæðum. Það er því augljóst að ástæðan fyrir því að íbúðirnar seljast ekki er aðeins eitt, verðið. Markaðurinn fyrir fasteignir í miðbænum er takmarkaður. Út af verðinu er ólíklegt að ungt fólk sem er að leita að sinni fyrstu eign eigi möguleika á að kaupa eignir. Þá eru minni líkur en meiri á að barnafólk hafi áhuga á að búa í slíkum eignum í miðbænum. Meginuppistaða markaðarins er því barnlaust fólk í eldri kantinum sem kannski er að minnka við sig og hugnast það vel að búa í hringiðu miðborgarinnar. Fermetraverð eignanna í þessari úttekt DV er frá rúmlega 600 þúsundum króna og allt upp í tæplega eina milljón króna. Til samanburðar þarf að leita í skamma stund til þess að finna nýbyggingar í Graf- arholti fyrir rúmlega 400 þúsund krónur á fermetr- ann. Þá hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir fjárfesta að talsvert magn af nýbyggingum á enn eftir að koma inn á markaðinn. Þar má nefna glæsilegar íbúð- ir við Austurbakka sem og mörg hundruð íbúð- ir á Valssvæðinu. Þar hafa íbúðir í fjölbýlishúsi við Arnarhlíð 1 verið í sölu í tæpa átta mánuði en að- eins 25 af 46 íbúðum hafa selst. n Arnarhlíð 1. Eigandi: B-reitur ehf. Hverfisgata 94. Eigendur: Hverfisstígur ehf. og SA Byggingar ehf. Frakkastígur 8C, 8D og 8E. Eigandi: Blómaþing ehf. Tryggvagata 13. Eigandi: T13 ehf. Geirsgata 2 og 4. Eigandi: Reykjavik Development ehf. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Geirsgata 2: Ein íbúð seld af 22. Fermetraverð: 780–947 þúsund krónur. Geirsgata 4: Engin íbúð seld af 28. Fermetraverð: 790–946 þúsund krónur. Tryggvagata 13: Níu íbúðir seldar af 38. Fermetra- verð 630–793 þúsund krónur. Frakkastígur 8C: Fimm íbúðir seldar af 22. Fer- metraverð 614–787 þúsund krónur. Frakkastígur 8D: Þrjár íbúðir seldar af 21. Frakkastígur 8E: Fjórar íbúðir seldar af 8. Hverfisgata 58A og 58B: Átta íbúðir seldar 16. Fermetraverð 604–791 þúsund krónur. Hverfisgata 94: Ein íbúð seld af 16. Fermetraverð um 620 þúsund krónur. Arnarhlíð 1: Tuttugu og fimm íbúðir seldar af 46. Fermetraverð á bilinu 650–740 þúsund krónur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.