Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Síða 14
14 14. desember 2018FRÉTTIR Bjóðum uppá frítt söluverðmat Grensásvegi 13, 108 Reykjavík / S: 570 4800 Næsti kafli hefst hjá okkur Herbergi hans tæmt án hans vitundar S vo virðist sem undirskrifta- listi 12 starfsmanna hjúkr- unarheimilisins Kirkjuhvols hafi nægt bæði stjórnend- um heimilisins og sveitarstjórn til að vísa Tryggva Ingólfssyni af heimilinu þann 27. mars síðast- liðinn. Samkvæmt yfirlýsingu sem sveitarfélagið sendi frá sér vegna málsins kemur fram að sveitar- félagið beri rekstrarlega ábyrgð á Hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli en tekið sérstaklega fram að það hafi engar faglegar forsendur til að grípa inn í einstök mál skjól- stæðinga þess, þó svo að þeir beri skýra lagalega ábyrgð á að veita íbúum þjónustu sína. Í samtali við Ísólf Gylfa Pálma- son, fyrrverandi sveitarstjóra Rangárþings eystra gat hann ekki svarað DV hvort eða hvenær Landlæknisembættið hafi í sam- ráði við sveitarfélagið og stjórn- endur hjúkrunarheimilisins ákveðið að neita Tryggva um vistun á hjúkrunarheimilinu. Samkvæmt yfirlýsingu sveitarfé- lagsins var sagt að ekki hefði ver- ið hægt að tryggja öryggi hans og var því neitað að taka við honum. Þarna stemma dagsetningar ekki og virðist Tryggva því hafa verið vísað ólöglega út af hjúkr- unarheimilinu án nokkurra faglegra forsendna eða með vit- neskju fagaðila. Virðist því sem undirskriftir starfsmannanna hafi verið einu forsendurnar fyrir því að neita Tryggva aftur um vist eftir meira en tíu ára búsetu þar. Tryggvi Ingólfsson, sem er lamaður fyrir neðan háls, hefur í átta mánuði þurft að dúsa í litlu herbergi á Landspítalanum í Fossvogi. Áður hafði hann dvalið við gott atlæti á dvalar- og hjúkr unarheimilinu á Kirkjuhvoli á Hvols- velli í ellefu ár. Í byrjun árs þurfti Tryggvi að fara í aðgerð á Landspít- alanum. Á meðan hann var fjarver- andi skrifaði starfsfólk heimilisins undir undirskriftalista þess efnis að það myndi ganga út ef Tryggvi sneri aftur á Kirkjuhvol. Hefur fjöl- skylda Tryggva fengið mismun- andi skýringar á þessum aðgerð- um starfsfólks, allt frá því að Tryggvi væri erfiður í samskiptum og ylli miklu álagi á starfsfólk, yfir í að ekki væri hægt að tryggja öryggi hans á Kirkjuhvoli. Hjúkrunarheimilið gat þó í 11 ár veitt honum þjónustu án þess að nokkurn tímann hafi verið rætt að öryggi hans væri ógnað með veru hans þar. Í stað þess að dvelja í rúmlega 500 metra fjarlægð frá eiginkonu sinni þá aðskilja rúmlega 100 kílómetrar þau. Tryggvi dvelur einn og yfirgefinn á lungnadeild Landspítalans í Fossvoginum og getur ekki hitt ástvini sína eins oft og hann langar. Hann segist upp- lifa sig sem einskis nýtan pappa- kassa sem sé hent í geymslu. Fjöl- skyldumeðlimir telja að um gróft mannréttindabrot sé að ræða en engin lausn virðist í sjónmáli. Kostnaðurinn við dvöl Tryggva í Fossvoginum er ærinn eða um 350 þúsund krónur á dag. Tæmdu herbergi hans án hans samþykkis eða vitundar Starfsfólk Kirkjuhvols tók sig saman um miðjan október og tæmdi herbergi Tryggva án þess þó að láta hann vita eða fjölskyldu hans. Aldrei á neinum tímapunkti var beðið um leyfi hjá Tryggva eða fjölskylda hans spurð hvort hún vildi nálgast eigur hans. DV reyndi ítrekað að hafa samband við for- stöðumann Kirkjuhvols til að fá skýr svör um hvort fyrir hafi legið heimild frá Tryggva til að tæma herbergið hans. Erfitt var að ná í forstöðumann Kirkjuhvols, Sól- veigu Unni Eysteinsdóttur, og reyndi DV í rúma viku að ná sam- bandi við hana. Þegar það tókst var hún spurð hvort Tryggvi hefði veitt heimild þar að lútandi. „Þarf ég þess,“ sagði Sólveig. Mun verða fluttur nauðugur á hjúkrunarheimili í Reykjavík Búið er að tilkynna Tryggva að hann verði fluttur af lungnadeild Landspítalans þann 3. janúar næstkomandi á hjúkrunarheim- ilið Droplaugarstaði í Reykjavík. Tryggvi segist alls ekki vilja fara þangað því hann vilji vera nær fjölskyldu sinni. Samkvæmt ör- uggum heimildum DV er velferð- arráðuneytið í samningaviðræð- um við hjúkrunarheimilið Lund á Selfossi um að þjónusta Tryggva. Þær samningaviðræður virð- ast hafa siglt í strand vegna þess að upphæðin sem ráðuneytið er tilbúið að borga vegna Tryggva er mun lægri en var greitt með honum á hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli. n Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson bjartmar@dv.is Tryggvi verður fluttur nauðugur á hjúkrunar- heimili í Reykjavík Elísabet, eiginkona Tryggva.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.