Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Qupperneq 27
FÓLK - VIÐTAL 2714. desember 2018
þættirnir verða tíu talsins.
Hera lofar því að velgengnin á
erlendum vettvangi verði ekki til
þess að hún hætti að taka við hlut-
verkum hérlendis. Hún segir það
skipta sig gríðarlegu máli að halda
í heimaræturnar og það standi
ekki til að það breytist.
Skype-símtalið sem breytti öllu
Hera segir tilhugsunina um að fá
að leika í ævintýramynd frá Peter
Jackson hafa verið svo langsótta
að hún hafi ekki einu sinni leitt
hugann að því. Hún var meðvituð
um að framleiðendur myndarinn-
ar voru búnir að leita eftir annarri
leikkonu til að leika Hester.
Hermt er að ráðningarferli Heru
hafi verið hið óvenjulegasta, en að
endingu hafi fyrri frammistaða
leikkonunnar gert að verkum að
aðstandendur stórmyndarinn-
ar heilluðust af henni og ákváðu
að ráða hana. Eins og fréttaveitur
hafa greint frá fékk hún hlutverk-
ið í gegnum símaforritið Skype í
afslöppuðu spjalli, sem leikkon-
unni þótti hið undarlegasta.
„Þau voru aðallega að selja
mér hlutverkið og söguna, á með-
an ég bjóst við því að ég væri sú
sem þyrfti að sannfæra þau um að
ég væri rétta manneskjan,“ segir
Hera.
„Ég held að þau hafi skoðað
það sem ég hafði gert áður og
heyrt í fólki sem ég hafði unnið
með. Nokkrum dögum síðar var
ég svo komin með handritið og til-
boð um hlutverkið. Þá þurfti ég allt
í einu að ákveða hvort ég ætlaði að
hrökkva eða stökkva.“
Kona í karlmannshlutverki
Hera segir það vera hægara sagt
en gert að samþykkja hlutverk í
kvikmynd af þessari stærðargráðu.
„Þegar þú tekur að þér svona
hlutverk ertu að skuldbinda þig
í langan tíma, og hinum megin á
hnettinum í þessu tilfelli,“ segir
hún. „Þetta er nógu stór ákvörðun
ef myndin væri aðeins ein, hvað
þá ef þær yrðu fleiri. En á endan-
um blasti það við að tækifærið var
of stórt til að sleppa því, auk þess
þegar ég las handritið og meira
um persónuna Hester og bækurn-
ar sjálfar gat ég ekki annað en sagt
já.“
Leikkonan bætir við að það sé
fágætt að túlka jafn margslungna
persónu í leiðandi kvenhlut-
verki og ekki síður í „blockbust-
er“ mynd, sem hún segir ekki ger-
ast oft. Hún segir söguþráð Hester
Shaw vera í raun vera týpískan
og karllægan, í þeim skilningi að
erkitýpa af þessari gerð er nær
undantekningarlaust leikin af
karlmönnum.
Aðspurð hvaða helstu áskor-
anir hafi fylgt hlutverkinu seg-
ir hún þær hafa verið margvís-
legar. „Í fyrsta lagi snerist þetta um
að skilja hvernig Hester líður og
hvernig það er að bera jafn mik-
inn andlegan farangur hvert sem
maður fer,“ segir Hera. „Einnig var
mikilvægt fyrir mig að átta mig á
því hvernig er að lifa með einhvers
konar útlitsgalla.“
Leikkonan segir þá tilbreytingu
kærkomna að stórmynd bjóði upp
á aðalpersónu sem er afmynduð
í framan. Venjan hefur yfirleitt
verið sú að glansinn í bransanum
fyrirbyggi slíkt. Hún tekur þó skýrt
fram að hún vilji ekki tala um að
þetta sé galli heldur í raun og veru
karaktereinkenni.
„Hester hins vegar upplifir sig
sem gallaða og fólk dæmir hana
út frá útliti hennar,“ segir Hera. „Ég
vildi skilja hvernig það er að lifa án
mannlegra samskipta eins og hún
gerir og hvaða áhrif það hefur á
viðkomandi.“
Hópur með sterkar skoðanir
Frá því að fyrsta sýnishorn
myndarinnar birtist á veraldar-
vefnum hafa aðdáendur skáld-
sagnanna verið duglegir að láta í
sér heyra varðandi útlit leikkon-
unnar. Áðurnefnd ör aðalpersón-
unnar hafa þar verið til mikillar
umræðu og þær raddir hafa verið
háværar að Hera sé einfaldlega of
falleg fyrir hlutverkið.
Í bókunum er Hester lýst með
andlitslömun sem veldur varan-
legu hæðnisglotti og lítið er eftir
af nefi hennar. Örið fer þvert yfir
vinstra auga og hefur mörgum þótt
útkoma örsins í kvikmyndinni fara
aðeins of fínt í hlutina. Bæði Peter
Jackson og Christian Rivers hafa
svarað þessari gagnrýni aðdáenda
og segja kvikmyndir vera sjónræn-
an miðil þar sem ör af þessu tagi
eru ekki alltaf áhorfendum bjóð-
andi. Leikstjórinn vonast til þess
að áhorfendur geti séð myndina
fyrst til þess að skilja hvaðan sú
ákvörðun, að tóna örið niður, kom.
Hera er spurð hvort hún finni
fyrir aukinni pressu bókaaðdá-
enda og hvernig sú tilfinning sé að
takast á við persónu sem fjöldi fólks
hefur séð fyrir sér. Hún segist vera
alveg meðvituð um þrýstinginn,
en henni þyki jafnframt gefandi að
vinna að einhverju sem stór hópur
fólks á heimsvísu hlakkar til að sjá.
„Auðvitað er þetta hópur sem
hefur sterkar skoðanir, en við
gerðum okkar besta við að halda
tryggð við bækurnar. Til dæmis
kom höfundur bókanna á sett og
var algjörlega hluti af verkefninu
frá byrjun,“ segir Hera.
Tilfinningin í maganum
Hera er ekki mikil áhættuleikkona
en hún var hörð á því að líta ekki
út eins og þrautþjálfuð hetja sem
kynni að berjast eða drepa, heldur
venjuleg ung kona sem væri hel-
tekin af reiðinni, ofar öllu öðru.
„Það var mikilvægt fyrir mig að
hún liti þannig út líkamlega, að
hún væri manneskja sem gerði
mistök þegar kæmi að þessum
kúnstum og þess háttar.“
Hera bendir á að í hvaða fagi
sem er sé mikilvægt að leyfa sér
að vera hræddur. Hjá henni gildi
þetta bæði um leikinn og lífið.
„Það er sama hversu absúrd
heimurinn er, því raunveruleik-
inn getur verið fáránlegur, en
„Raunveru
leikinn getur
verið fáránlegur
Hera bauð fjölskyldunni í bíó.
„Það skipt
ir öllu að
vera tengdur við
augnablikið
Hera með andlitsörið umtalaða.MYND HANNA/DV