Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Side 30
Jólablað 14. desember 2018KYNNINGARBLAÐ Heimilislíf (heimilislif.is) er ný vefverslun sem selur tyrknesk handklæði, ilmkerti, ilmstangir og náttúrulegar húðvörur á góðu verði. Tyrknesku handklæðin eru mikil gæðavara: Þau eru úr mjúkri 100% tyrkneskri bómull og eru til í nokkrum mynstrum og litum. Einnig er hægt að nota þau sem teppi. Ilmkerti og ilmstangir frá Skye Candles eru handunnar vörur og til í mörgum litum og eru í fallegum, litríkum umbúðum. Jólailmurinn í línunni er dásamlega hátíðlegur. Náttúrulegar húðvörur Húðvörurnar frá Odylique eru nátt- úrulegar og án allra aukaefna. Þær eru handunnar á lítilli vinnustofu í Bretlandi. Odylique eru margverð- launaðar vörur sem hreinsa, mýkja, skrúbba og gefa húðinni ljóma. Þær henta sérstaklega vel fyrir viðkvæma húð. Sjá nánar um þessar og aðrar vörur á vefnum heimilislif.is þar sem hægt er að skoða í rólegheitunum. Þess má geta að frí heimsending er á pöntunum fyrir 15.000 krónur eða meira. Jólamarkaðurinn í Hjartagarði Það er þægilegt að versla á netinu og lítil yfirbygging veldur því að vefverslun á borð við Heimilislíf getur boðið hágæða vörur á hagstæðu verði. En það er líka gaman að þreifa á vörunni og eiga samskipti við þann sem selur. Þess vegna er gaman að segja frá því að Heimilislíf verður með myndarlegan bás á Jólamark- aðnum í Hjartagarði, Laugavegi 19 um helgina (14.–16. desember). Þar verða vörur verslunarinnar á sérs- töku jólatilboði. n HEIMILISLÍF: Tyrknesk handklæði og fleiri eðalvörur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.