Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Side 31
Jólablað 14. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
MÍA & MÍÓ:
Hágæða vörur fyrir börnin
Mía & Míó er barnavöruverslun sem leggur mikið upp úr vali á hágæða vörum.
Kidwild:
Dúnmjúk barnaföt úr lífrænni bómull
sem aldrei hefur komist í snertingu við
skaðleg efni og er öll unnin á siðferð-
islegan máta. Fötin eru einstaklega
vönduð og koma í stærðum fyrir
0–5 ára. Hönnunin er tímalaus og
einkennist af jarðarlitum sem henta
bæði stelpum og strákum.
Mountain buggy:
Mountain buggy er þekkt um allan
heim fyrir einstaka hönnun á vögnum
og kerrum. Þróunin á vörum þeirra
undanfarna áratugi byggist á þörfum
nútíma foreldra þar sem einfaldleiki,
lipurð og tækni er í fyrirrúmi. Hönnun-
in er lausnamiðuð og allir eiga að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
hvort sem það eru foreldrar með eitt
barn eða fleiri, borgarbúar, útivist-
argarpar, heimshornaflakkarar eða
annað.
Mountain buggy er einnig með
bílstóla á markaðnum fyrir börn frá
fæðingu og allt upp 12 ára. Þeir hafa
hlotið einróma lof, þá sérstaklega
snúningsbílstóllinn, Safe Rotate, en
hann er frábær sem stóll númer tvö
og er fyrir börn í þyngd 0–18 kíló.
Bloom baby
Coco go ömmustólarnir hafa verið
gríðarlega vinsælir frá því þeir komu
fyrst til landsins og oft myndast bið
eftir þeim. Efnið í sætinu lífræn bóm-
ull, viðurinn er fenginn úr sjálfbærri
ræktun og allt ál og plast er endur-
unnið efni. Hönnunin er falleg og
praktísk, stóllinn getur bæði ruggað
og staðið, setið í þremur mismunandi
stillingum og svo er rafhlöðuknúinn
titringur með tveimur stillingum. Það
fer með eindæmum vel um lítil börn í
þessum stól á meðan hann er einnig
fínasta stofustáss.
Falleg stjörnukort
Stjörnukortin eru handmáluð fyrir
hvern og einn og afar persónuleg.
Þar koma fram allar fæðingarupp-
lýsingar ásamt stjörnumerkinu. Hægt
er að sníða myndirnar að hverjum og
einum svo hver fái þann litatón sem
hann óskar eftir. Myndirnar prýða
ófá barnaherbergin í dag og er þetta
mjög vinsælt í skírnar- og jólagjafir.
Nánari upplýsingar á miamio.is
Facebook-síða: Mía & Míó
Instagram: miaogmio
Netpóstur: miamio@miamio.is n