Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2018, Qupperneq 42
Jólablað 14. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
NÓNA ICELAND:
Gullfallegar hekl- og
prjónavörur fyrir barnið
Hjá barnafatamerkinu Nóna Iceland má eflaust finna þær allra fallegustu og krúttlegustu
prjónaflíkur sem Ísland hefur upp á að
bjóða. Flíkurnar eru ætlaðar jafnt strák-
um sem stelpum á aldrinum 0–8 ára og
fást í fallegum mildum litum úr guðdóm-
legri merínoull. „Nafnið Nóna kemur úr
fjölskyldunni, en gullið hún amma mín
sáluga var mikil prjónakona og var alltaf
kölluð Nóna. Mamma mín er sömuleiðis
fyrirmyndarprjónakona sem og ég sjálf,“
segir Sif Vilhjálmsdóttir, eigandi Nóna
Iceland.
Að mörgu að huga
Sif hannar sjálf þessar fallegu flíkur. Það
er að mörgu að huga þegar kemur að
því að hanna prjónaða eða heklaða flík.
„Það er enginn að finna upp hjólið þegar
kemur að prjónahönnun, en þetta tekur
allt mjög langan tíma; allt frá því að ég
fæ hugmynd í kollinn þangað til flík er
fullkláruð og tilbúin í sölu. Það þarf að
finna hvaða garnþykkt hentar, lykkju-
fjölda, sentimetra og ýmis smáatriði. Svo
þarf að fullklára flík og láta barn máta
og helst nota í smá tíma til að sjá eig-
inleika vörunnar og vita hvort það megi
bæta og breyta,“ segir Sif. Vörurnar eru
frá því að vera fyrir allra minnstu krílin
og upp í átta ára. Sif segist þó framleiða
þónokkuð af sérpöntunum fyrir eldri
krakka og stundum fyrir fullorðna.
Fjölskyldan hjálpast að
Nóna Iceland er sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki þar sem allir hjálpast að
þegar mikið liggur við. „Ég framleiði
mestan hlutann ásamt tengdamóð-
ur minni. Tengdamamma hefur verið
algjör klettur í þessu öllu saman, enda
er þetta sameiginlegt áhugamál okkar.
Svo hafa foreldrar mínir staðið þétt við
bakið á mér frá því að ég byrjaði, sem er
algjörlega ómetanlegt. Einnig virkja ég
alla í fjölskyldunni þegar það er brjál-
að að gera, til dæmis til sauma merki í,
verð- og stærðarmerkja vörur og annað
smálegt,“ segir Sif.
Mjúk og falleg ull
Merínoullin kemur af merínokindum
sem eru upprunalega frá Spáni. Ullin er
fíngerðari en venjuleg ull og stingur ekki.
Þess vegna hentar hún einstaklega vel
fyrir litla fólkið. Einangrunareiginleikar
merínoullar eru einstakir og þar að auki
er hún létt og andar vel. Merínoullin
er teygjanleg sem fyrirbyggir að flíkur
aflagist og krumpist við notkun og hafa
viðskiptavinir talað um að flíkurnar
hreinlega stækki með barninu. „Dúsk-
arnir sem við notum eru úr gervifeldi
enda erum við fjölskyldan miklir dýravin-
ir,“ segir Sif.
Nánari upplýsingar má nálgast á
nonaiceland.is
Facebook: nonaiceland
Instagram: nonaiceland
Sími: 770-8121
Netpóstur: nonaiceland@nona-
iceland.is n