Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 10
10 28. desember 2018
Gleðilega meltingu
Vertu í toppformi.
Betri melting, meiri orka og góð líðan
Enzymedica býður uppá öflugustu
meltingarensímin á markaðnum en
einungis eitt hylki með máltíð getur
öllu breytt.
Digest Basic hentar fyrir börn
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða
25% A
FSLÁTTU
RHát
íða
rafsláttur
H á t í ð a r a f s l
á t t
ur
ANNÁLL - FEBRÚAR
Umdeildir umskurðir
og Ási keyrir
DV fjallaði um
dularfull katta-
dráp á Suðurlandi
en allt að fimm-
tíu kettir hafa ver-
ið drepnir með
eitri eða horfið á
þessum slóðum
undanfarin ár.
Ekki er vitað hver
eða hverjir eru að
verki og málið er
enn óupplýst.
Hanna Kristín Skaftadóttir greindi frá því að fyrrverandi kær-
asti hennar, athafnamaðurinn Magnús Jónsson, hefði undirritað
dómsátt og fallist á að greiða henni miskabætur, 1,6 milljónir króna.
Rúmu ári fyrr hafði Magnús gengið í skrokk á Hönnu Kristínu á hót-
eli í Austin í Texas og ákvað hún síðar að höfða einkamál á hendur
Magnúsi.
Ættingjar einstaklinga sem hvíla
nærri Steingrími Njálssyni,
þekktasta barnaníðingi Íslands-
sögunnar, í Gufuneskirkjugarði
hafa farið fram á að lík hans verði
fjarlægt enda valdi það þeim
hugarangri.
Umskurðarfrumvarpið svokallaða
vekur mikla athygli, innanlands
sem utan. Í frumvarpinu, sem
Silja Dögg Gunnarsdóttir lagði
fram ásamt átta öðrum þing-
mönnum, er kveðið á um að
umskurður drengja verði
bannaður hérlendis nema af
heilsufarsástæðum. Frumvarp-
ið er mjög umdeilt og sérstak-
lega eru gyðingar úti um allan
heim afar hneykslaðir. Frum-
varpið hefur enn ekki náð
fram að ganga en það virðist
hafa dagað uppi á Alþingi.
Umræða um endurgreiðslur
vegna aksturs þingmanna gýs
upp og er Ásmundur Friðriks
son, sem fékk 4,6 milljónir
endurgreiddar árið á undan
vegna aksturs, skotspónn gagn-
rýnenda. Síðar á árinu kemur í
ljós að Ásmundur hefur feng-
ið 23 milljónir endur-
greiddar frá því að
hann settist á
þing árið 2013.
DV birtir hljóð- og myndbandsupptökur af blaðamönnum að kaupa
dauðadópið contalgin af spákonu sem býr í Breiðholti. Verðið á töfl-
unni er 8 þúsund krónur en töflurnar eru keyptar á 1.000 krónur hver
á Spáni. Heimildir blaðsins herma að íslenskur karlmaður sem áður
hefur gerst sekur um refsiverða háttsemi sé nánast einráður þegar
kemur að innflutningnum.
Guðmundur Ellert Björns
son, starfsmaður Barna-
verndar Reykjavíkur, var
ákærður fyrir gróf kynferðis-
brot gegn fjórum börnum.
Síðar sama ár var Guðmundur
sýknaður á héraðsdómsstigi
en málinu var áfrýjað til
Hæstaréttar.