Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Síða 16
16 28. desember 2018ANNÁLL - APRÍL Kosningabarátta, eldsvoði og flótti Sindra Sturla Sigurgeirsson, karlmaður á sextugsaldri, er dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa fróað sér í gestamót­ tökunni á Hótel Sögu við Hagatorg í nóvember 2016. Greint er frá stórbruna í atvinnuhúsnæði í Garðabæ. Í húsinu er fataverslunin Icewear til húsa sem og geymsluleigan Geymslur.is. Húsið brennur til kaldra kola og fjölmargir Íslendingar tapa verðmætum sem þeir höfðu kom­ ið fyrir í geymslu í húsnæðinu. Meðal þeirra sem glata verð­ mætum eru Björgvin Hall- dórsson og Sigríður Beinteinsdóttir. Ágúst Guðmundsson lýsir því í viðtali við DV hvernig honum tókst að smygla sér út úr Taílandi og sleppa þar með við áratuga­ langan fangelsis­ dóm. Ágúst átti allt að þrjátíu ára fangelsisdóm yfir höfði sér fyrir að ráð­ ast á starfsmenn þarlendrar verslunar með piparúða og stela sígarettum og freyðivíni. Ágúst sætti slæmri meðferð ytra á meðan hann þurfti að dúsa þar í haldi og var hann beittur margs konar ofbeldi. Lögreglan lýsti eftir Sindra Þór Stefánssyni sem strauk frá Sogni þar sem hann sat í gæsluvarð­ haldi vegna gagnaversmálsins svokallaða. Um var að ræða þjófnað á um 600 tölvum. Verðmæti þeirra var um 200 milljónir króna og eru tölvurnar enn ófundnar. Flótti Sindra Þórs vakti mikla athygli, innanlands sem og erlendis, og sérstak­ lega sú staðreynd að hann náði að flýja land í sömu flugvél og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Ís­ lands. Sindri var síðan gripinn í Amsterdam en réttarhöld yfir hon­ um og öðrum sakborningum í mál­ inu hafa staðið yfir. Sindri Þór hefur játað aðild að málinu og er farið fram á fimm ára fangelsisdóm yfir honum. Birgitta Jónsdóttir tilkynnir að hún sé hætt í Pírötum. „Vonsvikin með stjórnmálin, almenning, kerfið almennt og Píratar eru ekkert undanskildir.“ DV birtir umfjöll­ un um fjörtíu fjöl­ kæra Íslendinga sem mættu í swing­partí á ótil­ greindum stað á höfuðborgar­ svæðinu. Fréttir af kosningabaráttu til sveitarstjórna um allt land heltekur apríl­ mánuð. Sjálfstæðismenn saka Dag B. Eggertsson og félaga hans í Sam­ fylkingunni um að dæla út óhróðri og lygum um Eyþór Arnalds á sam­ félagsmiðlum. Á meðan er Dagur brjálaður yfir óvinsældakönnun Fréttablaðsins. Vilborg Hansen hættir þátttöku í pólitík, þátttöku sem aldrei hófst út af samskiptaörðugleikum hjá Miðflokknum. Biggi lögga fer í fýlu því hann fær ekki sæti á lista Framsóknarflokksins í Hafnar­ firði og bylting gegn Elliða bæjarstjóra kraumar í Eyjum. Á meðan syngja Sósíal istar hástöfum: „Hosanna, Hey Sanna Sanna Sanna Hosanna, Hey Sanna Hosanna.“ Sími. 4524272 / vilko.is Hafa bakað með íslendingum frá 1935
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.