Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 52
Sérblað völvunnar 28. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Dansfélagið Hvönn býður upp á dansnámskeið fyr-ir alla aldurshópa, bæði
barnadansa og samkvæmisdansa.
Einnig sér Hvönn um skólakennslu
fyrir 1.–4. bekk.
Hvönn var stofnað 21. október
1995 og er elsta dansfélag inn-
an Dansíþróttasamband Íslands
(DSÍ).
Dansfélagið Hvönn er með frá-
bæra aðstöðu í Vallakór 14, Kórn-
um, með 220 fermetra danssal.
Aðstaðan er mjög góð fyrir
nemendur og einnig foreldra og
aðstandendur sem fylgja börnum
sínum á æfingar og keppni.
Fjöldi Íslandsmeistara og bik-
armeistara hefur æft með Hvönn
og keppnispör félagsins hafa verið
að standa sig afar vel á mótum
hérlendis og erlendis.
Einnig eru afar eftirsótt barna-
dansanámskeiðin þar sem Hvönn
býður upp á þjálfara og túlka fyrir
börn af erlendu þjóðerni.
Námskeið vorannar hefjast 12.
janúar 2019, í boði er:
Barnadansar fyrir 3–4 ára, 40
mínútna tímar, sem eru blanda af
leik og alvöru. Námskeiðið endar á
nemendasýningu.
Barnadansar fyrir 5–6 ára, 50
mínútna tímar, sem eru blanda
af barnadönsum og grunn í sam-
kvæmisdönsum. Námskeiðið endar
á nemendasýningu.
Skólakennsla fyrir 1.–4. bekk, 45
mínútna tímar í 10 vikur, grunnur
af samkvæmisdönsum og íslensku
gömlu dönsunum. Námskeiðið
endar á nemendasýningu.
Samkvæmisdansar fyrir 7–9 ára
og 10–12 ára, 1 klst. tímar, grunnur
í samkvæmisdönsum og íslensku
gömlu dönsunum. Námskeiðið
endar á nemendasýningu.
Bæði byrjenda- og framhalds-
hópar í boði.
Samkvæmisdansar fyrir 13 ára og
eldri, 1,5–2 klst. tímar fyrir þá sem
stunda dans sem keppnisíþrótt.
Einnig er boðið upp á hjónahópa
og einkatíma fyrir
alla á öllum aldri.
Félagastarf innan
Hvannar er öflugt
og eru spiladagar,
bíóferðir, böll,
skemmtikvöld, æf-
ingabúðir og margt
fleira sem gert er á
hverri önn.
Hvönn býður upp
á bæði systkina- og
fjölskylduafslátt,
einnig aðstoð-
ar félagið við að
sækja um styrki
vegna Frístunda-
korts Reykjavíkur
og Tómstundakorts
Kópavogs.
Dansfélagið
Hvönn er í Vallarkór
14, netfang er
hvonn@hvonn.is.
Heimasíða hvonn.
is Dansfélagið
Hvönn og Facebook.
n
DANSFÉLAGIÐ HVÖNN:
Dansfélag í fremstu röð
fyrir alla aldurshópa