Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Blaðsíða 66
66 28. desember 2018
Sjónvarpsería Heru
slær í gegn
Hera Hilmarsdóttir verður fljót
að jafna sig á skellinum, stór
myndinni Mortal Engines, þar
sem hún er í lykilhlutverki.
Framundan er sjónvarpsserían
See sem framleidd er af
þungvigtarfólki fyrir Apple TV. Sú
sería mun gera það að verkum að
stjarna Heru rís hátt á árinu.
Arabískur sigur í
Eurovision
Undankeppni Eurovision verður
umdeild og mótmæli vegna fyrir
hugaðrar þátttöku Íslendinga í
úrslitakeppninni í Ísrael verða
hávær. Aðstandendur keppn
innar munu þó láta gagnrýnina
sem vind um eyru þjóta og halda
ótrauðir áfram. „Íslenska framlag
ið mun ekki gera neinar rósir líkt
og fyrri ár. Það sem mesta athygli
vekur er að sigurvegarinn verður
af arabísku bergi brotinn.“
Jóhannes Haukur
landar stóru hlut-
verki
Stórleikarinn Jóhannes Haukur
Jóhannesson verður enn stærri á
árinu. „Það gengur allt upp hjá Jó
hannesi Hauki og hann á eftir að
vekja verðskuldaða athygli fyrir
stórt alþjóðlegt verkefni. Hann er
með mörg járn í eldinum og ég
skynja að hann iði í skinninu með
að upplýsa um eitthvert stórt ver
kefni,“ segir völvan.
OMAM skjót-
ast (aftur) upp á
stjörnuhimininn
Þá sér hún íslenska stórhljóm
sveit komast aftur í sviðsljósið á
árinu. „Það hefur lítið farið fyrir
Of Monsters and Men undanfarin
ár. Hljómsveitin gefur skyndilega
út sína þriðja plötu á árinu og slær
enn á ný í gegn. Í framhaldinu er
boðað til tónleikaferðalags sem er
af óþekktri stærðargráðu fyrir ís
lenska hljómsveit,“ segir völvan.
Smjörið drýpur af
hverju strái
Dáðasti sonur Kópavogs, Árni
Páll Árnason, betur þekktur sem
Herra Hnetusmjör, fer að reyna
fyrir sér á erlendum vettvangi.
„Pilturinn þráir að verða moldrík
ur og hann verður það ekki sem
íslenskur tónlistarmaður. Hann
fer því að herja utan landstein
anna. Árangurinn í enskumæl
andi löndum verður ekki merki
legur en smjörið mun slá óvænt í
gegn í AusturEvrópu.“
Einstakar RVKDTR
Völvan sér einnig fyrir sér mikla
velgengni Reykjavíkurdætra á ár
inu. „Sveitin tekur við stórum al
þjóðlegum verðlaunum í byrjun
árs og í kjölfarið opnast fjölmargar
dyr. Það er ekki til nein hljómsveit
eins og þær í veröldinni. Ég sé
fyrir mér að nýtt lag með sveitinni
muni slá í gegn á alþjóðavettvangi
á næsta ári.“
Ragnar tekur við
konungstign
Rithöfundurinn Ragnar Jónsson,
sem er lögfræðingur í hjáverkum,
skákaði metsöluhöfundunum
Arnaldi Indriðasyni og Yrsu
Sigurðardóttur á metsölulista
þessara jóla. Bók Ragnars, Þorp
ið, seldist í bílförmum og völvan
sér fyrir velgengni á erlendri
grundu. „Þorpið er langbesta bók
Ragnars og mun njóta mikillar
velgengni erlendis. Sérstaklega í
Bretlandi og Þýskalandi. Þá sé ég
fyrir mér að næsta bók Ragnars
verði enn betri. Hann er að taka
við konungs tigninni af Arnaldi,“
segir völvan.
Völvuspáin 2019