Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 78
78 FÓLK 28. desember 2018
Jónas starfaði við fjölmiðla í ríflega hálfa öld þá einkum sem
ritstjóri. Hann var ritstjóri DV í rúm tuttugu ár og stundakennari í
blaðamennsku við Háskólann í Reykjavík. Hann gegndi stöðu for-
manns Blaðamannafélags Íslands og Íslandsnefndar International
Press Institute og skrifaði jafnframt margar bækur, þá einkum bækur
um áhugamál sín, ferðalög og hestamennsku. Sem fjölmiðlamaður fór hann eftir reglunni
„Blaðamaður á enga vini“ og veigraði sér ekki við að beina ljósum að spillingu þar sem hún
fannst. Áhrif hans á íslenska fjölmiðlun og fjölmiðlamenn eru og verða mikil og minntust hans
fjöldamargir nafntogaðir Íslendingar, fjölmiðlamenn og fleiri á samfélagsmiðlum. Þeirra á
meðal var Illugi Jökulsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri. „Um áhrif hans á sögu hinna
ýmsu fjölmiðla má margt skrifa en fyrir ungan blaðamann fyrir nokkrum áratugum var afdrátt-
arleysi hans lærdómsríkast. Hann kenndi manni hvort tveggja að tala enga tæpitungu og reyna
aldrei að þóknast valdsmönnum. Þetta voru einkenni hans fram á síðustu stund og verða mér
persónulega ævinlega efst í huga.“
www.gilbert.is
GEFÐU ÞEIM SEM ÞÉR ÞYKIR
VÆNT UM TÍMA UM JÓLIN
Þeir sem kvöddu á árinu
n Auðguðu íslenskt þjóðfélag á lífshlaupi sínu
Tíminn gefur og tíminn tekur. Á árinu hefur tíminn
hrifið með sér þjóðþekkta Íslendinga sem sárt verður
saknað. Hér verður nokkurra valinkunnra einstaklinga,
sem kvöddu á árinu, minnst og sendum við aðstand-
endum þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Pétur Gunnarsson blaðamaður
Pétur Gunnarsson var einn fremsti blaðamaður
landsins. Hann var fyrsti fréttastjórinn hjá
Fréttablaðinu og gegndi síðar sömu stöðu hjá
Viðskiptablaðinu. Pétur stofnaði vefmiðilinn Eyjuna og gegndi þar stöðu ritstjóra og
pistlahöfundar. Margir þekktir Íslendingar minntust Péturs í kjölfar fráfalls hans, þeirra
á meðal Egill Helgason: „Pétur Gunnarsson er einhver mikilsverðasti maður sem ég
hef kynnst. Hann var skarpgreindur, afar fróður og réttsýnn. Hann hafði þann eiginleika
að skoða mál á gagnrýninn hátt, taka ekki hlutunum eins og gefnum – og hann gat
skipt um skoðun. Í samfélagi nútímans eru þetta feikilega mikilvægir eiginleikar.“
Brynjar Níelsson þingmaður minntist Péturs sem eins allra besta blaðamanns landsins:
„Ólíklegt er að margir andmæli þeirri fullyrðingu minni að hann hafi verið með allra bestu
blaðamönnum sem við höfum átt. Þar skipti máli hin mikla og almenna þekking sem
Pétur bjó yfir. Enginn blaðamaður var betri en Pétur þegar kom að viðkvæmri umfjöllun
um lögreglu- og dómsmál. Vegna þekkingar sinnar og innsæis gat hann dregið fram það
sem skipti máli á hlutlausan og yfirvegaðan hátt.“
Fæddur: 16. mars 1960
Látinn: 23. nóvember 2018
Jónas Kristjánsson, blaðamaður og
fyrrverandi ritstjóri DV
Fæddur: 5. febrúar 1940 Látinn: 29. júní 2018
Tómas Magnús Tómasson
tónlistarmaður
Tómas Magnús Tómasson var
bassaleikari með Þursaflokknum
og Stuðmönnum auk fleiri sveita
og þótti einstaklega afkastamikill
tónlistarmaður. „Hann var orðhepp-
inn og sniðugur. Það var ótrúlegt að
horfa og hlusta á hann spila, hann
var einn af okkar allra bestu og þó
víðar væri leitað. Hann stjórnaði
upptökum á mörgum af ástsælu-
stu plötum þjóðarinnar. Hann var
ótrúlegur bassaleikari og bassaskáld
og hefur sett mark sitt á íslenska
tónlistarsögu með fjöldanum öllum
af grípandi bassalínum,“ sagði Eyþór
Ingi Gunnlaugsson söngvari, einn
þeirra fjölmörgu sem tjáðu sig um
fráfall Tómasar á netinu.
Fæddur: 23. maí 1954
Látinn: 23. janúar 2018
Stefán Karl var einn ástsælasti leikari
Íslendinga og baráttumaður gegn einelti.
Hann var þekktastur fyrir hlutverk Glanna
glæps í leikritunum og barnaþáttunum um
Latabæ og hlutverk Trölla í söngleiknum
Þegar Trölli stal jólunum, í uppsetningu í
Bandaríkjunum og í Kanada. Hann var í ár
sæmdur riddarakrossi fyrir framlag sitt til
íslenskrar leiklistar og samfélags og kjörinn
maður ársins 2018 af lesendum DV. Auðunn
Blöndal minntist Stefáns á Twitter: „Stefán
Karl sendi mér tvisvar skilaboð um ævina og
bæði voru pepp þegar ég var að fá leiðindi á
netinu! Þín verður saknað fallegi maður.“
Stefán Karl
Stefánsson leikari
Fæddur : 10. júlí 1975
Látinn: 26. ágúst 2018
Jóhannes Gunnarsson,
fyrrverandi formaður neytendasamtakanna
Fæddur: 3. október 1949. Látinn: 6. janúar 2018
Jóhannes, mjólkurfræðingur að mennt, eyddi ríflega hálfri ævinni í baráttu
fyrir hagsmunum neytenda og var formaður Neytendasamtakanna í rúm
þrjátíu ár. Jóhannes var fenginn árið 1978 til að stýra fundi Neytendasamtakanna þar sem mál
borgfirskra kvenna, sem höfðu kvartað undan útrunnum mjólkurvörum, var tekiðfyrir. Eftir það
varð ekki aftur snúið og neytendamál áttu hug hans allan. Þegar Jóhannes tilkynnti að hann
hygðist hætta sem formaður samtakanna sagði hann á Facebook: „Ég hef verið formaður sam-
takanna lengi og tel tíma til kominn að annar taki við keflinu. Það hefur verið mér mikil ánægja
og um leið heiður að hafa átt kost á því að leiða starf Neytendasamtakanna.“
Jóhann lést að heimili sínu í Berlín í febrúar, langt fyrir aldur
fram. Undanfarin ár hafði Jóhann klifið metorðastigann
hratt í heimi kvikmyndatónlistar og var orðinn meðal þeirra
allra virtustu í bransanum. Hann var tvisvar tilnefndur til
hinna virtu Óskarsverðlauna, annars vegar fyrir kvikmyndina
The Theory of Everything og hins vegar fyrir kvikmyndina Sicario.
Hann hlaut Golden Globe-verðlaunin og var auk þeirra tilnefndur til
BAFTA- og Grammy-verðlaunanna. Áður en ferill hans sem tónskáld komst á flug hafði
Jóhann gert það gott með hljómsveitum á borð við Ham og Apparat Organ Quartet.
Jóhann Jóhannsson tónskáld
Fæddur: 19. september 1969 Látinn: 9. febrúar 2018
Einar Darri var aðeins 18 ára gamall þegar hann lést á heimili
sínu eftir neyslu róandi lyfja. Andlát hans kom fjölskyldu
hans í opna skjöldu, en hann hafði aðeins fiktað við mis-
notkun lyfseðilsskyldra lyfja í skamman tíma. Fjölskylda
hans hefur stofnað minningarsjóð Einars Darra sem ætlað
er að veita forvarnir og fræðslu gegn misnotkun lyfseðils-
skyldra lyfja og fíkniefna. Minningarsjóðurinn stendur fyrir
þjóðarátakinu „Ég á bara eitt líf“, sem berst gegn fíkniefnum
með áherslu á misnotkun lyfja meðal íslenskra ungmenna.
Samkvæmt upplýsingum frá embætti landlæknis létust, á fyrri hluta ársins, 14 karlmenn og
2 konur vegna eitrunar sem má rekja til lyfja, áfengis og ólöglegra fíkniefna. Það sem af er ári
hefur 51 andlát komið til skoðunar embættisins og í flestum þeirra hafa lyf komið við sögu.
Einar Darri Óskarsson
Fæddur: 10. febrúar 2000 Látinn: 25. maí 2018
Sigurður Svavarsson útgefandi
Sigurður var íslenskukennari við Menntaskólann í
Hamrahlíð í um tvo áratugi áður en hann sneri sér
að bókaútgáfu. Hann var ritstjóri kennslubóka og
síðar framkvæmdastjóri hjá Máli og menningu,
útgáfustjóri hjá Eddu-útgáfu og tók þátt í að
stofna bókaútgáfuna Opnu. Hann ritstýrði og
þýddi fjölda bóka á ferli sínum en á hans yngri árum var hann jafnframt mikill íþróttamaður
og spilaði handknattleik í meistaraflokki, bæði með ÍR og Fram. Rithöfundurinn Kristín Helga
Gunnarsdóttir var ein fjöldamargra sem minntust hans hlýlega: „Siggi var lífsglaður fagurkeri,
ljúf og hlý manneskja með stóra faðminn og næman skilning á bókmenntunum. Hann kvaddi
svo snemma og snögglega og það er skarð fyrir skildi meðal bókaútgefenda. „Og svo færðu
borgað fyrir að gera það sem þér finnst skemmtilegast.“, sagði hann þegar hann rétti mér
fyrstu ávísunina fyrir ritverk.“
Fæddur: 14. janúar 1954
Látinn: 26. október 2018
Þorsteinn Jónsson frá
Hamri rithöfundur
Þorsteinn gaf út sína fyrstu ljóðabók,
Í svörtum kufli, aðeins tvítugur. Eftir
hann liggur fjöldi ljóðabóka, skáld-
sagna, sagnaþátta og fjöldamargar
þýðingar. Hann var í stjórn Rithöfunda-
félags Íslands og varamaður í stjórn,
meðstjórnandi og að lokum heiðurs-
félagi í Rithöfundasambandi Íslands.
Hann hlaut fjölda viðurkenninga fyrir
ritstörf sín. Þeirra á meðal eru Íslensku
bókmenntaverðlaunin, Ljóðaverðlaun
Guðmundar Böðvarssonar, Verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar, riddarakross
hinnar íslensku fálkakorðu fyrir ritstörf
og Heiðurslaun Alþingis. Þegar Þor-
steinn hlaut heiðursviðurkenningu
Menningarverðlauna DV árið 2016
sagði í rökstuðningi dómnefndar: „Þor-
steinn frá Hamri hefur í áratugi auðgað
og dýpkað íslenska ljóðagerð. Stílgáfa
hans er einstök og hugsunin ætíð hnit-
miðuð og öguð. Í verkum hans, ljóðum
jafnt sem prósaverkum, endurspeglast
ást og virðing fyrir náttúru landsins,
sögunni og hinum þjóðlega menn-
ingararfi. Tilgerð, prjál og raup hafa
aldrei verið fylginautar þessa hógværa
skálds sem þekkir mátt orðanna og
hefur alltaf nýtt þau til gagns. Íslenskir
ljóðaunnendur standa í þakkarskuld
við Þorstein frá Hamri sem hefur af
örlæti, og án háreysti, miðlað snilligáfu
sinni og séð þannig til þess að ljóðið
rati til sinna.“
Fæddur: 15. mars 1938
Látinn: 28. janúar 2018
Sverrir Hermannsson, fyrrverandi
alþingismaður og ráðherra
Fæddur: 26. febrúar 1930 Látinn: 12. mars 2018
Sverrir sat á þingi og gegndi stöðu ráðherra fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hann sagði sig síðar úr flokknum og stofnaði nýjan
flokk, Frjálslynda flokkinn. Eftir að hann hætti á þingi tók hann
við sem bankastjóri Landsbankans og gegndi því starfi í áratug.
Í minningarorðum um Sverri, sem Steingrímur J. Sigfússon flutti
á Alþingi, segir: „Í kringum Sverri Hermannsson ríkti sjaldnast
lognmolla. Hann fór jafnan mikinn í orðum og athöfnum, hafði
óvenjulega auðugt tungutak, var skýr og skorinorður í ræðustól, skapmikill og stór í sniðum.
Í daglegum samskiptum hér á Alþingi var Sverrir hlýr í viðmóti, hreinn og beinn og tryggur
sínum. Athafna Sverris sér víða stað en hann var ekki síst maður orðsins, málsnjall og orð-
heppinn, víðlesinn í íslenskum bókmenntum og hafði tilvitnanir úr þeim jafnan á hraðbergi.
Hann var sögumaður góður, það svo að til hreinnar listar mátti teljast.
Sverrir Hermannsson verður þeim sem honum kynntust í opinberum störfum minnisstæður
maður, hvort sem skoðanir fóru saman eða ekki. Hann bar sig jafnan vel, lét til sín heyra og
hélt reisn sinni fram á síðustu daga.“