Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 88
88 28. desember 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginMorgunblaðið 18. desember 1913
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Ég hef verið talinn einn besti
dansstjóri sem völ er á
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
KONUNGUR GÖMLU DANSANNA
HVARF SPORLAUST
S
jálfsagt hefur aldrei verið
uppi kokhraustari maður
á Íslandi en Gunnlaugur
Guðmundsson, meistari
gömlu dansanna. Gunnlaugur
kom frá Vopnafirði og stýrði döns-
um á skemmtistöðum í Reykjavík
um áraraðir. Hann hafði sterkar
skoðanir á dönsunum og þróun
þeirra til hins verra. Jafnframt var
hann ákaflega sannfærður um
eigið ágæti og viðraði það í viðtöl-
um. Gunnlaugur hvarf sporlaust
einn daginn.
Hætt kominn póstburðarmaður
Gunnlaugur Guðmundsson var
fæddur milli jóla og nýárs árið
1905 ásamt tvíburabróður sínum
Ásgeiri. Þeir ólust upp á bænum
Ásbrandsstöðum við Vopnafjörð.
Ásgeir og önnur systkini Gunn-
laugs tóku við búskapnum á
bænum og Gunnlaugur bjó þar
framan af. Gunnlaugur stundaði
hefðbundin bústörf en var einnig
bifreiðarstjóri. Bifreiðar voru fá-
tíðar á Íslandi á þessum árum,
sérstaklega á Austurlandi.
Gunnlaugur sinnti meðal
annars póstþjónustu í sveitinni
og það gat verið hættulegt starf.
Stundum fór hann á hestbaki eða
gangandi á milli staða. Í eitt skipt-
ið munaði litlu að Gunnlaugur
yrði úti í stórhríð nálægt bænum
Hlíðarhúsi í Jökulsárhlíð.
Frá Ásbrandsstöðum kom
þjóðlegt fólk og gegnheilt Fram-
sóknarfólk. Gunnlaugur var þar
engin undantekning. Hann var
mikill samkvæmismaður og eld-
heitur í gömlu dönsunum. Ekki
leið á löngu þar til hann var far-
inn að stýra gömlu dönsunum í
félagsheimilum á Austurlandi.
Árið 1942, þegar Gunnlaugur
var 36 ára gamall, fluttist hann að
bænum Hjarðarhaga í Jökuldal.
Hann átti þá nýja bifreið og sinnti
akstri þar í alls þrettán sumur.
Þennan tíma starfaði hann jafn-
framt sem meðhjálpari og hringj-
ari í Hofteigskirkju.
Vandræðaástand í gömlu
dönsunum
Árið 1957 fluttist Gunnlaug-
ur á mölina og starfaði aðallega
við byggingarvinnu í nokkur ár.
Eftir það starfaði hann hjá Blikk-
smiðjunni Gretti og á sjötugs-
aldri fór hann að starfa á Laugar-
dalsvellinum. Gunnlaugur hætti
ekki að dansa eftir að hann kom
til Reykjavíkur heldur miðlaði
kunnáttu sinni og reynslu á því
sviði til borgarbúa.
Á sjöunda áratugnum stýrði
hann reglulega gömlu dönsun-
um í Góðtemplarahúsinu og
Framsóknarhúsinu. Á áttunda
áratugnum í Þórscafé. Einnig á
skemmtunum í nágrenni Reykja-
víkur, svo sem Félagsgarði í Kjós.
Undir spiluðu tónlistarmenn á
borð við Guðmund Hansen, Guð-
jón Matthíasson, Sigmund Júlíus-
son, Aage Lorange og Poul Bern-
burg.
Gunnlaugur hafði sterkar
skoðanir á gömlu dönsunum
og var ekki bjartsýnn fyrir hönd
þeirra á efri árum. Viðraði hann
þessar skoðanir sínar bæði í ræðu
og riti. Í nóvember árið 1975 var
hann í viðtali hjá Dagblaðinu. Þar
sagði hann:
„Gömlu dansarnir eru orðnir
stórskemmdir vegna þess að búið
er að bæta inn í þá alls konar
toppfígúrum, sem allir taka upp
þannig að þessir oflátungar halda
að þetta sé fyndið.“
Máli sínu til stuðnings nefndi
hann Vínarkrúsinn. Í stað þess að
taka hin venjulegu spor til beggja
hliða var búið að setja inn milli-
snúninga sem ekki áttu heima
þar. Taldi hann þetta vandræðaá-
stand fyrst og fremst vera hljóm-
sveitarstjórunum að kenna og
sinnuleysi þeirra gagnvart dans-
stjórunum. Væri samskipta- og
stjórnleysið orðið svo mikið að
pörin dönsuðu ekki einu sinni
sama dansinn. Eitt par dansaði
kannski vals, annað marsúrka og
það þriðja ræl, allt undir sama
laginu. Þetta skapaði eitt allsherj-
ar öngþveiti á dansgólfinu.
Meira að segja kvenfólkið farið
að drekka
„Ég hef verið talinn einn besti
dansstjóri, sem völ er á og vil
nefna sem dæmi að fyrir þremur
árum stjórnaði ég dansi sjö kvöld
í röð í Ingólfskjallaranum og fólk
er enn þá að hæla mér fyrir mína
stjórn. Góður dansstjóri eins og
ég gengur á undan með góðu
fordæmi, dansar á undan fólk-
inu svo það sjái hvað á að dansa
og hann á að sjá um að fólk dansi
ekki annað en það sem sagt er fyr-
ir,“ sagði hann.
Að mati Gunnlaugs var það
hlutverk dansstjórans að sjá um
að fólk skemmti sér vel og færi
ánægt heim. Undirstöðuatriði
í því væri röggsöm dansstjórn,
kunnátta fólks og hált gólf. Stýrði
hann danspörum með harðri
hendi og setti grófmalaða bórsýru
n Setti bórsýru á gólfið n Ómögulegt að dansa undir áhrifum
Í
búar á Ísafirði voru gátt-
aðir þegar peningaseðlar
tóku að streyma út um
skolpræsi bæjarins og út
í fjöruna. Þjóðviljinn greindi
frá því að börn hefðu fund-
ið seðlana og lögregla væri að
rannsaka málið. Annaðhvort
væri um að ræða hræddan
þjóf eða ruglaðan mann.
Mörg þúsund krónur
Það var í marsmánuði árið
1961 sem börn á Ísafirði
fundu fyrstu peningaseðlana.
Þeir höfðu verið rifnir áður
en þeim hafði verið sturtað
niður. Börnin fóru með tætta
seðla til yfirlögregluþjóns og
sögðu hvar þau hefðu fund-
ið þá, í fjörunni fyrir neðan
Tanga.
Við nánari athugun fund-
ust fleiri seðlar, aðallega 500
krónu seðlar af eldri gerð.
Nam þetta mörg þúsund
krónum og voru menn gátt-
aðir að einhver hefði sturt-
að þeim niður í klósett. Mátti
gera ráð fyrir að fleiri seðlar
hefðu endað í ræsinu en þeir
sem fundust, að einhverjum
hefði skolað út í sjó.
Lögreglan lagði hald á þá
seðla sem hún komst yfir.
Ætla mátti þó að börnin
hefðu haldið einhverju eftir
sjálf. Fyrstu grunsemdir lög-
reglunnar voru þær að hér
hefði þjófur verið á ferðinni
PENINGAR RUNNU ÚR SKOLPRÆSINU Á ÍSAFIRÐI
Tvíburar Gunnlaugur og Ásgeir Guðmundssynir
frá Ásbrandsstöðum.
n Mörg þúsund krónur