Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 89

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Side 89
8928. desember 2018 TÍMAVÉLIN Hafnargata 19a Keflavík S. 421 4601 Óskar þér og þínum farsældar á nýju ári 31. desember næstkomandi klukkan 23.00 - 04.30 verður dansað inn í nýja árið GAMLÁRS PARTÝ DJ adamis adammix sér um að halda ykkur dillandi S umarið 1967 varð mikil ólga innan íslensku Þjóðkirkj­ unnar þegar hjónavígsla að sið bahaía fór fram í Árbæjar­ kirkju. Sigurbjörn Einarsson bisk­ up setti sig upp á móti athöfninni og Sigurður Pálsson vígslubiskup sagði að kirkjan væri vanhelguð. Falleg en framandi athöfn Þann 17. ágúst árið 1967 greindi Morgunblaðið frá því að hjón hefðu verið gefin saman að sið bahaía í Árbæjarkirkju. Voru þetta Svava Magnúsdóttir og Fabio Tagliavia frá Palermo í Ítalíu. Blaðamenn voru kallaðir til til að vera viðstadd­ ir athöfnina og var Ásgeir Einarsson forstöðumaður til svara um þessi framandi trúarbrögð sem taldi þá átján einstaklinga á Íslandi. Spurðu blaðamenn út í réttar­ stöðuna og þótti þeim með mikl­ um ólíkindum að parið hefði fengið heimild fyrir þessu frá Þjóðkirkj­ unni. Ásgeir svaraði því að biskup Íslands hefði sýnt þessum trúar­ brögðum mikinn skilning en þjóð­ kirkjur annarra landa hefðu minni samúð með þeim. Hefði biskup til dæmis veitt góða umsögn þegar bahaíar sóttu um löggildingu sem trúfélag. Um 40 voru viðstaddir athöfn­ ina. Fyrst var Fabio leiddur inn og síðan Svava. Þá lásu þrír tilkvadd­ ir upp úr spámannaritum bahaía, Ásgeir fór með bæn og brúðhjónin fluttu vitnisburð hvort á sínu tungu­ málinu, íslensku og ítölsku. Lásu þau upp heitorðin og settu upp hr­ ingana í kjölfarið. Falleg athöfn og öll eftir kúnstarinnar reglum. En það voru ekki allir með bros á vör þennan dag. Fyrir utan stóð Lárus Sigurbjörnsson, kirkjuvörður í Árbæ. Hann sagði við blaðamenn að sóknarpresturinn hefði gefið leyfi og tilvonandi hjón sýnt alla til­ skilda pappíra. Þrátt fyrir þetta hafi hann reynt að ná tali af biskupi til að láta vita en án árangurs. Lár­ us hafi því orðið að gefa grænt ljós á þetta en hafði miklar efasemd­ ir enda voru bahaíar taldir skyldari múslimum en kristnum. Kirkjan sögð vanhelguð Degi eftir að giftingin fór fram fékk Sigurbjörn Einarsson, biskup Ís­ lands, að frétta af málinu. Kom þetta honum algerlega í opna skjöldu. Sagði hann að ef hann hefði vit­ að þetta fyrir fram hefði hann ekki leyft athöfninni að fara fram innan veggja kirkjunnar. Hann sagði: „Bahaítrúflokkurinn er ekki kristinn trúflokkur og það fólk, sem í þennan flokk gengur, hefur ekki aðeins sagt skilið við þjóðkirkjuna í skipulagslegu tilliti, heldur sagt skilið við kristna trú. Það hefur full­ komið frelsi til þess að sjálfsögðu, en gerir sér væntanlega grein fyrir, hvað það er að gera.“ Enn fremur: „Kirkja, sem er Kristi vígð, verður ekki léð til athafna á vegum trúar­ bragða, sem ekki viðurkenna Krist eins og kristin kirkja játar hann og boðar.“ Sigurður Pálsson, vígslubiskup í Skálholti, var svo miður sín þegar hann frétti af athöfninni að hann taldi Árbæjarkirkju vanhelgaða. Hann sagði: „Skoðun mín á þessu miðast við það, hvernig vígslan er skilgreind en mín tilfinning er sú, að það ætti að endurvígja kirkjuna. Þetta mál ber að leggja undir úrskurð bisk­ ups Íslands, en ég teldi ástæðu til að stöðva allar helgiathafnir í kirkj­ unni á meðan sá úrskurður liggur ekki fyrir.“ Einnig voru til þeir prestar sem sáu ekkert að vígslunni og lýstu þeir sinni skoðun bæði í blaða­ skrifum og úr predikunarstóln­ um. Gaf biskup þá út aðra yfirlýs­ ingu og sagði Árbæjarkirkja yrði ekki endurvígð og athöfnin hefði ekki óhelgað húsið. Slíkt yrði að­ eins gert ef eitthvað kæmi upp sem ógilti upprunalegu vígsluna og væri matsatriði í hvert skipti. Jafnframt ítrekaði hann að athöfnin hefði ver­ ið „slys“, „vangá“ og „hugsunarleysi“ sem mætti ekki endurtaka sig en ekki „syndsamlegt athæfi.“ n BISKUP SAGÐI KIRKJU VANHELGAÐA VEGNA GIFTINGAR PENINGAR RUNNU ÚR SKOLPRÆSINU Á ÍSAFIRÐI n Bahaíapar gift í Árbæjarkirkju á gólfið til að gera það hálara, en hún er stórvarasöm. Gunnlaug­ ur taldi að færni á borð við hans væri að deyja út. „Ákveðin dansstjórn skapar engin leiðindi. Fólk bara held­ ur að því finnist leiðinlegt. Þegar góður dansstjóri gengur á und­ an, skemmtir fólk sér mun bet­ ur, og þú mátt skjóta því inn í frá eigin brjósti að danshúsin eigi að temja sér notkun dansstjóra til að allir geti verið ánægðir.“ Gunnlaugur sparaði ekki stóru orðin um eigið ágæti. „Þó eru þrír eða fjórir menn, sem eru eins góðir og ég. Ég hef fengið orð fyrir að vera takt­ fastur, þannig að dömur, sem ég hef dansað við, hafa sagt það við mig og ég finn líka undir­ eins hvort þær hafa dansað við einhvern, sem kann gömlu dansana, eða ekki.“ Eina helstu áskorunina sem steðjaði að gömlu dönsunum taldi hann einnig vera aukna brennivínsdrykkju á skemmtun­ um. „Mér þykir fyrir því að sjá meira að segja kvenfólkið rorra um hálffullt. Læknarnir hafa sagt að gömlu dansarnir séu besta íþrótt, en það þýðir ekk­ ert að iðka íþróttir undir áhrif­ um víns.“ Gunnlaugur kom einnig fram í sjónvarpsviðtali þetta sama ár. Það var í þættinum Anna í Hlíð hjá Helga Péturssyni, úr Ríó Tríó. Sagði hann þar marga unga menn öfunda sig. „Það hafa margir ungir menn komið til mín og óskað þess að vera orðnir eins og ég. Þess­ ir yngri, þó þeir spili gömlu dansana, þá eru þetta ekki reglu­ legir gömlu dansar sem þeir spila,“ sagði hann með áherslu. Hvarf sporlaust eftir læknisheimsókn Skömmu eftir að Gunnlaugur kom fram í þessum tveimur eftirminnilegu viðtölum hvarf hann sporlaust. Þann 26. nóv­ ember (HVAÐA ÁR?) var greint frá því að leit væri hafi að Gunn­ laugi, sem var þá sjötugur og búsettur í Barmahlíðinni ásamt öðrum manni. Fimmtudaginn 25. nóvember hafði hann komið við á Landspítalanum. Eftir það fór hann út að ganga og sást ekki meir. Um kvöldið fór sá sem með honum bjó að ókyrrast og tilkynnti hvarfið. Sagði hann frá því að Gunnlaugur væri sykur­ sjúklingur og hætt við yfirliði. Væri hann klæddur í gráa úlpu og með köflóttan hatt. Björgunarsveitir leituðu á öllu höfuðborgarsvæðinu, með fram strandlengjunni og á slöngubát. Gunnlaugur fannst hins vegar ekki og var dánar­ dagur hans skráður 26. nóvem­ ber. Hann var ókvæntur og barn­ laus. n Gunnlaugur Guðmundsson Kokhraustasti maður landsins. sem hefði orðið hræddur og viljað losa sig við þýfi. Um veturinn var einmitt 3.000 krónum stolið af elliheimili bæjarins. Seinna var sú hug­ mynd slegin út af borðinu því að sú upphæð sem fannst var langtum hærri en stolið var þaðan. Þá kom önnur hugmynd fram. Að hér væri á ferðinni „ruglaður maður“ sem sturt­ að hefði peningunum nið­ ur í kasti. Lögreglan hóf rannsókn og leit í húsum en það reyndist erfitt í ljósi þess hversu mörg hús áttu frárennsli að skolpræsinu. Frekari frásögn af málinu var ekki reifuð. n
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.