Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Qupperneq 90
90 28. desember 2018TÍMAVÉLIN
F
yrri heimsstyrjöldin var
blóðug og mannskæð í
Evrópu og hafði mikil áhrif
á atburði næstu áratuga. Í
henni tókust mörg Evrópuríki á
og bárust á banaspjót. En það vita
kannski ekki allir að um 2,4 millj
ónir asískra hermanna börðust
á evrópsku vígstöðvunum og að
300.000 til 500.000 þeirra féllu,
margir þeirra frá Kína. Kínverjar
lögðu því sitt af mörkum til að
stríðið ynnist en í kjölfar stríðsins
töpuðu þeir hinu diplómatíska
stríði.
Kína, Japan og Indland léku
stórt hlutverk í fyrri heimsstyrj
öldinni sem var háð í Evrópu.
Margir Asíubúar og Evrópu búar
vita hins vegar ekki um þessa
þátttöku Asíuríkjanna í „stóra
stríðinu“ eins og það var kallað
í Asíu. Stuðningur Asíuríkjanna
við Vesturveldin hafði mikil áhrif
á þróun Asíu og hvernig hún er í
dag.
Árið 1917 bauð hið nýja kín
verska lýðveldi Bretum að senda
96.000 Kínverja til Evrópu til að
styrkja breska herinn. Bretar þáðu
þetta boð með þökkum og það
sama gerðu Frakkar þegar þeim
voru boðnir 40.000 Kínverjar til
styrktar franska hernum. Kín
verjarnir voru þó ekki hermenn
heldur voru þeir einhvers konar
stuðningssveitir við herina, þeir
sáu um ýmis störf sem þurfti að
sinna til að hermennirnir gætu
barist. Þeir fengu laun fyrir störf
sín og þeir sáu um þvotta, hlúðu
að særðum, sáu um birgðaflutn
inga og héldu innviðum herjanna
gangandi. Þeir sóttu særða og
látna á vígvöllinn og fluttu skot
færi til vígstöðvanna.
Japan var rísandi veldi á þess
um tíma en landið hafði skotist
inn í klúbb stórveldanna þegar
japanski sjóherinn sigraði þann
rússneska 1905 og með því að gera
Kóreu að nýlendu 1910. Á síðustu
árum fyrri heimsstyrjaldarinnar
var mikilvægt að hafa yfir öflug
um sjóher að ráða en Bretar voru
komnir í þá stöðu að geta ekki
lengur varið skip sín fyrir þýskum
kafbátum. Japanir sendu því her
skip til Miðjarðarhafs til að fylgja
breskum kaupskipum og það
sama var uppi á teningnum á Atl
antshafi og Kyrrahafi.
Skorti reynslu
Þegar friður komst á í Evrópu í
nóvember 1918 voru bæði Kín
verjar og Japanir í liði sigurvegar
anna. En það kom Kínverjum illa
að þá skorti reynslu og herstyrk til
að koma vel út úr þeim samninga
viðræðum sem þá hófust. Hers
höfðingjar og pólitíkusar komust
að þeirri niðurstöðu að það væri
mikilvægara til langs tíma litið að
hafa Japani góða heldur en Kín
verja. Menn óttuðust að Japan
ir myndu standa utan við Þjóða
bandalagið, forvera SÞ, og ekki
taka fast sæti í öryggisráði þess ef
kröfum þeirra yrði ekki mætt. Það
var því gengið að þeim kröfum
Japana að þeir fengju að halda
þeim svæðum sem Þjóðverjar
höfðu hernumið á meginlandi
Kína. Þetta varð síðar stuðpúðinn
í hernámi Japan á norðurhluta
Kína.
Kínverjar töpuðu þessu
diplómatíska spili því vestræn
ríki, þar á meðal Bandaríkin, litu
með réttu á Japan sem nýtt her
veldi á heimsvísu sem væri mikil
vægt að eiga góð samskipti við.
Japanir stóðu stórveldum þessa
tíma fyllilega á sporði hvað varð
aði tækni, stjórnmál, diplómat
íska hæfileika og getu. Kína var á
hinn bóginn veikburða ríki, þar
ríkti ringulreið og samfélagið var
óskipulagt og í augum Evrópu
manna líktist það ekki væntan
legu stórveldi. Þetta var í hróp
legu ósamræmi við hugmyndir
kínversku elítunnar á kínversku
samfélagi en hún taldi það vera
ævafornt menningarsamfélag
sem ætti eðlilega að vera á toppi
fæðukeðju hins þekkta heims.
Versalasamningurinn hafði því
miklar afleiðingar í Kína. Þegar
innihald hans lá fyrir brutust út
mikil mótmæli í Peking og öðr
um stórborgum Kína. Í Shanghaí
var ráðist á bresku ræðismanns
skrifstofuna og byggingar sem
tengdust Japan á einhvern hátt.
Biturleiki og sárindi vegna mis
heppnaðrar taktíkur í Evrópu varð
til þess að þetta nýja, brothætta
lýðveldi lét undan og hrundi til
grunna. Ný uppreisnarhreyfing
leit dagsins ljós og út frá henni
urðu síðan til pólitískar hreyfingar
sem hafa sett mark sitt á Kína alla
tíð síðan. Má þar nefna þjóðernis
sinnann Chiang KaiShek og Mao
Zedong með kommúnistana.
Samhliða grimmdarlegu fram
ferði Japana braust blóðugt borg
arastríð út. Það stóð til 1949 þegar
kommúnistar sigruðu og þjóð
ernissinnar flúðu til Taívan þar
sem þeir sitja enn þann dag í dag.
En fyrri heimsstyrjöldin hafði
ekki aðeins áhrif í Kína því her
menn frá Indlandi, Víetnam,
Kambódíu og fleiri ríkjum börð
ust í henni. Þeir upplifðu því hryll
inginn með eigin augum og frétt
ir bárust til Asíu af átökunum svo
almenningur gat fylgst með því
sem gekk á. Fram til þessa höfðu
nýlenduþjóðirnar verið álitnar
yfirburðaþjóðir og eiginlega fyr
irmyndir elítunnar í Asíu. En nú
snerist dæmið við og pólitískir
vindar fóru að blása sem kröfðust
frelsis frá evrópsku nýlenduherr
unum. Upp úr þessum jarðvegi
varð til hugmyndafræði og stjórn
málamenn sem mynduðu sjálf
stæðishreyfingarnar sem kröfðust
sjálfstæðis eftir síðari heimsstyrj
öldina. Versalasamningurinn og
fyrri heimsstyrjöldin höfðu því
mikil áhrif á þróun mála í Asíu. n
„Samhliða grimdar-
legu framferði
Japana braust blóðugt
borgarastríð út
Áskriftarklúbbur DV
Meðlimir áskriftarklúbbs DV framvísa
aðildarkorti sem er í gildi hverju sinni til að
nýta sér þau tilboð og fríðindi sem eru í boði
hverju sinni fyrir áskrifendur DV.
Áskriftarklúbbur
Áskriftarklúbbskorti
ð gildir til 31.12.201
8
Wizar lock
Wizar lock Leður 239.900 kr.
Áskriftarklúbbsverð 179.925 kr.
Wizard lock Tau 199.900 kr.
Áskriftarklúbbsverð 149.925 kr.
T I L B O Ð DV O G VO G U E
ÁSKRIFTARKLÚBBA-
Tilboðið gildir til áramóta.
F Y R I R H E I M I L I Ð
Síðumúla 30 - Reykjavík / Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri / Sími 462 3504
Kínverjar lögðu sitt af mörkum
til að stríðið myndi vinnast
n Töpuðu um leið friðnum
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is „Samhliða
grimdar-
legu framferði
Japana braust
blóðugt borgara-
stríð út
Fyrri heimsstyrjöldin Kínverskir túlkar.