Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 102

Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.2018, Page 102
102 28. desember 2018FRÉTTIR - UMMÆLI ÁRSINS EIGUM MARGA LITI Á LAGER Nánari upplýsingar á mt.is og í s: 580 4500 HANNAÐ FYRIR ÍSLENSKT VEÐURFAR ÁLKLÆÐNINGAR & UNDIRKERFI Umræður sex þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins á Klaustri bar eru þess eðlis að mörg ummæli úr þeim urðu vel þekkt. Verð- ur því að hafa sérstakan kafla um þau hér í umfjöllun um ummæli ársins. „Það hefur engin gugga teymt mig meira á asnaeyrunum en hún, sem ég hef ekki fengið að ríða“ – Bergþór Ólason um Lilju Dögg Al- freðsdóttur. „Henni er ekki treystandi og hún spilar á fólk eins og kvenfólk kann“ – Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um Lilju Dögg Alfreðs- dóttur. „Þetta snýst allt um og ég held við séum öll í þessum slag til að láta gott af okkur leiða og eru miklu meiri líkur til að það gerist und- ir merkjum Miðflokksins heldur en Flokks fólksins, af því að þið eruð með þessa húrrandi klikkuðu kuntu sem formann Flokks fólksins sem þið ráðið ekki við“ – Bergþór Ólason um Ingu Sæland. „Hún getur grenjað um þetta en getur ekki stjórnað“ – Karl Gauti Hjaltason um Ingu Sæland. „Hún er ung, en það fellur hratt á hana. Hún er miklu minna hot í ár en hún var fyrir fjórum árum síðan“ – Bergþór Óla- son um Írisi Róbertsdóttur. „Geir slapp í gegnum þetta eins og smjör á smokknum hjá honum þarna Friðriki Ómari“ – Gunnar Bragi Sveinsson um skipun Geirs H. Haarde í sendiherrastöðu. „Oddný er ekkert ágæt, hún er algjör apaköttur“ – Gunnar Bragi Sveinsson um Oddnýju Harðardóttur. „Freyju eyju?… [selahljóð!]“ – Anna Kolbrún Árnadóttir og ónefndur Miðflokksmaður. „Ef þú tekur þrjá bókstafi, u-n-t, og bætir við einum staf fyrir framan. Hvaða staf setur þú þar?“ – Ólafur Ísleifsson um konur. „Welcome to politics, Bergþór Ólason“ – Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. „Mér blöskraði það sem ég heyrði“ – Bára Halldórsdóttir eftir að hún tók upp samræðurnar. „Þeir eru ofbeldismenn og ég segi: Þetta er alveg skýrt í mínum huga, ofbeldismenn hafa ekki dagskrárvald í íslensku samfélagi“ – Lilja Dögg Alfreðsdóttir í Kastljósi. „Mér finnst þetta bera merki um takmarka- lausan drullusokkshátt af spítalanum“ – Kári Stefánsson Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar var ekki par sáttur við þær tafir sem urðu á uppsetningu já- eindaskannans sem fyrirtækið gaf Landspítal- anum. Upprunalega átti skanninn að vera kom- inn í notkun í september árið 2016 en var ekki tekinn í notkun fyrr en í desember árið 2018. „Ég kem fljótlega“ – Sindri Þór Stefánsson Strokufanginn Sindri varð heimsfrægur þegar hann tók flug úr landi með Katrínu Jak- obsdóttur forsætisráðherra. Ekki leið á löngu þar til leitað var að honum um alla Evrópu og þá steig hann fram og gaf út yfirlýsingu um að hann kæmi fljótlega aftur heim. Skömmu síðar var hann hand- samaður í Hollandi. „Ég trúi því að þú sért útvalinn af guði“ – Guðmundur Örn Ragnarsson Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins, kom fram í viðtali á sjón- varpsstöðinni Omega sem átti ekki eftir að afla honum neins nema háðs. Sjónvarpspredikarinn hóf samstundis að ausa Eyþór lofi og lýsti því yfir að almættið hefði valið hann sem borgarstjóra. Þótti Ey- þóri sjálfum þetta augljóslega vandræðalegt og reyndi að gera sem minnst úr þessu. „Einhverra hluta vegna datt mér í hug að eitt það sniðugasta sem þú getur gert sem barnaníðingur á Íslandi er líklega að ganga í Sjálf- stæðisflokkinn“ – Bragi Páll Sigurðarson Bragi Páll gerði allt vitlaust með pistli sínum á Stundinni um lands- fund Sjálfstæðisflokksins í vor. Þar dansaði hann hárfínt á línu háðs, alvöru og ósvífni. Lýsti Páll Magnússon þingmaður Stundinni sem „endaþarmi íslenskrar blaðamennsku“ í kjölfarið. KLAUSTURSMÁLIÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.