Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Blaðsíða 16
16 SPORT 15. feb 2019
Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
Í
slenskt íþróttaáhugafólk á flest
sitt lið í enskum fótbolta, ís
lenskir íþróttafréttamenn eru
þar engin undantekning. Ís
lenskir íþróttafréttamenn endur
spegla í raun landslagið í þjóð
félaginu, flestir hallast að rauða
litnum og skiptast jafnt á milli
stórliðanna á Englandi, Man
chester United og Liverpool.
30 íþróttafréttamenn eru skráð
ir í samtök íþróttafréttamanna
en með krókaleiðum var hægt að
finna út úr því með hvaða liðum á
Englandi 27 einstaklingar halda.
Ekki var hægt að grafa upp hvaða
lið Edda Sif Pálsdóttir á RÚV, Páll
Hilmar Ketilsson hjá Víkurfrétt
um og Ívar Benediktsson á
Morgunblaðinu styðja.
Skærasta stjarnan heldur
með United
Manchester United, sem hefur
unnið efstu deild á Englandi oft
ast, á ellefu stuðningsmenn í röð
um íþróttafréttamanna á Íslandi.
Helst ber þar
að nefna Guðmund Bene
diktsson, einn frægasta núlifandi
Íslendinginn. Þá hefur Arnar
Björnsson ekki náð sínu í gegn í
uppeldinu því dóttir hans, Krist
jana Arnarsdóttir, heldur með
United, Arnar er á öðrum báti. Þá
er foringinn sjálfur, Henry Birgir
Gunnarsson, stuðningsmaður
rauðu djöflanna. Stuðningsmenn
United hafa lifað í vonleysi eftir að
Sir Alex Ferguson hætti en Guð
mundur Hilmarsson á Morgun
blaðinu er einn af þeim sem trúa
að Ole Gunnar Solskjær geti fært
stuðningsmönnum félagsins von
í brjósti.
Bítlaborgin heillar marga
Það eru ellefu í röðum íþrótta
fréttamanna sem halda með
Liverpool, Bítlaborgin heillar jafn
marga og United. Liverpool er líka
sögufrægt félag sem var afar sig
ur sælt á árum áður,
líklegt er að
titlarnir fari
að koma aft
ur undir stjórn
Jurgens Klopp.
Hörður Magnússon,
sem hefur verið vinsæll í starfi
til fjölda ára, heldur með Liver
pool. Magnús Már Einarsson, sem
er manna fróðastur um leikinn
fagra, heldur einnig með Liver
pool. Stuðningsmenn Liverpool
hafa gjarnan mikla ástríðu fyrir
félagi sínu, þeir eru vongóðir um
að 29 ára eyðimerkurganga í efstu
deild Englands taki enda í ár.
Einir á báti
Fimm íþróttafréttamenn á Íslandi
eru einir á báti, þannig hefur Arn
ar Björnsson alla tíð haldið með
Leeds, það hefur oftar en ekki tek
ið á, en á síðustu árum hefur liðið
verið í vandræðum. Víðir Sigurðs
son, sem er afar virtur blaðamað
ur og hefur lengi verið í brans
anum, heldur með Derby. Einar
Örn Jónsson á RÚV styður Arsenal
og Andri Yrkill Valsson styður
Newcastle. Óskabarn þjóðarinnar,
Haukur Harðarson, varð svo fyrir
áhrifum Eiðs Smára Guðjohnsen
og styður Chelsea. n
Gamli skólinn: Guðmundur Hilmarsson á
Morgunblaðinu, heldur með Manchester United.
Haukur
Harðarson er
einn á báti og
heldur með
Chelsea.
Henry Birgir Gunnarsson (Sýn)
Guðmundur Benediktsson
(SÝN)
Tómas Þór Þórðarson (SÝN)
Elvar Geir Magnússon (Fótbolti.
net)
Guðmundur Hilmarsson
(Morgunblaðið)
Hörður Snævar Jónsson (433.is)
Ingvi Þór Sæmundsson (Frétta
blaðið)
Kristjana Arnarsdóttir (RÚV)
Sindri Sverrisson (Morgunblaðið)
Ástrós Ýr Eggertsdóttir
(Manchester United)
Kristján Jónsson (Morgunblaðið)
Liverpool:
Bjarni Helgason (Morgunblaðið)
Guðjón Guðmundsson (Sýn)
Hafliði Breiðfjörð (Fótbolt.net)
Hörður Magnússon (Sýn)
Magnús Már Einarsson (Fót
bolti.net)
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
(Liverpool)
Valur Páll Eiríksson (RÚV)
Kristinn Páll Teitsson (Frétta
blaðið)
Hjörvar Ólafsson (Fréttablaðið)
Eiríkur Stefán Ásgeirsson (Sýn)
Óskar Ófeigur Jónsson (Sýn)
Chelsea:
Haukur Harðarson (RÚV)
Leeds:
Arnar Björnsson (Sýn)
Arsenal:
Einar Örn Jónsson (RÚV)
Newcastle:
Andri Yrkill Valsson (Morgun
blaðið)
Derby County:
Víðir Sigurðsson (Morgunblaðið)
Ást á ensku tuðrusparki
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Gummi Ben heldur með
Manchester United
Hafliði Breiðfjörð held-
ur með Liverpool en
samstarfsfélagi hans
á Fótbolta.net, Elvar
Geir, heldur með með
Manchester United.
Manchester United: