Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Qupperneq 23
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Sérhæfing Verksýnar ehf. er á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem
utan. Hjá fyrirtækinu starfa sér-
fræðingar með yfirgripsmikla reynslu
og þekkingu á þessu sviði. Fyrirtækið
leggur áherslu á að búa yfir fagþekk-
ingu, sem felst í að verkefnastjórar
fyrirtækisins hafa flestir reynslu af
störfum sem iðnmeistarar og er það
ein af grunnstoðum í þekkingu fyrir-
tækisins.
„Við erum stolt af því að margir
okkar starfsmanna hafa þennan
mikilvæga bakgrunn, sem þeir hafa
í mörgum tilvikum byggt ofan á með
frekara námi. Við teljum þetta skapa
okkur ákveðna sérstöðu og umfram
allt nýtist þessi þekking viðskiptavinum
okkar vel,“ segir Andri Már Reynisson
hjá Verksýn.
„Stærsti hlutinn af okkar starfsemi
felst í því að þjónusta húsfélög og aðra
eigendur fasteigna með ráðgjöf vegna
viðhalds og endurbóta á eignum
þeirra. Við störfum eftir gæðakerfi
sem vottað er af Mannvirkjastofnun,“
segir Andri. „Við höfum einnig þróað
gæðakerfi fyrir byggingarstjóra og
iðnmeistara, sem við bjóðum til sölu,
svo að við þekkjum einnig vel til þeirra
gæðakerfa.“
Fyrsta skrefið er ástandsskoðun
„Fyrsta skrefið í okkar ferli er ástands-
skoðun og í framhaldinu áætlanagerð.
Það skiptir máli að þetta sé gert vel og
vandlega. Mikilvægt er að þetta fyrsta
skref sé tekið snemma. Núna er til
dæmis góður tími til að hafa samband
við okkur vegna ástandsskoðunar og
þetta er að segja má sá tími ársins þar
sem við erum á fullu að vinna þessa
undirbúningsvinnu fyrir framkvæmdir.
Eftir að ástandsskýrsla kemur
út þarf viðskiptavinurinn að taka
ákvörðun um næstu skref, sem tek-
ur sinn tíma. Það er einnig best fyrir
eigendur að gefa sér tíma í þá ákvarð-
anatöku, enda getur verið um tölu-
verða fjárfestingu að ræða vegna við-
gerða eða endurbóta á eldra húsnæði.
Út frá reynslutölum er áætlað að verja
þurfi um 1–2% af verðmæti fasteigna
til að mæta eðlilegu viðhaldi á hverju
ári, en sú viðhaldsþörf safnast upp og
getur hæglega stigmagnast ef það er
dregið of lengi að bregðast við henni,“
segir Andri.
„Stór hluti fasteigna á landinu er
kominn á þann aldur að endingartími
byggingarhluta fæst ekki framlengd-
ur með t.d. málun og minni háttar
viðhaldsaðgerðum. Tímabært verður
því að horfa til endurnýjunar, t.d. á
gluggum, þakklæðningu og öðrum
byggingarhlutum.“
Útboð skila hagkvæmni
„Að lokinni ákvarðanatöku um fram-
kvæmdarleið beinum við verkefnum
okkar í útboð. Búin er til verðsamkeppni
svo viðkomandi framkvæmd verði
sem hagkvæmust fyrir eigendur. Við
sinnum einnig umsjón og eftirliti með
framkvæmdum, alveg frá upphafi
og þar til kemur að lokaúttekt við-
komandi framkvæmda. Sú vinna er
tímafrek og þarfnast yfirlegu.“
Eigendur vilja fá marktækar áætl-
anir
Iðulega heyrast sögusagnir um að
kostnaður á hinum og þessum fram-
kvæmdum hafi aukist langt umfram
það sem eðlilegt getur talist. Þótt
kostnaðaraukning geti átt sínar skýr-
ingar í einhverjum tilvikum, er ekki
þar með sagt að það eigi að taka
þeim sem sjálfsögðum eða eðlilegum
hlut.
„Við hjá Verksýn skoðum fasteignir
vel úr návígi og förum upp í stiga eða
vinnulyftur til þess að komast yfir
sem mest af ytra byrði hússins – og
skoða það vel og vandlega. Einnig
skoðum við innandyra samhliða eins
og þörf er á. Það býður einfald-
lega upp á ónákvæmar kostnað-
aráætlanir að gera ekki nægilega
nákvæma skoðun í upphafi og það
er t.d. að okkar mati alls ekki nóg að
„sjónskoða“ frá jörðu heilar húseignir
og byggja áætlanir á því. Innan-
hússmetnaður okkar er að halda
skekkjumörkum á framkvæmda-
kostnaði í ca. 5–10%, til eða frá, og
hefur okkur tekist það að mestu
leyti. Þá er það síðan alls ekki svo að
framkvæmdir þurfi endilega að fara
yfir áætlun, það er ekki síður algengt
að þær endi undir áætlunum.“
Nánari upplýsingar má finna á
heimasíðunni www.verksyn.is
Verksýn ehf.
Síðumúla 1, 108 Reykjavík
517-6300 – verksyn@verksyn.is n
Taktu fyrsta skrefið með Verksýn
Stykkishólmskirkja. Árin 2015–2018 var gert við/skipt um öll þök byggingarinnar. Auk
þess voru framkvæmdar umfangsmiklar múr- og steypuviðgerðir á kirkjunni og hún
máluð. Gluggar yfir kór kirkjunnar voru svo endurnýjaðir á síðasta ári.
Viðhaldsframkvæmdir við Rauðarár-
stíg 40–42. Endurnýjun flestra glugga
hússins, gagngerar múrviðgerðir
og endursteining, endurnýjun þaks,
endurbygging þakkants, Endurnýjun
niðurfallsröra.
Viðhaldsframkvæmdir við Fellsmúla 17–
19. Álklæðning á útveggjum, endurnýjun
og breyting á svalahandriðum, endur-
bætur á þaki, gluggaskipti, múrviðgerðir
og málun.
Andri Már
Reynisson
Fjöleignarhúsið Veghús 31. Árið 2018
hafði Verksýn umsjón og eftirlit með
glugga- og múrviðgerðum á húsinu,
auk glerskipta og annars hefðbundins
viðhalds á það. Loks var það málað.
Borgartún 6, öðru nafni Rúgbrauðsgerðin.
Sumarið 2018 lauk framkvæmdum við
umfangsmikil gluggaskipti á húsinu, bæði
á bakhlið og austurgafli. Í framkvæmdinni
voru settir ál/trégluggar í stað uppruna-
legra timburglugga. Hringlaga gluggar
þessara hliða voru endurnýjaðir með
álgluggum.