Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 31
Heimili og viðhald 15. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ Hvassavík ehf. þjónustar hvort heldur er einstaklinga eða fyrirtæki og stofnanir um allt sem viðkemur múrverki. „Við sjáum um járnabindingu, byggingastjórnun og allt almennt múrverk. Sjálfur er ég múrarameistari með meira en fimmtíu ára reynslu í múrverki og lærði á sínum tíma hjá Steiniðjuni, S Helgason, ásamt því að hafa farið á ýmis námskeið er- lendis. Þess vegna er ég líka í grjótinu, þ.e. legg flísar og náttúrustein,“ segir Róbert Kristjánsson. Settu viðhaldið í áskrift! Hvassavík ehf. hefur starfað við mörg stór verkefni sem og smærri verkefni. „Við bjóðum upp á sniðuga þjónustu fyrir einstaklinga eða húsfélög; að vera í svokallaðri áskrift á ástandsskoðun og viðhaldi á húsum og byggingum. Þetta getur verið sérstaklega sniðugt fyrir íbúa fjölbýlishúsa, til þess að koma í veg fyrir að húsið grotni niður vegna lélegs viðhalds og þurfa svo að punga út miklum fjárhæðum, til þess að lagfæra eitthvað sem hefði verið hægt að gera tíu árum áður, fyrir helmingi lægri upp- hæð,“ segir Róbert. Róbert mælir með að fólk hafi samband sem fyrst varðandi ástands- skoðun. „Það er best að byrja á þessu að vori til og nýta sumarið í þau verk sem þarf að klára fyrir næsta vetur. Svo ráðleggjum við um framhaldið, hvort það þurfi að huga að meira viðhaldi strax næsta vor, eða hvort það megi bíða einhvern tíma lengur,“ segir Róbert. Múrarar með tilskipuð réttindi „Það eru nú þegar einhver fyrirtæki á markaðnum sem bjóða upp á sam- bærilega þjónustu, en það sem við höfum fram yfir marga aðra er að Hvassavík ehf. býr yfir gífurlegri reynslu í múrverki, auk þess sem við erum allir með tilskipuð réttindi til þess að starfa við múrsmíði. Ég mæli ekki með því að fólk skipti við einstaklinga og eða fyrir- tæki sem ekki eru með tilskilin réttindi. Múrarameistari er sá sem ber hvað mesta ábyrgð á að bygging sé í lagi og ef fólk kann ekki til verka þá getur illa farið,“ segir Róbert. Hvassahraun 27, 191 Vogar. Netpóstur: hvassavik.ehf@gmail.com Sími: 849-4423 Fáðu reynda múrara í verkið. Múrarar með réttindi! Flottar sturtur. Aðstaða fyrir útigrill. Flottur arinn. Le Kock lítur glæsilega út. Hressir strákar! n HVASSAVÍK EHF: Múrarar með reynslu og tilskipuð réttindi!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.