Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2019, Síða 42
42 15. feb 2019TÍMAVÉLIN
Undarlegir
hlutir fyrir
eftirlífið
Að taka eitthvað með
sér í gröfina er orða-
tiltæki um að halda
leyndarmáli til dauða-
dags. Sumir hafa þó
bókstaflega tekið hluti
með sér í gröfina. Þetta
þekktist á Íslandi í heiðni.
Fólk tók með sér verald-
lega hluti til þess að nota
í eftirlífinu. Faraóarnir
egypsku tóku með sér
mikið af góssi í gröfina.
Enn þá tíðkast að setja
táknræna hluti í gröf
hins látna. Hér eru
nokkur dæmi um
það.
Morðið á forsetanum John F.
Kennedy, árið 1963, var mik-
ið áfall fyrir bæði bandarísku
þjóðina og alla heims-
byggðina. Hann var
aðeins 45 ára gamall
þegar hann var skotinn
úr launsátri í Dallas.
Kennedy tók ýmsa
hluti með sér í gröf-
ina. Þar á með-
al 30 sentimetra
langa hvaltönn sem
Milton DeLano,
listamaður og borgar-
stjóri
Denver, hafði skorið tákn for-
setaembættisins út í á 19. öld.
Kennedy safnaði tönn-
um, sér í lagi úr
hvölum sem
höfðu ver-
ið veiddir af
hvalveiði-
mönnum
frá Nýja-
Englandi.
Í gröf
Kennedy
voru einnig
sett bréf frá
forsetafrúnni,
Jackie, og son-
um hans tveim-
ur, skyrtuhnappar úr
gulli og bindisnæla.
Ungverski leikarinn Bela Lugosi
gerði Drakúla greifa ódauðlegan
í samnefndri Hollywood-kvik-
mynd frá árinu 1931. Hann hafði
áður leikið transylvanísku blóð-
suguna á sviðinu á
Broadway.
Lugosi lést
úr hjartaáfalli
árið 1956, 73
ára að aldri, og
var jarðaður í Kali-
forníu. Sagan segir að
Lugosi sjálfur hafi beðið
um að verða jarðaður í Dra-
kúla-búningnum sínum, með
skikkju og öllu, og var það gert.
Síðar kom í ljós að leikarinn
hafði ekki beðið um
það heldur var
það ákvörðun
sem eiginkona
hans, Lilian,
og sonur hans,
Bela George
Lugosi, tóku.
Söngvarinn, leikarinn og ei-
lífðartöffarinn Frank Sinatra
lést 82 ára að aldri vorið
1998 úr hjartaáfalli. Var
hann í kjölfarið jarðaður
í Beverly Hills að við-
stöddum 400 manns
og þúsundir aðdáanda
stóðu fyrir utan kirkjuna.
Sinatra var klædd-
ur í blá jakka-
föt og í kistuna
voru settir
táknrænir
munir fyrir
ævi hans. Með-
al annars pakki af Camel-sígar-
ettum, Zippo-kveikjari,
uppáhaldskaramellurn-
ar og minturn-
ar hans, bangsi,
hundakex og
flaska af Jack Dani-
els viskíi.
Jack Daniels hefur
allar götur síðan not-
að Sinatra í auglýs-
ingar sínar og meira
að segja framleitt
sérstaka tegund,
Sinatra Select.
Reggíkóngurinn Bob
Marley lést úr krabba-
meini aðeins
36 ára gamall í
borginni Miami í
Flórída árið 1981.
Líki hans var flogið
heim til karabísku
eyjunnar Jamaíku
og hann jarðaður
nálægt fæðingar-
bæ sínum, Nine
Mile.
Margir vita að Marley
var jarðaður með gítarn-
um sínum, af gerðinni Les
Paul. En það voru fleiri
hlutir settir í gröfina að
hans eigin ósk. Það voru
fótbolti, ein
jóna af kanna-
bis, Biblían og
hringur sem
hann fékk að
gjöf frá prins Eþíópíu.
Hinn norsk-breski Roald Dahl var einn allra
vinsælasti barnabókahöfundur 20. aldar-
innar. Lét hann eftir sig verk á borð við
Kalla og sælgætisgerðina, Matthildi og
Nornaseið. Hann lést árið 1990 úr krabba-
meini, 74 ára að aldri.
Það kemur fæstum á óvart að súkkulaði
hafi verið sett í gröf Dahl, enda var hann með
það á heilanum. Hann dreymdi um að eiga og
starfa í súkkulaðiverksmiðju.
Það sem kann að koma fólki á
óvart er að í gröfina var einnig
sett snókerkjuði, rauðvín, blý-
antar og hjólsög.
Ferill leikarans Tonys Curtis
spannaði sextíu ár. Hann
skildi einnig eftir sig
sex börn og sex eig-
inkonur en hann lést
árið 2010 úr hjarta-
áfalli, 85 ára að aldri.
Ekkja hans, Jill
Vandenberg, sá til
þess að hann færi ekki
tómhentur í eftirlíf-
ið. Hann fékk með
sér ökuhanska,
medalíur úr
sjóhern-
um, skó barnabarnsins, líkan af
Ford-bifreið, DVD-mynd,
hjartapillu, gervisykur,
málniningarbursta og
-túpur, sólgleraugu,
gyðingahatt, ösku
heimilishundsins og
síðast en ekki síst iPho-
ne-símann sinn.
Hvaltönn forsetans
Gervisykur og iPhone
Pakki af Camel og flaska af Jack
Búningur Drakúla
Fótbolti og spliffa
Snókerkjuði og hjólsög
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinn@dv.is